Leita í fréttum mbl.is

Ekki hægt að blogga um frétt - kannski bilað?

Er bilun á Moggablogginu?  Í fréttinni þar sem fjallað er um skilorðsbundinn 15 mánaða dóm yfir kennara sem var í kynferðissambandi við nemanda sinn, er möguleikinn að blogga um fréttina ekki fyrir hendi.

Er fólk hrætt um að tekinn verði Lúkasinn á kennarann?

Á dómarana (dómur fjölskipaður)?

Á þolandann?

Hvað finnst fólki um þessa röksemd héraðsdómarans?

"Manninum verði hins vegar virt til mikilla málsbóta, að gagnkvæmt ástarsamband hafi verið á milli hans og stúlkunnar og hann hafi lýst því, að fyrir sitt leyti hefði hann viljað halda því áfram og gera það opinbert. Því ákvað dómurinn að skilorðsbinda refsinguna að fullu."

Það kemur hvergi fram hversu gamall gerandinn er en fólk má ekki fara inn um vitlausar dyr á Íslandi án þess að það sé tekið fram hversu gamall sá hinn sami sé.  Hver er að vernda hvern hérna?

Þarna birtist pedófílahugmyndafræðin og Lólítuheilkennið skammlaust á prenti og sem röksemd fyrir vægari dómi.

Maðurinn átti í ástarsambandi við unglinginn.  Hva!

Eins og maðurinn sagði hérna um árið þegar hann var uppvís að sifjaspelli:

Telpurnar eru svo andskoti daðurgjarnar.

Hálfvitar.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kolgrima

þetta er með hvílíkum ólíkindum og hugsanir mínar gætu varðað við lög.

Kolgrima, 11.12.2007 kl. 20:36

2 Smámynd: Salvör  Kristjana Gissurardóttir

Mér finnst líka skrýtið að ekki megi blogga um fréttina og spyr eins og þú - hvern er verið að vernda? Fjölskipaðan dómstól? Hinn ákærða?

Annars er fyndið orðatiltæki að taka Lúkasinn á einhvern.

Ég bloggaði um að fá ekki að moggafréttablogga um þessa frétt.

Ég vil alla vega ekki taka þátt í þöggun samfélagsins á þessu máli og svipuðum málum. 

Salvör Kristjana Gissurardóttir, 11.12.2007 kl. 20:41

3 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

 Stupid   veit ekkert.

Ásdís Sigurðardóttir, 11.12.2007 kl. 20:45

4 identicon

Þetta er réttlæting á kynferðisofbeldi, nú segjast allir kynferðisbrotamenn vera ófeimnir við opið ástarsamband og þeir þurfa ekki að sitja inni, falleg ástarsaga eða hitt þó heldur.

Júlíus Freyr Theodórsson (IP-tala skráð) 11.12.2007 kl. 20:46

5 Smámynd: Ragnhildur Sverrisdóttir

"Ástarsamband" frá því að hún var tæplega 13 ára?

Afar sennilegt, eða hitt þó heldur.

Ragnhildur Sverrisdóttir, 11.12.2007 kl. 20:54

6 Smámynd: Kolgrima

Ætli það varði ekki við lög að tala um ástarsamband fullorðins manns við barn?

Kolgrima, 11.12.2007 kl. 20:55

7 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ég veit það ekki krakkar, en mér er alveg nóg boðið hérna núna.  Við eigum ekki að sitja þegjandi og hljóðalaust undir þessari skömm.

Svo er allt fljótandi í bloggfærslum á netinu þar sem konur (tel ekki karlana með) ráðast að femínistum fyrir öfgar vegna kæru á vísa fyrir klámfærslur.  Það virðist vekja heitari tilfinningar.

Hver andskotinn er að verða að forganginum í þessu samfélagi?

Jenný Anna Baldursdóttir, 11.12.2007 kl. 21:48

8 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Þetta heitir nú bara að taka lyfrarpylsuna á þetta Jenný mín.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 11.12.2007 kl. 21:50

9 Smámynd: Ingigerður Friðgeirsdóttir

Það er hægt að blogga um sænsku fréttin sem er svipað tilfelli en þar féll dómur en lítill að mínu mati.

Ingigerður Friðgeirsdóttir, 11.12.2007 kl. 22:06

10 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Það er haft eftir stúlkunni að hún hafi haldið þá að þetta væri ástarsamband, en geri sér grein fyrir því að dag að auðvitað var það ekki svo. Einhliða ástarsamband... er það til ?

Jónína Dúadóttir, 11.12.2007 kl. 22:28

11 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Jónína: Geta börn 13 ára í þessu tilfelli, staðið í ástarsambandi og það við fullorðinn mann sem á að sjá um uppeldi þeirra?

Árni: Kannski væri sniðugt að kanna hvaða reglur eru í gildi varðandi þetta.

Jenný Anna Baldursdóttir, 11.12.2007 kl. 22:32

12 Smámynd: Hugarfluga

Þvílíkt ógeð!! Gagnkvæmt ástarsamband 13 ára barns og fullorðins manns?? Hvað er í gangi???  Finnst líklegt að Árni hafi rétt fyrir sér með að verkfallsreglurnar séu ekki til staðar á mbl.is og það er auðvitað ótækt! Það setur að manni hroll.

Hugarfluga, 11.12.2007 kl. 22:49

13 identicon

Nógu slæmt að heyra í fréttum að það hefði verið talið honum til málsbóta að um gagnkvæmt ástarsamband (BTW: hvernig ætli þeir skilgreini ástarsamband?) hafi verið að ræða, enn verra að heyra það kallað miklar málsbætur Algjörlega óskiljanleg og fullkomlega óásættanleg röksemdafærsla hjá dómsvaldi. Arrggg

Anna Ólafsdóttir (anno) (IP-tala skráð) 11.12.2007 kl. 23:05

14 Smámynd: Páll Geir Bjarnason

Langafi minn var prestur og giftist fermingarbarni sínu sem var umtalsvert yngra...

 ...kann ég honum beztu þakkir fyrir tilvist mína og minnar fjölskyldu 

 Ps. Þetta þýðir ekki að mér finnist þetta ekki siðlaust. Karl langafi fór þó eðlilega boðleið með sitt kvonfang byggða á þeim samfélagsgildum sem þá voru við líði.

Páll Geir Bjarnason, 11.12.2007 kl. 23:23

15 Smámynd: Lára Hanna Einarsdóttir

Ætli það verði hægt að blogga við fréttina frá Ástralíu - ef Mogginn birtir hana - þar sem 9 menn voru sýknaðir/fengu skilorð fyrir að nauðga 10 ára stúlkubarni. Dómarinn, sem miðað við nafnið er kona, taldi sagðist nefnilega telja að barnið hafi verið samþykkt samræðinu. Fréttin er hér á RÚV.

Lára Hanna Einarsdóttir, 11.12.2007 kl. 23:26

16 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Sá þessa frétt í kvöld LH og var eimitt að hugsa það sama.

En í Ástralíu á að skoða öll dómsmál í málaflokknum 2 ár aftur í tímann vegna dómsins.

Jenný Anna Baldursdóttir, 11.12.2007 kl. 23:31

17 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Mér dettur nú bara í hug það sem Ómar blessaður söng um árið:

"Af þessu ætti að sjást, að það er erfitt að silgreina ást"! Eða hvað?

Magnús Geir Guðmundsson, 12.12.2007 kl. 00:10

18 Smámynd: Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir

Hvað í veröldinni á fullorðin maður  sameiginlegt með 13 ára unglingi?  Auðvitað er eitthvað meira en lítið að hjá viðkomandi manni.

Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir, 12.12.2007 kl. 00:20

19 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

mig skortir orð. Mér finnst við fara aftur á bak en ekki áfram.

Jóna Á. Gísladóttir, 12.12.2007 kl. 00:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (15.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 54
  • Frá upphafi: 2985867

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 54
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband