Leita í fréttum mbl.is

Ok, ok, ok, aðeins páskalegri færsla..

 

..þar sem bloggvinir mínir eru dálítið slegnir yfir færslunni um Eril, en hann er auðvitað ekki par páskalegur blessaður.  Ég viðurkenni það.

Annars er páskadagur ekkert annað en nafn á almanaksdegi fyrir mér, þó ég sé trúarlega sjálfstæð og einstök sem slík.  Hafið þið ekki pælt í því með upprisu- og fæðingarhátíð Jesú, hvað þær smella inn á heiðnar hátíðar?  En ég veit, píslarsagan gerðist á páskum og ég elska himnafeðga.  Þá er það frá.

Í morgun átti sér stað eftirfarandi samtal, á ættaróðali Jennýjar Unu við Leifsgötu hér í bæ.

Mamman: Jenný; hvað ertu að gera með hníf í páskaegginu þínu?W00t

Jenný Una: Éeragera heimsmet!Gasp

og..

Jenný Una rýkur inn í herbergi eftir að hafa verið skömmuð fyrir eitthvað smáræði, hún gleymir því og fer að lita.

Mamman: Jenný mín líður þér ekki vel?  (Mamman mjög pedagógísk)

Jenný Una: Ekki hafa áhyggjur amér, érra lita.

Mamman spurði mig hvort ég héldi að barn væri búin að kaupa sér íslenskukennslu út í bæ, sem hún vissi ekki um.  Hvað veit ég hvað þetta þriggja ára barn er að bardúsa?

Í kvöld er kvöldmaður hjá Söru og Erik.  Þangað fer ég, húsband, Frumburður ásamt heittelskaða og Jökla fermingarbarni.  Ég ætla að knúsa Hrafn Óla í klessu.

Ég talaði við Maysu mína, en hún Robbi og Oliver gistu við sjálfan Abbey Road í nótt hjá vinafólki sem jafnframt eru vinnuveitendur Maysunnar.

Þau voru á leið í dinner í miðborg Lundúna..

..og það hafði snjóað á þau.

Svona er lífið á páskum.

Ójá


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Þetta er svona rólegri færsla, en hin var góð.  Yndisleg barnabörnin þín.  Knús 

Ásdís Sigurðardóttir, 23.3.2008 kl. 13:38

2 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Fyrirtækið, Hallgerður mín, heitir Arrogant Cat og er rándýrt helv.. en ógeðslega flott hönnun.  Maysa mín gaf mér brjálaðan kjól í afmælisgjöf og hann var DÝR.  Segjum að hann hafi kostað meira en 200 pund.  Spyr Maysuna því ég er sjálf í hugleiðingum vegna stívélanna.

Takk Ásdís.

Jenný Anna Baldursdóttir, 23.3.2008 kl. 13:50

3 identicon

Páskakveðjur til þín og fallegu fjölskyldunnar þinnar

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 23.3.2008 kl. 13:52

4 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

æi  Þú ert yndisleg Jenný mín knús á þig og á fallegu barnabörnin.

Gleðilega páska til ykkar allra.

Kristín Katla Árnadóttir, 23.3.2008 kl. 13:59

5 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ég skal athuga Hallgerður hvort þeir eru með búð í Köben.  Læt þig vita á morgun.

Jenný Anna Baldursdóttir, 23.3.2008 kl. 14:44

6 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Það sama hér - rak augun strax í stígvélin - mér finnst það heillamerki að maður er kki dauður ennþá og hefur neistann enn fyrir fallegum hégóma mundu sumir segja - það er þá bara í lagi.

En börnin eru samt yndislegust þrátt fyrir fagurkerasýkina. Og ég verð með þér í anda að knúsa börnin.

Edda Agnarsdóttir, 23.3.2008 kl. 15:31

7 Smámynd: Hugarfluga

Hvusslass endaleysa af fríðleiksfólki er þetta eiginlega? Erill blessaður virkar enn ömulegri en nokkru sinni, hafi það verið mögulegt.

Njóttu kvöldverðarins í faðmi familjunnar. Pís át.

Hugarfluga, 23.3.2008 kl. 15:58

8 Smámynd: Brynja Hjaltadóttir

Hnífur í páskaeggi?  Ok skil...flott færsla...líka þessi um svínið Eril...

Vildi að ég væri í London að moka snjó...eða eitthvað..

Gleðilega páska Jenný

Brynja Hjaltadóttir, 23.3.2008 kl. 16:00

9 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Gleðilega páska og góða skemmtun í matarboði með krúsidúllum

Hrönn Sigurðardóttir, 23.3.2008 kl. 17:57

10 identicon

Gott að fá smá birtu í bloggið, eins og ég sagði við manninn minn í dag, þegar hann hélt ekki vatni yfir einhverjum leik í UK.  Ég vil bara fá að vita að það er ekki venjulegur laugardagur með ensku knattspyrnunni.  Henti honum út á einhvern bar og setti oratoriu Backs í spilarann,kveikti á kertunum, skreytti matarborðið fyrir kvöldið.

Er alltaf með svona nostalgíu yfir páskadegi og föstudeginum langa.

Vil hafa allt lokað og finna að það er öðruvísi helgi en venjuleg.

Gleðilega páska !

Helga (IP-tala skráð) 23.3.2008 kl. 19:08

11 Smámynd: Björg K. Sigurðardóttir

Gleðilega hátíð til þín og þinna!

Dásamleg myndin af Jennýju Unu - brosið hennar svo fallegt og einlægt. 

Björg K. Sigurðardóttir, 23.3.2008 kl. 21:30

12 Smámynd: Ía Jóhannsdóttir

Jamm veit ekki hvað er að gerast hér í henni veslu.  Vaknaði í morgun og eitthvað hvítt stöff huldi alla landareignina.  Auðvitað hvæsti ég med det samme á minn elskulega, hvað í andsk. hann hefði verið að gera í mogun.  En þetta hangir nú ekki lengi hér frekar en í London.  Góða páskarest þú eðalkvinna.

Ía Jóhannsdóttir, 23.3.2008 kl. 22:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 51
  • Frá upphafi: 2985882

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 51
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband