Leita í fréttum mbl.is

Sprengjulist

Sé ég listrænan gjörning út úr verkinu "þetta er ekki sprengja" eftir Þórarinn Inga Jónsson?  Nei ég geri það ekki og finnst þessi uppákoma frekar sjálfhverfur gjörningur, skreyttur með dassi af athyglisþörf.

En það sem er list fyrir einum er hégómi fyrir öðrum.  Ekki ætla ég að dæma um listrænt gildi þessa gjörnings.

Nú er listfrömuðurinn hæddur út um alla netheima.  Ekkert til sparað í andstyggilegheitum.

Ég skil það upp að vissu marki.

Það verður allt brjálað ef einhver hugsar um sprengju, hvað þá hlutgerir hana og kemur henni fyrir á opinberum stað.  Varla er hægt að ætlast til að fólk teygi fram álkuna til að lesa textann sem fylgir gripnum.  Svona; hm, bíðið þið krakkar mínir, pabbi ætlar að lesa hvað stendur á þessari rörsprengju, það er ekki víst að þetta sé alvöru sprengja, gæti verið listaverk og svo BÚMM. 

Halló, allur hinn vestræni heimur er á jaðri taugaáfalls eftir 11. september, með réttu eða röngu.

Þess vegna að ég held að Þórarinn hljóti að hafa reiknað með svona viðbrögðum.

Ef ekki þá er hann hreint ótrúlega bláeygður maðurinn.

Fólk má samt alveg halda sér innan velsæmismarka í sinni Þórðargleði, alveg óþarfi að hrauna yfir manninn.

Er annars í jólastuði, að kafna úr framkvæmdagleði.

Falalalala

 


mbl.is Hæðst að Þórarni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Svona; hm, bíðið þið krakkar mínir, pabbi ætlar að lesa hvað stendur á þessari rörsprengju, það er ekki víst að þetta sé alvöru sprengja, gæti verið listaverk og svo BÚMM. 

muuhaaaaa

Jóna Á. Gísladóttir, 7.12.2007 kl. 09:43

2 Smámynd: Hildigunnur Rúnarsdóttir

Þeir í kanadíska dómskerfinu hefðu átt að henda honum inn með orðunum:  Þetta er ekki dómur.  Þetta er ekki fangelsi...   (rænt úr kommentakerfi Stefáns Páls)

Hildigunnur Rúnarsdóttir, 7.12.2007 kl. 10:37

3 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Hildigunnur: Góður þessi.

Jenný Anna Baldursdóttir, 7.12.2007 kl. 11:00

4 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Jamm strákstaulinn, bláeygur eða illa lesin.  Sumir bara misreikna sig alveg herfilega.  Ekki vildi ég vera í hans sporum. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 7.12.2007 kl. 12:05

5 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Það verða nú að vera einhver takmörk... er það ekki ? Td að kúka í fötu og halda því fram að það sé list af því að viðkomandi er búinn að fara í listaskóla eða hvað það er nú kallað í dag. Ef ég kúka í fötu og kem henni fyrir á almannafæri, yrði ég kölluð öllum illum nöfnum og lokuð inni á geðdeild, en ég er líka ekkert búin að fara í listamannaskóla...

Jónína Dúadóttir, 7.12.2007 kl. 12:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.11.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 16
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 14
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband