Leita í fréttum mbl.is

Eruð þið hjólhýsapakk Moggabloggarar?

Fyrst; örugg leið til að koma sér upp taugaáfalli fyrir jólin;

1. Dettið og snúið löppina, handleggina, hálsinn (DJÓK), fengið eyrnabólgu og fótfúa, eða óstjórnleg grátköst.  Ég lofa sökksess.

Jólagleðin mín týndist á slysó og húsbandið er niðurfrá að leita að henni.  Á meðan horfi ég á hemilið mitt í rús, mér til skemmtunar og hugarhægðar.

Það suðar fyrir eyrunum á mér og ég heyri mest lítð.  Kannski eins gott því fjölskyldan er ekki voða æst að vera í samsiptum við kvenkynsútgáfuna á Atla Húnakonungi(Devil)

Ég er samt sæt, edrú og ég sýð ágætis kartöflur.  Treysti því að það bjargi málum og ég verði ekki send á heimili yfir jólin.

Ég held að ég verði að reyna að ná upp jólaandanum fyrir morgundaginn.  Maysa mín kemur annað kvöld, hún verður að sjá mömmu sína í formi.  Það verður hreinræktað falalalala,

Drengur Söru og Eriksson lætur ekki á sér kræla.  Kannski kemur hann yfir borðhaldi á jóladag.  Það væri ekki leiðinlegt.

Egill Helgason veltir því fyrir sér hvort Moggabloggið sé hjólhýsagarður W00t, kannski, ætli Eyjan sé þá Sígaunalest og þau sem þar skrifa sígaunahyski? Hmmmmm

Meiri rígurinn í sumu fólki, mitt er best, hitt er glatað.  Úje og lalalalala

Og að lokum jólalag með bombu allra tíma fyrir ykkur boys and girls

MM

Súmíbítmíbætmíandkikkmí

Falalalalalala


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Heiða  Þórðar

karlrassgatið! hjólhýsa-hvað?

Heiða Þórðar, 21.12.2007 kl. 01:04

2 Smámynd: Steingrímur Helgason

Berðu samúðarkveðjumína til aðra heimilismeðlima út af ástandinu á þér , & bentu á frá mér að hægt sé að fá forsoðnar kartöflur í pokum, svona til að þú skemmir örugglega ekkert jólin fyrir þeim með því að staulast um fyrir þeim, nöldursama fatlafólið mitt...

Egill silfur er orðinn hálfgerður bronzkall, ég er alveg hættur að sjá Sóley fyrir honum.

Jamm, ég moggablogga, en ég er ekkert 'Trailertrash', enda á bara tjaldvagn.

Já, & hús..

Só, bætmí ..

Steingrímur Helgason, 21.12.2007 kl. 01:19

3 Smámynd: Þóra Sigurðardóttir

Gott að heyra að þú ert komin heim og næstum því heil á höldnu. Skítt.. með allt hitt

Eigðu gleðileg jól með þér og þínum

Þóra Sigurðardóttir, 21.12.2007 kl. 02:45

4 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

neeeee ég held ég sé ekki hjólhýsapakk, ég á bara tjald - en maður veit þó aldrei fyrr en allt í einu.......

lovjú

Hrönn Sigurðardóttir, 21.12.2007 kl. 08:34

5 Smámynd: Ragnheiður

Ja þegar menn þurfa að beita svona aðferðum til að fá umferð á síðuna sína, ja kona spyr sig ? Hvað vantar þá ?

Ég á nú ekki einusinni tjald en ég á hænsakofa

Ragnheiður , 21.12.2007 kl. 14:53

6 Smámynd: Hildigunnur Rúnarsdóttir

ætli sé ekki best að ég þegi, bara ;)

Hildigunnur Rúnarsdóttir, 21.12.2007 kl. 15:02

7 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Hildigunnur: Þ'u tileheyrir tveimur heimum, það vísar til umburðarlyndis.

Ragga: Segðu, en mörgum blaðamönnum er verulega illa við að almúginn bloggi.  Þess vegna er þetta skemmtilegra en ella. lalalala

Beta: Segðu Channel gleraugun á nefinu, Valentínó kjóllinn sáldrast í pífum um stofuna og tiaran á hausnum á mér er frá Tiffanís.

Hallgerður elska hjólhýsi en hef aldrei komið í eitt.

Steingrímur: Tjaldvagan?  You´re moving up in the world.

Hrönn og Þóra: Við erum sko andlegt (blogglegt) hjólhýsapakk.

Heiða: Þú verður að spyrja krulla.

Jenný Anna Baldursdóttir, 21.12.2007 kl. 15:11

8 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Mér finnst þetta nú ekki niðrandi.  Að vísu eru nokkur þorpsfífl í bloggþorpinu og einu færra eftir að sóknarbarnið hvarf.  Ég skil samt ekki af hverju þú hentir Samhyggð út. Hann er verður fulltrúi ásamt sparigatsgúrúinum Jóni Val. Hann er óttalegt krútt, sem á í svolitlu basli í einkalífinu. 

Samkvæmt kommentum hjá Jens, þá hefur hann lent í Ladyboy á Thailandi.  Svo fór hann að heiman fyririr ellefu árum og skildi eftir tvo hesta á fóðrum hjá öldruðum foreldrum, sem átu þessi hross.  Hann er Íþróttasagnfræðingur og systir hans var tekin fyrir að stela þvottagrind í Rúmfatalagernum. Vinur hans missti vinnuna í laugunum, fyrir að taka myndir af krökkum en fékk vinnu hjá fréttablaðinu í staðinn. Hann lánaði einhverjum bílinn sinn eitt augnablik og hefur ekki séð hann í margar vikur.

Mér sýnist að við ættum nú frekar að vera góð við hann.

Jón Steinar Ragnarsson, 21.12.2007 kl. 16:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 36
  • Frá upphafi: 2985887

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 36
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.