Fimmtudagur, 28. febrúar 2008
Bölvuð brussan
Ég ætti ekki að skrifa þessa færslu, vegna hættu á frekari sjúkdómsgreiningum, en af því mér er slétt sama hvað fólki út í bæ finnst svona yfirhöfuð, meðan ég er sjálfri mér trú, þá deili ég með ykkur skemmtilegri reynslu minni frá deginum.
Þetta er játningablogg.
Ég er bölvuð brussa.
Eða skellibjalla, en það er of krúttlegt orð til að lýsa því sem ég er búin að afreka í dag, af því að ég flýtti mér of mikið, sást ekki fyrir og hegðaði mér ekki í samræmi við þær reglur sem ég hef sett mér í edrúlífinu mínu (hugsa, taka ákvörðun, framkvæma. Í þessari röð sko) . Þetta var ekki stórvægilegt, nema hreinsikostnaður á bíl og fötum, kemur til með að kosta hvítuna úr augum mér. Hehemm.
Ég átti að mæta á tiltekinn stað kl. 13,00 á dottinu.
Ég var í seinna lagi og þegar ég var komin út í bíl mundi ég eftir að ég hafði gleymt ákveðnum pappírum og gleraugunum mínum á eldhúsborðinu.
Ég út úr bílnum og skellti hurðinni blíðlega á höndina á mér, stökk upp stigann og datt á hausinn og meiddi mig í hnénu. Komst áfallalaust út í bíl aftur með fenginn.
Tók viðkomandi pappíra, ásamt sígópakka, kveikjara, gleraugum og fleiru og dúndraði í handtöskuna en gleymdi að ég hélt á kókflösku (diet, ég er sykursjúk addna) og hellti henni yfir mig og bílinn á mjög skipulagðan hátt. Það var pollur á peysunni minni, gallabuxunum og kápan rennandi blaut. Bílsætið er útatað.
Í dag ætla ég ekki að hreyfa mig nema á milli stóla, og ég ætla að gera það ofurvarlega.
Enda er ég með bullandi flensu. Jóna smitaði mig í gegnum símann í gærkvöldi.
Farin að lesa.
Hóst.
Meginflokkur: Bloggar | Aukaflokkar: Dægurmál, Lífstíll, Vefurinn | Breytt s.d. kl. 15:16 | Facebook
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.1.): 3
- Sl. sólarhring: 4
- Sl. viku: 45
- Frá upphafi: 2987323
Annað
- Innlit í dag: 3
- Innlit sl. viku: 43
- Gestir í dag: 3
- IP-tölur í dag: 3
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Færsluflokkar
- Bláar eyllýar
- Bloggar
- Bækur
- danskar kjötbollur með sósu
- Dómar
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Femínistablogg
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Halloki
- Hamfarablogg
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Hneyksli
- Íþróttir
- Jólafár
- Kjaramál
- kvikindiskapur og illt umtal
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Lúkas
- lygasögur
- Löggæsla
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Samgöngur
- Sjálfsdýrkun
- Sjónvarp
- Snúra
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Synt til sigurs
- Synt yfir sundið
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
- Þvagleggur
Eldri færslur
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
Tenglar
Tónlist
Vinir og fjölskylda
Vinkonur
Ég les alltaf
Netmiðlar
Tónlistarspilari
Bloggvinir
- draumur
- jonaa
- hronnsig
- larahanna
- skessa
- eddaagn
- amman
- annabjo
- annambragadottir
- annaragna
- asthildurcesil
- kolgrima
- birnan
- bjarnihardar
- brjann
- brylli
- christinemarie
- danjensen
- lillagud
- disadora
- einari
- einarorneinars
- emm
- estro
- evabenz
- fifudalur
- garun
- gelgjan
- gunnarggg
- halkatla
- halo
- hildurhelgas
- heidah
- helgamagg
- hildigunnurr
- iaprag
- hlynurh
- hugarfluga
- hugsadu
- ibbasig
- katrinsnaeholm
- ingolfurasgeirjohannesson
- jogamagg
- jara
- jensgud
- katlaa
- krummasnill
- krissa1
- lehamzdr
- ktomm
- laufeywaage
- lauola
- lindalinnet
- madamhex
- maggij
- majaogco
- mariakr
- markusth
- meistarinn
- motta
- nimbus
- olinathorv
- pollyanna
- ragnarfreyr
- ragnhildur
- ringarinn
- rosa
- roslin
- saedis
- sailor
- salkaforlag
- skordalsbrynja
- skrifa
- snar
- soley
- steingerdur
- steinnhaf
- steinunnolina
- stinajohanns
- sunnadora
- svetlana
- thuridurbjorg
- tibet
- tigercopper
- toshiki
- unns
- valgerdurhalldorsdottir
- wonderwoman
- vefritid
- vest1
- bidda
- zeriaph
- killjoker
- sisvet
- gudrununa
- dora61
- possi
- gelin
- silfri
- jyderupdrottningin
- gretaulfs
- sibba
- baldvinj
- stjaniloga
- bokakaffid
- kreppukallinn
- jonerr
- gerdurpalma112
- adhdblogg
- astafeb
- snjolfur
- haddih
- brell
- reisubokkristinar
- little-miss-silly
- baldis
- olofdebont
- kikka
- jarnar
- thorolfursfinnsson
- birnast
- vrkristinn
- leifur
- astroblog
- bjarkey
- manisvans
- siggisig
- nordurljos1
- gunnaraxel
- ragnar73
- sij
- kreppu
- runirokk
- gotusmidjan
- dorje
- slembra
- skari60
- must
- fhg
- aevark
- fridaeyland
- hedinnb
- cakedecoideas
- taraji
- audurproppe
- kollakvaran
- finni
- arnaringvarsson
- samstada
- drum
- gretarogoskar
- tbs
- vistarband
- valdivest
- fingurbjorg
- gustichef
- skulablogg
- andreskrist
- fasteignir
- rognvaldurthor
- helgatho
- gullfoss
- bailey
- jennystefania
- gattin
- annaandulka
- ansy
- gumson
- berg65
- bjarnimax
- brahim
- elin
- gudlaugbjork
- dramb
- gudrunkatrin
- hvilberg
- himmalingur
- ingaragna
- naflaskodun
- kiddirokk
- sigurborgkrhannesdottir
- joklamus
- stjornlagathing
- saemi7
- unnurgkr
Athugasemdir
Æi Jenný - vona að þér batni flensan sem fyrst, svo ömurlegt að liggja í slíku - nema maður fái frí í vinnu á meðan og geti bloggast meira. Ætti að skamma Jónu - eða þakka henni?
Skellibjalla var hún kölluð litla Glingló sem var félagi Péturs Pan í samnefndu ævintýri, með eindæmum afbrýðisöm og skapheit - flögrandi um allt og snögg í snúningum. Ekki ertu Glingló - eða hvað? Uzz og ekki brussa stúlka, það er svo hrikalega neikvætt - hvað með létt-óheppin eða nett-misupplögð..?
Passaðu þig á sykurlausum drykkjum því það er svo mikið af aukaefnum skellt í slíka drykki - skilst mér. Mundu að hafa augun lokuð á meðan þú borgar hreinsikostnað - til að missa ekki hvíturnar dúllan mín..
Tiger, 28.2.2008 kl. 15:24
Heyrðu addna brussan þín, þér virðist batnað í fætinum fyrst þú getur hlaupið svona handarsködduð upp og niður stiga eins og ekkert sé
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 28.2.2008 kl. 15:27
Ok.... that's it!... við erum líklega bara rosalega mikið skyldar/skildar... Mér leið eins og ég væri að lesa um sjálfa mig..nema ég drekk ekki kók
En vonandi nærðu þessum flensuskít úr þér sem fyrst! hún er algjörlega glötuð... skammastuín Jóna!
Signý, 28.2.2008 kl. 15:30
Góðan bata skellibjallan þín
Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 28.2.2008 kl. 15:36
Fall er fararheill stendur einhvers staðar
Ía Jóhannsdóttir, 28.2.2008 kl. 15:36
Góðan bata og reyndu að passa þig. mín kæra.
Kristín Katla Árnadóttir, 28.2.2008 kl. 15:58
Með flissandi en einlægri samúð óska ég þér góðs bata af þessari ótrúlega smitandi pest
Kolgrima, 28.2.2008 kl. 16:09
þetta gæti alveg hafa verið ég
Dísa Dóra, 28.2.2008 kl. 16:33
Sé alveg fyrir mér blíðlega bílhurðina skella á hönd frúarinnar.
Annars finnst mér stórkostlegast í þessu að þér skuli takast að meiða þig í hnéinu dettandi á hausinn. asninn þinn addna
Jóna Á. Gísladóttir, 28.2.2008 kl. 17:12
Bara svo það sé á heinu: Ég er ekki að ýkja. Ekki nokkurn skapaðan hlut. Var að lagast í hnénu frá því um daginn en sem betur fer var þetta hitt hnéð og áverkar ekki stórkostlegir. Já það er vont að loka blíðlega á höndina á sér. Muhahahahahaha
Jenný Anna Baldursdóttir, 28.2.2008 kl. 17:36
Heyrðu ertu kannski frá Brussel, brussan þín? kannast reyndar allt of vel við svona brussugang, ætla yfirleitt að geira meira og hraðar en ég get framkvæmt skammarlaust, farðu vel með þig mola mín. ótrúlega leiðinleg hún Jóna að smita þig svona gegnum síma, er þetta gamla landlínukerfið??
Ásdís Sigurðardóttir, 28.2.2008 kl. 18:26
Bestu kveðjur og betri von um bata
Linda Linnet Hilmarsdóttir, 28.2.2008 kl. 18:54
Sumir dagar eru ótrúlegir......sjúkk hvað þú ert nú heppin að geta mökkað inni hjá þér, verandi með flensu og sollis.... láttu þér batna sem fyrst í hendi, fæti og flensu....
Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir, 28.2.2008 kl. 19:03
Shit...vinsamlegast vertu í rúminu ?
Ragnheiður , 28.2.2008 kl. 19:21
Vinsamlegast hættu að tala um þessa "sjúkdómsgreiningu" sem var ekkert annað en vinsamleg ábending.... ANNARS sjúkdómsgreini ég þig sjálf addna maníusjúklingurinn þinn sem getur ekki hætt að tala um eitthvað.... Sverð´a þúrt verri en ég.... eða amk jafn slæm!
Vorkenni þér ekkert að vera með flensu addna brussan þín.... ég er nýbúin að fá tvær!! JÁ FOKKING tvær helvítis flensur
Heiða B. Heiðars, 28.2.2008 kl. 20:14
Ææi, en sumir dagar eru svona, gangi þér vel á morgun og næstu daga
Svanhildur Karlsdóttir, 28.2.2008 kl. 20:21
Virkar stundum að flýta sér hægt, samt svolítið erfitt að læra það...
Jónína Dúadóttir, 28.2.2008 kl. 20:27
Blessuð góða, fáðér hjálm og hnéhlífar og olnbogahlífar og svona rúbbípeysu sem er með púðum yfir axlir og bringu og alles. Þá ertu góð út í daginn
Svala Erlendsdóttir, 28.2.2008 kl. 20:33
Heiða:Sjúkdómsgreining, sjúkdómsgreining, sjúkdómsgreining, sjúkdómsgre..n.in....gMátulegt á þig aulinn þinn að fá tvær flensur og vonandi færðu þær sem flestar
Annars allir í góðum gír bara, ha?
Jenný Anna Baldursdóttir, 28.2.2008 kl. 20:49
Bíddu... ertu með flensu því að þú ert brussa ? eða brussa því að þú ert með flensu ? eru einhver tengsl þarna á milli ?
Brynjar Jóhannsson, 28.2.2008 kl. 21:09
Þúaddna, vera góðari við Heiðari ...
Steingrímur Helgason, 28.2.2008 kl. 21:10
Steingrímur ég elska hana Heiðu sérðekkihjartaðmaður?
Jenný Anna Baldursdóttir, 28.2.2008 kl. 21:14
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.