Leita í fréttum mbl.is

Pirringsblogg - ARG

 

28

Í gær var ég að lesa pistil hjá henni Heiðu bloggvinkonu minni, um að notandandinn "Handtöskuserían" hafið beðið hana um bloggvináttu.  Ég skildi svo vel að hún væri pirruð.  ARG!

Sömu beiðni fékk ég stuttu seinna.  Ég opnaði ekki bloggið heldur hafnaði beiðninni umsvifalaust. 

Aftur fékk ég beiðni frá Handtöskufólkinu og nú samþykkti ég og eyddi svo í þeirri von að þau tæku ekki eftir að þeim hefði verið hent út.  Hehe.  Ég ætti ekki annað eftir en að fara að gerast bloggvinur fyrirtækis.  Það þarf að vera eitthvað sérstakt á bak við svona blogg til að ég samþykki það.  Eins og grasrótarsamtök ýmis konar.

Ég urlast upp af bloggum sem notuð eru til að selja eitthvað.

Man eftir Killer Joe leikritinu, en einhver talsmaður þess setti upp síðu og kommenteraði stöðugt út um allt blogg.

Það er hvergi friður fyrir sölumönnum, allt er notað.  Eins og það sé ekki nóg að vera með auglýsingu á bloggsíðunni sinni án þess að hafa beðið um hana.

Ef þið eruð að selja eitthvað, ekki reyna að biðja mig um bloggvináttu. 

Verið úti krakkar.

Hóst.

Annars er bloggvinalistinn minn orðinn ansi langur og ég er stöðugt með þá tilfinningu að ég geti ekki sinnt öllum þeim sem eru á honum.  Þarf að fara að grisja.

Ogjammogjá.

Það


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Þú segir að minnsta kosti hlutina hreint út

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 26.3.2008 kl. 14:52

2 Smámynd: Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir

Hehehe..    þegar Killer Joe bað mig um bloggvináttu var ég nýbyrjuð að blogga og hélt þetta væri bara einhver með þetta dulnefni. Ekki meðvitaðri en það! Gott að vita þetta með handtöskuseríuna. Hef ekkert tilboð fengið frá henni. Var annars að fá á meilinu mínu að ég hefði unnið í Lottó 1.000.000.000.- Evrur eða eitthvað svoleiðis - kannski nokkrum núllum of mikið .. skrítið þar sem ég hef ekkert verið að taka þátt í Lottó.. býð öllum bloggheimi til útlanda ef satt reynist, eða þannig!

Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 26.3.2008 kl. 14:54

3 Smámynd: Ragnhildur Sverrisdóttir

Ég hef tekið einhverjum leikhópi opnum örmum af tómri vanþekkingu. Henti honum svo út. Mun ekki taka handtöskum fagnandi.

Ragnhildur Sverrisdóttir, 26.3.2008 kl. 15:11

4 identicon

ÆÆÆ ekki henda mér út ég er ný komin inn

Eyrún Gísladóttir (IP-tala skráð) 26.3.2008 kl. 15:35

5 Smámynd: Lára Hanna Einarsdóttir

Ekki fattaði ég að þetta væri auglýsing...  ein græn!    Takk fyrir ábendinguna, ég passa mig á öllu svona hér eftir.

Lára Hanna Einarsdóttir, 26.3.2008 kl. 16:01

6 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Þetta er bókasería fyrir konur Lára Hanna.  Pjúra auglýsingamennska.

Eyrún mín: Þú ferð ekki fet honní.

Jenný Anna Baldursdóttir, 26.3.2008 kl. 16:07

7 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Ég fékk þetta sent líka en þorði ekki að segja NEI.

Kristín Katla Árnadóttir, 26.3.2008 kl. 16:14

8 identicon

Mér finnst það ekki góð þróun ef fyrirtæki ætla að fara að stofna blogg til að selja vörur. Þetta er umræðu- og skoðanavettvangur ekki verslunarumhverfi.

Anna Ólafsdóttir (anno) (IP-tala skráð) 26.3.2008 kl. 16:55

9 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Anna: Rétt hjá þér.  Það er hvergi friður.  Ekki heldur í bloggheimum.

Jenný Anna Baldursdóttir, 26.3.2008 kl. 17:08

10 Smámynd: Svala Erlendsdóttir

hahaha.... nýbúin að samþykkja handtöskurnar...

Plís plís plís... ekki grisja mig út af listanum þínum

Svala Erlendsdóttir, 26.3.2008 kl. 18:31

11 Smámynd: Sigrún Ósk Arnardóttir

Setti athugasemdina mína óvart á vitlausa færslu hjá þér en hér kemur hún á réttum stað:

Að auki þá er bannað samkvlæmt skilmálum moggabloggsins að gera það sem handtöskuserían er að gera. Svo ég vitni í skilmálana:


Óheimilt er að senda ruslpóst (spam) og auglýsingar í gegnum kerfið eða að nota það á annan hátt í atvinnuskyni. Lokað verður fyrir aðgang notanda sem verður uppvís að slíku eða misnotar gestabækur eða aðra hluta kerfisins

Þannig að ég skil ekki alveg afhverju Mogginn lokar ekki á þetta fyrirtæki.

Sigrún Ósk Arnardóttir, 26.3.2008 kl. 19:04

12 Smámynd: Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir

Úff, ég er líka svo græn, ég hélt að þetta væri, bloggaranafn, kannski fyrir ísl. hönnuð eða einhver sem ég þekkti, svo ég samþykkti. Takk fyrir að láta vita.

Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 26.3.2008 kl. 21:56

13 Smámynd: Marta B Helgadóttir

Ég hélt líka að þetta væri bloggari, skoðaði það ekki nánar, bara samþykkti.

Marta B Helgadóttir, 26.3.2008 kl. 23:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (10.5.): 3
  • Sl. sólarhring: 11
  • Sl. viku: 31
  • Frá upphafi: 2985826

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 31
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.