Leita í fréttum mbl.is

Önnur hauskúpa fundin

Ég ætla rétt að vona að þessi sem aldursgreinir nýfundinn hluta úr hauskúpu á norður-Spáni, sé færari í djobbinu en starfsbróðir hans hér á Íslandi sem "aldursgreindi" hauskúpuna af  Birni Grilli í síðustu viku.  Hann misreiknaði sig um þetta ein 60 ár eða svo. 

Hauskúpuhlutinn telst vera tólfhundraðþúsund ára gömul.  Hm.. rosalega er það óld.

Annars hef ég verið með martraðir út af þessu máli.

Að tala um að bera beinin,  alla leið upp í sumarbústað til einhvers fólks.

Úff, hver veit hvað gert verður við mann, eftir að búið er að kistuleggja.  Er maður ekki neyddur í þá athöfn, dauður og ósjálfbjarga, hvort sem ætlunin er að grafa eða brenna?

Annars finnst mér ekki gerandi grín að þessu máli.  Þó að auðvitað sé ekkert hafið yfir húmor, en viðhorfið gagnvart geðsjúkum á síðustu öld, kristallast í þessari meðferð á Birni.  Hann hefur ekki verið greftraður.  Bara gefinn lækni til rannsókna og annarra nota.

Hva; þó einn Kleppari fái ekki einu sinni jarðaför.

Frussssss

 


mbl.is Fornar leifar manna finnast á Spáni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ragnheiður

Það má nú vera að Björn hafi gefið afganginn af sér sjálfur, sumir gerðu það í þágu læknavísinda. Hinsvegar er það óskráð regla með lík sem enginn vill að þau eru notuð til að krukka í og vesenast með, þó mér þyki það taka út yfir allan þjófabálk að þræla manni í kassa og geyma undir rúmi barns.

Ég myndi allaveganna vilja vera á hillu á rannsóknarstofu og líta út fyrir að vera bráðmerkilegur afgangur. Svo myndi ég ekki nenna að fjúka um allt uppí Kjós þó að ættaróðal forfeðra minna sé þar í sveit sett.

Hættu svo að hósta kona, ég heyrði sko í þér í dag !

Ragnheiður , 27.3.2008 kl. 20:52

2 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Hehe, fólk er nú grafið Ragga mín, þó það gefi úr sér innvolsið til rannsókna.

Ég er að drepast úr hósta, er komin með annan í bronkitiz.  Helv... verst að ég ætla ekki að hætta að reykja fyrr en 12.maí.

Jenný Anna Baldursdóttir, 27.3.2008 kl. 20:56

3 Smámynd: Markús frá Djúpalæk

Af hverju 12. maí?

Markús frá Djúpalæk, 27.3.2008 kl. 21:05

4 identicon

Já og það kemur ekki til greina að þú hættir degi fyrr hehe.

annars væri ég ekkert sérstaklega til í að vera notuð sem öskubakki þegar ég er öll.

Eyrún Gísladóttir (IP-tala skráð) 27.3.2008 kl. 21:08

5 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Ég er ekki viss um hvort manni sé sama eða ekki svona eftir á.  Og þó sumum er ekki sama.  Ég man nokkrar sögur um reimleika eftir að menn tóku sér bein eða bara gerðu grín að líki, eins og hann svartnasi. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 27.3.2008 kl. 21:19

6 Smámynd: Heiða  Þórðar

Knús og von um skjótan bata.

Heiða Þórðar, 27.3.2008 kl. 21:38

7 Smámynd: Ragnheiður

Já kannski var afgangurinn af Birni grafinn, ja ..nema hann komi í ljós undir öðru rúmi ?

Annars fékk ég nærri slag í vinnunni í morgun, ein í húsinu og heyrði svona:

skref

drag

skref

drag

skref

drag

Veistu hvort Björn þessi var haltur ? Einhver gekk aftur í vinnunni minni í morgun meðan ég var ein þar...krípí

Ragnheiður , 27.3.2008 kl. 21:38

8 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Knús inn í nóttina.

Kristín Katla Árnadóttir, 27.3.2008 kl. 21:57

9 Smámynd: Þröstur Unnar

Sama væri mér þót hausin á mér yrði notaður sem öskubakki eða poppskál, að mér dauðum.

Ragga:  Drag+skref=dragdrottning?

Þröstur Unnar, 27.3.2008 kl. 22:30

10 Smámynd: Ragnheiður

Afturgengin dragdrottining, á leigubílastöð ? Shit það er enn meira krípí en afturgenginn leigubílstjóri að bíða eftir túr.

Ragnheiður , 27.3.2008 kl. 22:52

11 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Hahahaha!

Jenný Anna Baldursdóttir, 27.3.2008 kl. 23:50

12 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Leigubílstjórar hafa lent í því að taka upp "farþegar" sem hafa svo ekki verið í bílnum þegar komið var á áfangastað Ragnheiður mín  Nokkru sinni lent í svoleiðis ?

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 28.3.2008 kl. 00:43

13 Smámynd: Ragnheiður

Nei ekki get ég nú sagt það Ásthildur, íslenskar afturgöngur eru orðnar umhverfisvænar og þær virðast taka strætó bara

Ragnheiður , 28.3.2008 kl. 08:17

14 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ætli það séu reimleikar hjá BSR??? Ómægodd.

Jenný Anna Baldursdóttir, 28.3.2008 kl. 08:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.4.): 4
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 27
  • Frá upphafi: 2985750

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 24
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband