Leita í fréttum mbl.is

Takið á málinu strax!

Einu sinni lét ferðamálafrömuður einn hafa eftir sér í fjölmiðlum, þegar fjallað var um dýrar sólarlandaferðir, að það væri vel borgandi fyrir að vera Íslendingur.  Punktur.  Á þessum tíma kostaði það svona tvisvar sinnum meira að fara til sólarlanda með íslenskri ferðaskrifstofu en t.d. danskri.

Fyrir liðlega 10 árum fór ég í eina slíka með Spies og það var 40% ódýra, flott vél, yndislegt hótel og lágmark af samlöndum mínum á svæðinu.  Ekki að ég hafi á móti Íslendingum, en ég nenni ekki að flytja þá með mér í hópum til útlanda.

Nú er komið í ljós að matvara á Íslandi er 64% hærri en að meðaltali í ESB-ríkjum.  Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Samkeppniseftirlitsins.

Og hvað ætli verði gert við þessar upplýsingar?

Mun ríkisstjórnin hoppa hæð sína af skelfingu og alveg: Krakkar þetta gengur ekki, við getum ekki haft þetta svona.  Tökum á málinu strax?

Eða: Æi það er svo dýrt að vera Íslendingur og vel borgandi fyrir þau dásamlegu forréttindi?

Einu sinni var hægt að gefa svona búllsjitt svör við háu verði á Íslandi en núna ætla ég að það dugi skammt.  Eða hvað?

Ég er eiginlega komin á þá skoðun, þvert á skoðun minna heittelskuðu VG að við eigum að ganga í Evrópusambandið.

En þangað til.

Viljið þið gjöra svo vel að lækka matarverðið gott fólk.  Við almenningur erum fæst með ráðherralaun, hm.. afsakið fjármálageiralaun.

Það er ekki borgandi fyrir þjóðerni.  Ég borga bara fyrir þær nauðsynjar sem ég þarf og ég vil að það sé einhver sanngirni í prísunum.

ARG


mbl.is Verð á mat 64% hærra en í ESB
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Tiger

Mikið er ég sammála þér Jenný, það verður að gera eitthvað og það strax. Ég þekki til fólks sem núna undir lok mánaðar á ekki einu sinni fyrir mjólkurfernu hvað þá öðrum lífsnauðsynjum. Öryrkjar og lífeyrisþegar ná ekki endum saman við það sem núna ríkir, skelfilegt bara.

Ég var staddur í Evrópu í fyrra og keypti mér 10 daga ferð til Kanaríeyja með hóteli og öllu fæði innifalið í verði - á 20 Þúsund krónur! Hvað skildi 10 daga ferð héðan frá Íslandi kosta með öllu innifalið í verði? Örugglega mun meira en 20.000kr.

Eigðu ljúfan dag mín kæra!

Tiger, 20.5.2008 kl. 16:50

2 Smámynd: Johnny Bravo

Alþingi getur alveg lagt niður alla tolla, hefur ekkert með ESB að gera.

Johnny Bravo, 20.5.2008 kl. 17:07

3 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ég veit það Johnny Bravo, ég nefndi þetta í framhjálaupi með ESB, það hlýtur að skána eitthvað fyrirkomulegið hér er það ekki? Þ.e. ef við göngum inn.

Sammála Tiger.

Jenný Anna Baldursdóttir, 20.5.2008 kl. 17:12

4 Smámynd: Ía Jóhannsdóttir

Ég næ bara ekki þessu verðlagi þarna heima.  Hvað er eiginlega í gangi og hvað á þetta að ganga lengi. Matvæli 64% hærri en í ESB löndunum!   Er þetta nú ekki til að fylla mælinn.

Svo annað mér finnst þessi Sænska pía ekkert spes, og lagið fynnst mér vera lagleysa.  Svo er hún svo rosalega meðvituð um þessa pinnahælaháuskó sem hún varla getur gengið á að ég tali nú ekki um hárblásaradæmið.

En það er nú svo margt í dag sem ég skil ekki.  Örugglega einhver meinloka í gangi e.t.v. lagast það með kvöldinu.

Ía Jóhannsdóttir, 20.5.2008 kl. 17:15

5 Smámynd: Ásgerður Jóna Flosadóttir

Var að koma frá Kaupmannahöfn í gær og var með 25% gengisfellingu í vasanum meðan á dvöl minni stóð.  Að versla í matinn þar í landi er miklu ódýrara enn hér.  Þetta erum við búin að vita í áratugi.  En hvað gerum við, jú við kjósum alltaf sama liðið yfir okkur og því breytist ekkert.

Ísland er okurland, og valdhafar hafa okkur að fíflum.  Aldrei mótmælum við og því er hægt að koma fram við okkur eins og við séum öll létt galin.

Ásgerður Jóna Flosadóttir, 20.5.2008 kl. 17:28

6 identicon

Furðulegt verðlag hér

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 20.5.2008 kl. 17:38

7 Smámynd: Andrea

Þetta er bilun, en hvað gerist? Það verður allt vitlaust af því að það er svo dýrt að dæla bensíni á tröllajeppana!
Mér er alveg sama hvort ESB er málið eða eitthvað annað- ég vill bara að það sé gert eitthvað!

Andrea, 20.5.2008 kl. 18:33

8 Smámynd: Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir

 Það er ekki bara við stjórnvöld að sakast, kaupmenn upp til hópa notfæra sér ástandið núna og klína óþarfa hækkun á alla hluti það eru margir vöruflokkar sem hafa hækkað  um hundrað krónur eða meira.....við sem neytendur getum sniðgengið lúxusvörur og beðið með annað en maður getur víst ekki hætt að kaupa mat.....

Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir, 20.5.2008 kl. 19:16

9 Smámynd: Erna Bjarnadóttir

Sæl Jenný. Það er ósvífið að mínu mati að gefa í skyn að verðlag á Íslandi geti verið 60% lægra en það er. Í fótnótu í skýrslu Samkeppniseftirlitsins er greint frá að á árinu 2006 var verðlag 15,3% hærra en í Danmökru. Að vísu var vsk á mat þá 14% hér á landi en 25% í Danmörku. Það væri engu að síður glæsilegur árangur að ná vsambærilegu verðlagi hér og þar. Verðlag í Finlandi lækkaði um 11% við ESB aðild. Höldum okkur við staðreyndir og berum okkur saman við lönd með sambærileg lífskjör. Fólk í Austur-Evrópu sem býr við lægra matvöruverð en við þar líka að eyða milli 20-30% af útgjöldum sínum til matvælakaupa, vill einhver skipta??

Erna Bjarnadóttir, 20.5.2008 kl. 20:07

10 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Erna, ég er ekki að gefa neitt í skyn, ég er einfaldlega að krefjast þess að stjórnvöld geri eitthvað í verðlagsmálum hvað varðar nauðsynjar. Ég hef ekki uppi neina prósentutölu, bara smá sanngirni hérna.

Takk fyrir innlegg öll sömul.

Jenný Anna Baldursdóttir, 20.5.2008 kl. 21:09

11 Smámynd: Helga Magnúsdóttir

Verðlag á Íslandi hefur verið bilað frá því myntbreytingin fræga verð og verðmat fólks fauk út í veður og vind og það var svindlað á okkur hægri vinstri. Við erum sauðir sem látum reka okkur í flokkum að kaupa í matinn og fleira á okurprís.

Helga Magnúsdóttir, 20.5.2008 kl. 21:11

12 Smámynd: Brjánn Guðjónsson

frú Jenný. það þykir sýnt að ekki sé þörf á lækkun verðs á einu né neinu á Íslandi, þar eð Íslendingar eyði hvort eð er um 80% af árinu á Tenerife, Alicante eða á Florida. það eru vesalings útlendingarnir sem hingað koma sem blæða. gott mál til að lappa upp á viðskiptahallann.

Brjánn Guðjónsson, 20.5.2008 kl. 21:23

13 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Bárður: Allir á Tenerif, og í ágúst eru ALLIR í berjamó

Helga: Satt.

Jenný Anna Baldursdóttir, 20.5.2008 kl. 21:28

14 Smámynd: Brjánn Guðjónsson

þú meinar Jónatan?

Brjánn Guðjónsson, 20.5.2008 kl. 21:29

15 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Brjánn: What???

Jenný Anna Baldursdóttir, 20.5.2008 kl. 21:33

16 Smámynd: Brjánn Guðjónsson

Já, Bárður eða Jónatan. Er það ekki nærri lagi?

Brjánn Guðjónsson, 20.5.2008 kl. 21:35

17 Smámynd: Brjánn Guðjónsson

eða skyldi ég hafa sagt Rögnvaldur?

Brjánn Guðjónsson, 20.5.2008 kl. 21:35

18 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Arg: Hvaða meinloka er þetta í mér?  Fyrirgefðu Brjánn, mér finnst nafnið þitt fallegt.  Arg og sorrí, ég hendi mér í vegg í refsiskyni.

Jenný Anna Baldursdóttir, 20.5.2008 kl. 21:44

19 Smámynd: Brjánn Guðjónsson

bið að heilsa veggnum

Brjánn Guðjónsson, 20.5.2008 kl. 23:03

20 Smámynd: Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir

Af vel ígrunduðu máli og langri meðgöngu, hef ég komist að því að það er ekki spurning um hvort að við göngum í ESB heldur hvenær. -  Og ég vona að almáttugur góður Guð láti það verða fyrr en síðar svo við missum ekki fleirir líf,  vegna niðurskurðarhnifs í heilbrigðismálum.  Það  mundi bjarga mögum mannslífum.   -   

Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 20.5.2008 kl. 23:03

21 Smámynd: Lilja G. Bolladóttir

Ég er ekki á ESB-aðild, það hefur ekki borgað sig fyrir önnur smáríki innan sambandsins. Verðlag í Danmörku var líka miklu lægra en hér, áður en Danir gengu í ESB. Málið eru allir þessir innflutningstollar, vörugjöld og skattar hjá okkur - það er verið að margskattleggja sömu krónuna okkar, og mér finnst það skítt og svíður það. Ég borga mun meira til stóra Bróður en ég á að þurfa að gera, og svo gera þeir ekkert af viti fyrir okkur í staðinn..... ætli þeir séu ekki að safna í feita eftirlaunasjóðinn sinn???

Lilja G. Bolladóttir, 21.5.2008 kl. 00:02

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (8.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 30
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 30
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband