Leita í fréttum mbl.is

Pirrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrr

 28

Rosalega sem ég er pirruð og full sjálfsvorkunnar.  Ég er með flensu (hita, beinverki, höfuðverk og lélegan balans í skapi), ég hósta og hósta og það suðar fyrir eyrunum á mér.

Í allan dag hef ég leyft sjálfri mér að gervonskast út í smáatriði.

Mig langar að þvo eldhúsgólfið.  Hvern LANGAR að þvo gólf?  Mig, af því ég get það ekki og auðvitað þeim fjölmörgu sem skúra gólffleti fyrir feit laun.Devil

Mið langar að henda mér í vegg út af PR-leikritinu með prinslufsuna í Bretlandi.  Líklegt að hann hefði einhvertímann verið settur í hættu! Jeræt.  Trúir einhver þessari fáránlegu uppfærslu? 

Nei, ég ætla ekki að búa til lista, ég á ekki vitund bágt, smá flensa rýkur úr manni fyrr en varir.

En mig langar samt að ulla feitt á breska kóngaliðið. 

Búin að því.

Unaðsleg líðan.

Æloflæf.

Later

Úje 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: M

Þetta er nákvæmlega sama tilfinning og þegar ég var í prófum í denn og eða veik. Þá langar mann að gera jólahreingerninguna.  Vittu til sú tilfinning hverfur um leið og þú hressist sem verður vonandi sem fyrst

M, 1.3.2008 kl. 19:34

2 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

jamm - hver trúir því.....?

Hrönn Sigurðardóttir, 1.3.2008 kl. 19:35

3 identicon

 

Sama hér.Mikil skúringaþörf kemur yfir núna tegar veikindi eru að hrella mig.Annars tek ég 2500 til 5000 á tímann svart fyrir eina gólfyfirferð.hehehehehehe.

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 1.3.2008 kl. 19:38

4 Smámynd: Þröstur Unnar

Akstur innifalin Birna Dís?

Þröstur Unnar, 1.3.2008 kl. 19:42

5 Smámynd: Svanhildur Karlsdóttir

Skil þig vel, en farðu vel með þig Jenný mín

Svanhildur Karlsdóttir, 1.3.2008 kl. 19:44

6 Smámynd: Kolgrima

Ég elska bresku konungsfjölskylduna  þótt mér finnist hún hafa misst alltof marga úr sínum röðum. Hver man ekki eftir Margréti (systur Elísabetar) og sæta ljósmyndaranum? Díönu og Fergí á skíðum? Fergí með krúttflugvélar í tíkarspenunum? Svo eru ungu prinsarnir svoo sætir æ mín it. Búin að fylgjast með þeim frá fæðingu.

Góðan bata elsku Jenný, ef allt um þrýtur geturðu örugglega fengið flíspeysu lánaða hjá Dúu ef þér verður kalt. 

Kolgrima, 1.3.2008 kl. 20:14

7 Smámynd: Guðjón H Finnbogason

Góðan bata,kvefið tekur enda,bara hvenær.

Guðjón H Finnbogason, 1.3.2008 kl. 21:03

8 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Knús ljúfust

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 1.3.2008 kl. 21:36

9 Smámynd: Markús frá Djúpalæk

Velkomin í hópin. Það sem pirrar mig mest er að röddin er horfin. Hvernig talar maður raddlaus?  

Markús frá Djúpalæk, 1.3.2008 kl. 21:55

10 Smámynd: Markús frá Djúpalæk

Hópinn meinti ég. Það var einhver vírus eða baktería sem át n-ið í fyrstu útgáfunni

Markús frá Djúpalæk, 1.3.2008 kl. 21:55

11 Smámynd: Steingrímur Helgason

Já, er nú verið að pirrast & bloggpizza á okkur kóngafólkið...

Ekkert er nú heilagt þegar skítugur er heimaflórinn...

Steingrímur Helgason, 1.3.2008 kl. 22:36

12 Smámynd: Adda bloggar

Adda bloggar, 1.3.2008 kl. 23:54

13 Smámynd: Bjarndís Helena Mitchell

Láttu þér batna fljótt.

Bjarndís Helena Mitchell, 2.3.2008 kl. 03:28

14 Smámynd: Tiger

  Kóngafólk, fojj - með þjóna á hverjum fingri til að skúra fyrir sig og elda og skeina - á meðan þau eru lasin.. eða hvernig er það - verða svona vellauðugar manneskjur nokkuð veikar, nema þá á geði kannski? Hmmm... veik á geði + vellmikillauður, Jenný, ertu orðin rík af blogglögsóknum?

Tiger, 2.3.2008 kl. 03:58

15 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Mér er slétt sama hvorum megin veggjar kóngafólk liggur, hef meiri áhyggjur af bloggvinkonu sem langar til að skúra gólf

Jónína Dúadóttir, 2.3.2008 kl. 09:03

16 Smámynd: Svala Erlendsdóttir

Engar áhyggjur, þetta með að langa að skúra gólfið líður hjá um leið og þú hressist.  Sofðu bara vel og lengi með 2 sængur og vatnsbrúsa þá fer þetta allt að koma

Svala Erlendsdóttir, 2.3.2008 kl. 11:13

17 Smámynd: Gunnar Helgi Eysteinsson

Hef ekkert að segja vill bara láta vita af mér

Gunnar Helgi Eysteinsson, 2.3.2008 kl. 21:29

18 identicon

Það getur samt verið sorglegt fyrir hermann að vera drepinn bara af því að prinsinn var í hersveitinni hans, hann er víst ekki einn á flandri úti í eyðimörkinni blessaður. En annars vona ég að þér batni fljótt:)

Sigrún Magnúsdóttir (IP-tala skráð) 2.3.2008 kl. 22:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (5.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 35
  • Frá upphafi: 2985799

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 35
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband