Mánudagur, 26. nóvember 2007
Svefntími Össurar enn á ný
Nú er Geir Haarde farinn að blanda sér í það, hvað Össur er órólegur á nóttunni.
Hvert ungabarn gæti verið stolt af svefnvandamálunum sem Össur glímir við.
Það eru allir að drepast úr áhuga á nætursperringi ráðherrans.
Geir finnst að menn eigi að gæta sín þegar þeir tjá skoðanir sínar á netinu.
Einhvert íhald, maður að nafni Ingólfur segir eftirfarandi í sínum pistli:
"Það er með ólíkindum að ráðherra í ríkisstjórn sitji við tölvuna, á miðri nóttu tæplega allsgáður og skrifi svona um bæði pólitíska samverkamenn og andstæðinga. Það er ekki stórkallalegt að uppnefna fólk eins og Össur gerir þegar hann kallar Júlíus Vífil "Fífil. Held að þú Össur Skarphéðinsson ættir að einbeita þér að þeim verkefnum sem þér voru falin til eflingar landsbyggðinni nú í miðjum kvótaniðurskurðinum, frekar en að sitja á nóttinni og bulla á lyklaborði þegar þú átt að vera sofandi."
Össur, skammastín addna, þú átt að vera sofandi. Það stendur í málefnasamningnum að ráðherrar skuli sofa á nóttunni.
Sjallarnir ættu að spara stóru orðin á meðan þeir eru með Pétur Blöndal í lausagöngu.
Pælið í því sem sá kóni segir, bláedrú og um hábjartan dag!!!
Ég ætla að láta Össur njóta vafans þar til annað kemur í ljós.
Sjálfstæðismenn eru að taka Lúkasinn á Össur, svei mér þá.
Úje.
Gæti sín á stóryrðunum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Meginflokkur: Bloggar | Aukaflokkar: Dægurmál, Lúkas, Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:41 | Facebook
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.1.): 1
- Sl. sólarhring: 3
- Sl. viku: 44
- Frá upphafi: 2987325
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 42
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Færsluflokkar
- Bláar eyllýar
- Bloggar
- Bækur
- danskar kjötbollur með sósu
- Dómar
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Femínistablogg
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Halloki
- Hamfarablogg
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Hneyksli
- Íþróttir
- Jólafár
- Kjaramál
- kvikindiskapur og illt umtal
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Lúkas
- lygasögur
- Löggæsla
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Samgöngur
- Sjálfsdýrkun
- Sjónvarp
- Snúra
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Synt til sigurs
- Synt yfir sundið
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
- Þvagleggur
Eldri færslur
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
Tenglar
Tónlist
Vinir og fjölskylda
Vinkonur
Ég les alltaf
Netmiðlar
Tónlistarspilari
Bloggvinir
- draumur
- jonaa
- hronnsig
- larahanna
- skessa
- eddaagn
- amman
- annabjo
- annambragadottir
- annaragna
- asthildurcesil
- kolgrima
- birnan
- bjarnihardar
- brjann
- brylli
- christinemarie
- danjensen
- lillagud
- disadora
- einari
- einarorneinars
- emm
- estro
- evabenz
- fifudalur
- garun
- gelgjan
- gunnarggg
- halkatla
- halo
- hildurhelgas
- heidah
- helgamagg
- hildigunnurr
- iaprag
- hlynurh
- hugarfluga
- hugsadu
- ibbasig
- katrinsnaeholm
- ingolfurasgeirjohannesson
- jogamagg
- jara
- jensgud
- katlaa
- krummasnill
- krissa1
- lehamzdr
- ktomm
- laufeywaage
- lauola
- lindalinnet
- madamhex
- maggij
- majaogco
- mariakr
- markusth
- meistarinn
- motta
- nimbus
- olinathorv
- pollyanna
- ragnarfreyr
- ragnhildur
- ringarinn
- rosa
- roslin
- saedis
- sailor
- salkaforlag
- skordalsbrynja
- skrifa
- snar
- soley
- steingerdur
- steinnhaf
- steinunnolina
- stinajohanns
- sunnadora
- svetlana
- thuridurbjorg
- tibet
- tigercopper
- toshiki
- unns
- valgerdurhalldorsdottir
- wonderwoman
- vefritid
- vest1
- bidda
- zeriaph
- killjoker
- sisvet
- gudrununa
- dora61
- possi
- gelin
- silfri
- jyderupdrottningin
- gretaulfs
- sibba
- baldvinj
- stjaniloga
- bokakaffid
- kreppukallinn
- jonerr
- gerdurpalma112
- adhdblogg
- astafeb
- snjolfur
- haddih
- brell
- reisubokkristinar
- little-miss-silly
- baldis
- olofdebont
- kikka
- jarnar
- thorolfursfinnsson
- birnast
- vrkristinn
- leifur
- astroblog
- bjarkey
- manisvans
- siggisig
- nordurljos1
- gunnaraxel
- ragnar73
- sij
- kreppu
- runirokk
- gotusmidjan
- dorje
- slembra
- skari60
- must
- fhg
- aevark
- fridaeyland
- hedinnb
- cakedecoideas
- taraji
- audurproppe
- kollakvaran
- finni
- arnaringvarsson
- samstada
- drum
- gretarogoskar
- tbs
- vistarband
- valdivest
- fingurbjorg
- gustichef
- skulablogg
- andreskrist
- fasteignir
- rognvaldurthor
- helgatho
- gullfoss
- bailey
- jennystefania
- gattin
- annaandulka
- ansy
- gumson
- berg65
- bjarnimax
- brahim
- elin
- gudlaugbjork
- dramb
- gudrunkatrin
- hvilberg
- himmalingur
- ingaragna
- naflaskodun
- kiddirokk
- sigurborgkrhannesdottir
- joklamus
- stjornlagathing
- saemi7
- unnurgkr
Athugasemdir
ég vissi bara ekki að ég væri komin á grátt svæði þegar ég vogaði mér að blogga á nóttunni þegar mér gekk verst að sofa. Ekki var ég full, get náttlega kannski ekki sannað það.
Mér tókst ekki að sjá þessa frétt, vildi ekki opnast. Hún er kannski fyrir útvalda lesendur Moggans ? Þessa með bláa blóðið ?
Ragnheiður , 26.11.2007 kl. 12:48
Hárrétt hjá þér Jenný, Össur ætti að fara að einbeita sér að atvinnuuppbyggingu á landsbyggðinni í staðinn fyrir að flytja út störf frá Íslandi til þróunarlanda.
Landsbyggðinni blæðir út vegna aðgerða og aðgerðarleysis stjórnvalda, en Össur er bara í útlöndum að ganga erinda einkafyrirtækja og auðmanna. Ekki vænlegt þetta þó að halelújah-kórnum í kringum Samfylkinguna finnist þetta hið besta mál.
Ragnar Fjölnisson (IP-tala skráð) 26.11.2007 kl. 13:14
Ég er ekkert að leggja mat hér á Össur sem pólitíkus. Ég er bara að hafa gaman að áhuga sjálfstæðismanna á tímasetningu bloggfærslna Össurar og auðvitað því að hann skuli skammaður af íhaldinu fyrir að blogga um sannfæringu sína.
Kannski fyndist mér heldur ekki leiðinlegt ef Össur myndi blogga ríkisstjórnina í slit. En það myndi ég aldrei segja upphátt af því ég er vel upp alinn vinstri maður.
Jenný Anna Baldursdóttir, 26.11.2007 kl. 13:17
Síðan hvenær er bannað að blogga á nóttunni ? Sumir kalla það nótt þegar ég fer á fætur, um hálf sex leitið, ætli ég megi ekki blogga þá
Jónína Dúadóttir, 26.11.2007 kl. 13:18
Bara yndislegt. Sjáðu bara hvað Geir er góður,hann vill að Össur fái nægan svefn hahahahahahaha. Bara dásamlega fyndið.
Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 26.11.2007 kl. 13:32
Mér sýnist tvennt standa uppúr mínus þú Jenný: 1. Össur vogar sér að blogga á nóttunni (hann vinnur langan vinnudag, veit ég) 2. Hann er "greinilega fullur" segja menn- í mismunandi sterkum orðum. Ég get fullvissað þig Jenný að það er frekar aumt að drekka með Össuri. Hann smádreypir á rauðvínsgutli og er skemmtilegri edrú! Ég hefði ekki samt uppnefnt Júlíus Vífil en millinafnið er fallegt þó ég trúi því að það hafi stundum verið erfitt að bera í skóla. Til þess þarf hugrekki. En ég ætla ekki að afsaka enterflýti Össurar, hann hefur áður dottið í þann brunn þó stórt barn sé. Ef Össur skrifar Flokkinn (með stórum staf) út úr ríkisstjórn þá er þessa lásí hjónaband og ekki á vetur setjandi. En Össur er búinn að fá mínus í bókina frá Geir H. og marinn á bloggfingrunum. Þökkum bloggputtafimi þína.
Gísli Baldvinsson (IP-tala skráð) 26.11.2007 kl. 13:33
Sjálfstæðimönnum er vorkunn. Hér hafa þeir tekið risadramakast og snúist í þrjá hringi, og allt í einu sjá allir hve berstrípaðir þeir eru greyin. Forverar þeirra kunnu sauðagæruúlfsleikinn og blindu var slegið á menn og málefni. En nú hlæja menn bara eftir því sem þeir snúast oftar í hring. Vonandi verður þessi flokkur í þeirri stærð sem þeir eiga skilið. Vonandi fer fólk að opna augun upp á gátt, og skoða hvað hann stendur fyrir í raun og veru. Eða til vinstri við allt sem vinstri er.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 26.11.2007 kl. 13:52
...jú, ég blogga stundum á nóttunni en aldrei full . Hafa þessir menn aldrei heyrt um B fólk?
Laufey Ólafsdóttir, 26.11.2007 kl. 14:23
Hann Ingvi Hrafn útvarspmaðurinn kunni og kjaftaskur var að mæla með einhverju íslensku náttúrulyfi við næturmigu miðadra karla. Man bara ekki hvað það heitir....
Júlíus Valsson, 26.11.2007 kl. 14:33
...nú er skrattanum skemmt...
Jóna Á. Gísladóttir, 26.11.2007 kl. 14:50
Skil ekki hvað menn eru að æsa sig yfir þessu, heldur Geir kannski að BJörn Bjarnason megi einn ráðherra nota bloggsíður ? margt er til í þessum pistli Össurar en að vísu tek ég aldrei undir það að uppnefna menn, en að öðru leyti OK.
Skarfurinn, 26.11.2007 kl. 16:09
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.