Leita í fréttum mbl.is

Þreytt, þreytt og þreytt

Uppáhaldsdagurinn að kvöldi komin og ég sé vart út úr augunum af þreytu.

Ekkert venjulegur dagur, með barnsfæðingu, spennunni sem fylgdi, léttinum, svo vorum við með Jenný Unu sem er orðin stórasystir, Maysan mín, Robbi og Oliver komu í heimsókn  og ofan á allt þetta kviknaði í hjá foreldrum Eriks, hins nýbakaða föður, úti í Svíþjóð.  Það reddaðist þó fyrir horn, en það var verið að kveikja upp í gamalli kamínu til hátíðabrigða og fjandinn varð laus.

Brunabílinn byrjaði á að fara til grannans áður en hann komst á staðinn.  Eldur slökktur og skemmdir í lágmarki en þetta var sem betur fer ekki aðal íbúðarhúsið.  Stundum er gott að eiga fleiri en eitt hús.  Hehemm.

Þetta er sum sé dagur sem lengi verður í minnum hafður.

Hrafn Óli Eriksson er formlega kominn í heiminn.  Já hann heitir Hrafn Óli, það er löngu ákveðið og hér er enginn feluleikjahégómi með nafngiftir hjá henni dóttur minni elskulegri.  Hún segir að allir eigi rétt á nafni og eigi að fá það án tafar.  Ég er sammála.

Ég vona að nágranni minn, hver sem hann er hér í stigagangi lesi ekki bloggið mitt, en ég sendi honum eitraðar hugsanir í kvöld þegar hann sauð þá úldnustu skötu sem sögur fara af.  Ég sem sat sárasaklaus inni á mínu menningarheimili, þegar viðurstyggileg nálylktin smeygði sér að vitum mínum og nærri því, hafði mig undir.

Ég lét mig hafa það af því það eru að koma jól.  En aumingja meltingarfærin í skötuætunum.  Vó hvað þau hljóta að sjokkerast.  Alveg: Í hverju erum við lent?

Hrafn Óli er yndisfagur drengur og alveg nákvæm eftirlíking af systur sinni þegar hún fæddist.

Umrædd systir sefur með jólasængurverið sitt og er svo sæl yfir að jólin séu loksins að koma á morgun.

P.s. mynd af nýbura verður sett inn um jólin.

Falalalalalala og það í alvöru.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Jiiii en gaman. Til hamingju!!! -Og gleðileg jól.

Sóley Tómasdóttir (IP-tala skráð) 23.12.2007 kl. 22:41

2 Smámynd: Sunna Dóra Möller

Mikið skil ég þig að þú sért þreytt, en þetta hefur greinilega verið ansi merkilegur og stór dagur!

Til hamingju með hann og sofðu rótt !

péess...skata er ógeð !

Sunna Dóra Möller, 23.12.2007 kl. 22:44

3 Smámynd: Bjarndís Helena Mitchell

Innilegar hamingjuóskir með Hrafn Óla. Gleðileg jól

Bjarndís Helena Mitchell, 23.12.2007 kl. 23:08

4 Smámynd: Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir

  • Ha  fékk ég nafna þetta er náttla gegt flott nafn. En varðandi skötuna þá má nú öllu venjast svo gott þyki. Var sjálf að koma úr skötuboði og fékk þá bestu skötu sem ég hef á ævinni smakkað, Jenný trúðu mér...þetta er gott.

En annars til hamingju en og aftur með barnabarn og nafngift... mín börn fengu líka öll nafn um leið og þau fæddust, ég hvíslaði því að þeim um leið og þau komu í fangið á mér

Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir, 23.12.2007 kl. 23:09

5 Smámynd: Sigrún Ósk Arnardóttir

Til hamingju með nýjasta barnabarnið og gleðileg jól!

Sigrún Ósk Arnardóttir, 23.12.2007 kl. 23:22

6 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Innilega innilega og aftur innilega til hmingju með Hrafn Óla bróður Jennýar Unu dótturson þínn...mikið er nafnið fallegt og drengurinn greinilega undurfagur ef hann líkist systur sinni svona mikið.

Elsku Jenný mín.. þetta er greinilega mikill þórláksmessudagur.hv+ildu þig og taktu fagnandi á mótijólum. Mér finnst að við ættum að fara í afsleppelsiskaffitár á milli jóla og nýárs og sjást áður en árið líður i aldanna skaut...og kemur aldrei til baka.

Jólaknús á þig og þína

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 23.12.2007 kl. 23:41

7 Smámynd: Signý

Til hamingju með nýjasta meðliminn og nafnið á honum líka.. það er flott...

Eigðu gleðileg jól!

Signý, 24.12.2007 kl. 00:09

8 identicon

Sæl Jenný Anna, og til hamingju með Hrafn Óla!

Af skötu er það að segja að hún er besta forvörn gegn, vetrarpestum!  Ég er búin að fara í 2 skötuveislur í dag og er næstum viss um að ég er búin að slá á allar pestir næstu daga, enda eins gott þar sem ég er að vinna alla jóladagana!!

Gleðileg jól til þín og þinna og takk fyrir frábært blogg!

Sigrún Jónsdóttir (IP-tala skráð) 24.12.2007 kl. 00:38

9 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Ég má hundur heita ef Hrafn Óli mun ekki tengjast listum á einhvern hátt á fullorðinsárum. Dettur einna helst í hug kvikmyndagerð. Þetta nafn er snilld. Ótrúlega kraftmikið af svo stuttum og laggóðum nöfnum að vera. Til hamingju Jenfo mín. Skilaðu hamingjuóskum til allrar fjölskyldunnar frá mér. Og knúsaðu Einar fyrir fallegu orðin um daginn.

Jóna Á. Gísladóttir, 24.12.2007 kl. 00:56

10 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

ELSKU HJARTANS JENNÝ MÍN og þið báðar nöfnurnar  og þið öll, innilega til hamingju með litla prinsinn, hann ber konunglegt nafn og mun örugglega bera það vel. Yndislegt að fætt skuli vera heilbrigt og fallegt barn. Vona að þú gætir að heilsu þinni og verðir svo dugleg að setja inn myndir af afleggjurum næstu daga, það verður gaman að sjá Jenný Unu í flotta kjólnum frá Brynju, Olivers ömmu.  Njóttu daganna mín kæra. Skrilljón kossar og allt það 

Ásdís Sigurðardóttir, 24.12.2007 kl. 01:03

11 Smámynd: Ragnheiður

Var búin að gratulera með drenginn en geri það hér með aftur og til hamingju með þetta fallega nafn. Nú bíð ég spennt eftir að heyra hvað Jenný Una hefur að segja um hinn unga mann

Ragnheiður , 24.12.2007 kl. 01:13

12 Smámynd: halkatla

þráttfyrir svona felulegt og lágstemmt falalala skynjar maður gleði þína Jenný Anna! Til hamingju, þið öll, ég er fegin að heyra að allt gekk svona vel - RISAKNÚS

halkatla, 24.12.2007 kl. 01:44

13 Smámynd: halkatla

af minn hét Óli, ferlega gott nafn ;) og Hrafninn er flottasti fuglinn, maður bráðnar bara þetta er svo kúl

halkatla, 24.12.2007 kl. 01:45

14 Smámynd: Marta B Helgadóttir

 Innilega til hmingju með Hrafn Óla

Marta B Helgadóttir, 24.12.2007 kl. 02:07

15 Smámynd: HAKMO

Til lukku með litla! Fallegt nafn á drengnum. Gleðileg jól

HAKMO, 24.12.2007 kl. 03:27

16 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Innilegar hamingjuóskir með Hrafn Óla  Kröftugt nafn á dreng sem ákvað á síðustu stundu að skjótast sjálfur í heiminn!!

Hrönn Sigurðardóttir, 24.12.2007 kl. 07:05

17 Smámynd: Þóra Sigurðardóttir

Til hamingju með nýja barnabarnið og þetta flotta nafn.

Eigið gleðileg jól 

Þóra Sigurðardóttir, 24.12.2007 kl. 08:18

18 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Nú er ég orðin jólavæmin og sit hér með tárin í augunum yfir öllum þessum fallegu kveðjum frá ykkur.  Ég er að ná því núna að sá stutti er fæddur, gerði það ekki í gær vegna þreytu.  Lífið er yndislegt.  Jenný Una á ábygglega eftir að láta gullkornin hrynja af vörum sínum varðandi bróður sinn ásamt fleiru, en núna er hún ekki mjög skrafglöð því hún er að horfa á "baddnefni" og borða MogM.  Meiri uppeldið hjá barninu.

Knús og takk aftur

Jenný Anna Baldursdóttir, 24.12.2007 kl. 08:52

19 Smámynd: Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir

Til hamingju með Hrafn Óla og Gleðileg Jól! ...

Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 24.12.2007 kl. 10:17

20 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Innilegar hamingjuóskir kæra mín,með nýjasta barnabarnið

Jónína Dúadóttir, 24.12.2007 kl. 10:54

21 Smámynd: Ester Júlía

TIL HAMINGJU :)))))))))) og GLEÐILEG JÓL !!

Ester Júlía, 24.12.2007 kl. 10:56

22 Smámynd: Gísli Hjálmar

 

Ég vil óska þér og þínum gleðilegra jóla og gæfuríks komandi árs. Jafnframt þakka ég skemmtileg bloggviðkynni á árinu sem er að líða ...

kv, GHs

Gísli Hjálmar , 24.12.2007 kl. 11:50

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 36
  • Frá upphafi: 2985887

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 36
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband