Leita í fréttum mbl.is

Snobbaður krakki - svo skömm er að

Ég var að velta því fyrir mér hvort ég ætti að breyta nafninu mínu.  Sko, þá meina ég að skella mömmunafni með og þá yrði ég (það sem ég hef alltaf verið) Jenný Anna Önnu og Baldursdóttir.  Hipp og kúl, verð ég að segja.  Þetta er nefnilega í tísku.

Mér finnst þetta krúttleg nýjung.  Enda engin ástæða til annars en að bera nöfn beggja höfunda.  Það þurfti tvo til og þarf enn.

En..

ég er of íhaldssöm til að fara að breyta nafninu mínu.

Þegar ég var lítil langaði mig til að heita Rósalín (OMG).  Ég átti nefnilega bók um prinsessu sem hét því frábæra nafni.  Langaði líka til að heita einhverju einföldu nafni því heimurinn var ekki löðrandi í Jennýjum á bernskuárum mínum og það nánast snérust höfuð, þegar nafnið mitt var nefnt.

Mig langaði líka til að hafa eftirnafn (svona Andersen, Jensen, Ibenslusse eða Lejonhuvud), því það var yfirleitt fólk sem bjó í stórum húsum, hélt ég sko, en ég rannsakaði það aldrei nánar.  Ég sé nú, þegar ég rifja þetta upp, hins vegar, að ég hef verið afskaplega snobbað barn.  Ég sem er komin af frábæru alþýðufólki sem ég er að rifna úr stolti yfir að tilheyra. Hm.. maður breytist.

Ég er afskaplega fegin að ég lét nafnið mitt standa. 

En mér finnst þessi siður svo dúllulegur.

Sara mín yngsta hefur gefið út þrjár ljóðabækur, þar kallar hún sig Söru Jennýjar.

Ætli ég geti dílað við dætur mínar um að kalla sig;

Helgu Jennýjar og Bjarkadóttur (hún þyrfti að droppa Laxdalsnafninu).

María Greta Jennýjar og Einarsdóttir og

Sara Hrund Jennýjar og Einarsdóttir???????????

Hm..

.eða láta það enda á Jennýjardóttir.

Kominn tími til að setja mig í fyrsta sætið, primus motor sem ég er.

Tala við stelpurnar.

Úje.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Frú Jenný Anna Ibenslusse-Lejonhuvud..... hljómar vel snobbað

Jónína Dúadóttir, 22.3.2008 kl. 14:07

2 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Systirdóttir mín heitir Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir!

Edda Agnarsdóttir, 22.3.2008 kl. 14:17

3 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Mig langaði alltaf að búa í Kastala!! Með útsýni yfir ríki mitt

Hrönn Sigurðardóttir, 22.3.2008 kl. 14:20

4 Smámynd: Ragnheiður

Ragnheiður Stellu og Hilmarsdóttir ........

Öhh nei takk...annars þoldi ég illa þetta ranglæti að heita bara EINU nafni og systa sem hét tveimur. Og heita svo í höfuðið á lauslátri biskupsdóttur var nú til að kóróna skömmina.

Ég hef aldrei haft áhuga á að búa í kastala, held að það sé raki í þeim og svo var ég skíthrædd um að detta í kastalasíkið. Fullt af slýi og svoleis vibba

Ragnheiður , 22.3.2008 kl. 14:32

5 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Þetta er auðvelt hjá mér sko, þau bæta bara öll við Cesilnafninu sem eftirnafni hehehehe...Bára Aðalheiður Cesil, Skafti Cesil, Ingi Þór Cesil, og Júlíus Cesil.  Hann yrði náttúrulega næstum eins og Júlíus Cesar, bara með smá stafabreytingu, hver var að tala um kónga og kastala, hvað um Keisara.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 22.3.2008 kl. 14:42

6 Smámynd: Lára Hanna Einarsdóttir

Hvað rúmast margir stafir í tölvukerfinu hjá Þjóðskrá? Þar er ekki hægt að skrá alla með fullu nafni og þeir þrjóskast við að breyta því þótt tölvugúrúar hamri á því að það ætti ekki að vera neitt mál.

Ansi er ég hrædd um að Lára Hanna Guðbjargar- og Einarsdóttir yrði kerfinu ofviða... 

Lára Hanna Einarsdóttir, 22.3.2008 kl. 14:47

7 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

Mér finnst Róslín betra en Rósalín.....
Mig langaði ekki að heita Róslín Alma, frekar Róslín Palma!

Róslín A. Valdemarsdóttir, 22.3.2008 kl. 21:18

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 3
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 52
  • Frá upphafi: 2985883

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 52
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband