Leita í fréttum mbl.is

An occasional beer

 60

Það hefur ekki farið fram hjá mörgum að ég er óvirkur alki, og þannig vil ég hafa það.  Reglulega er ég spurð af fólki hvort ég telji að þessi eða hinn sé alki, það er hringt í mig vegna þess að aðstandendur hafa áhyggjur af einhverjum í fjölskyldunni og fólk vill bera áhyggjur sínar undir mig.  Ég skil það vel, en ég get ekki dæmt um hver er alkahólisti og hver ekki.  Það er ekki í mínu valdi, enda þó maður greinist með sjúkdóm, þá gerir það mann ekki að sérfræðing í greininni.  Yfirleitt vísa ég fólki á SÁÁ með sínar spurningar. 

Það sem skiptir máli er auðvitað alkinn sjálfur, hvort hann er búinn að ganga sína leið á enda og horfist í augu við ástandið sem blasir hvarvetna við, er búið að gera lengi og er öllum sjáanlegt nema honum.

Afneitunin er merkilegt og magnað fyrirbrigði.  Ég ætti að vita það.  Ári áður en ég fór í meðferð var ég lögð inn á sjúkrahús, dauðveik með ónýtt bris, þar sem ég var stödd í sumarfríi í fjarlægu landi.  Ein af dætrum mínum kom til að standa vaktina yfir móður sinni á móti eiginmanni.  Úff þetta er erfitt stöff.

Læknirinn var fljótur að reikna út vandamálið, brisið, ástand á mér og svona og þar sem hún, ásamt húsbandi og dóttur stóðu við sjúkrabeð hins forstokkaða alka, átti sér eftirfarandi samtal sér stað:

Læknir: You drink much?

Alkinn: No I can´t say I do, probably like most people (W00t)

Læknir: What do you drink?

Alkinn: A little red now and then and an occasional beer!!!! (Hvað segist um ca. 8 á dag?)

Heimspressan var því miður ekki á staðnum til að verða vitni að þessari stund sannleikans á Spáni, en hefði svipur dóttur minnar og manns náðst á mynd, hefði vantrúarsvipur þeirra verið algjörlega ekta.

Tek fram að mér fannst ég alls ekki vera að segja ósatt.  Það er hægt að búllsjitta sig að því marki að maður trúir bullinu í sjálfu sér, allt til að geta haldið áfram að drekka.

Þetta var erfitt en þema vikunnar hjá mér, er sjálfsblekkingin og mér er hollast að muna hvernig fyrir mér var komið.

Svo bið ég almættið í góðri samvinnu við sjálfa mig að halda mér edrú, einn dag í einu, svo ég meiði mína nánustu aldrei meir.

..og þá er það frá en þetta var snúra dagsins.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

ARGH... drepfyndið svona eftir á. Og guði sé lof fyrir fólk eins og þig sem gengur alla leið... horfist í augu við ástandið eins og það virkilega var, lærir af því, miðlar og til og með sérð spaugilegu hliðarnar. Það vill svo óvenjulega til að ég sit hér með derhúfu á hausnum og hana tek ég ofan fyrir þér.

Jóna Á. Gísladóttir, 26.11.2007 kl. 19:08

2 Smámynd: Marta B Helgadóttir

Aldrei í vandræðum að svara fyrir sig konan. 

Þú ert hetja!

Marta B Helgadóttir, 26.11.2007 kl. 19:29

3 Smámynd: Hugarfluga

Æ, trúttið mitt Jennýlingur. Knúsavu miv SKRASS!!!!

Hugarfluga, 26.11.2007 kl. 19:49

4 identicon

"Occational" eða "occasional"?

Ómar (IP-tala skráð) 26.11.2007 kl. 20:00

5 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ómar: Takk fyrir ábendinguna.  Búin að breyta.

Fluva: Knús í kast og kremju ferðafrömuðurinn þinn

Marta: Sömuleiðis.

Jóna: Loksins tekur einhver ofan fyrir mér í alvöru. 

Jenný Anna Baldursdóttir, 26.11.2007 kl. 20:48

6 Smámynd: Brjánn Guðjónsson

Já, magnaðar eru þær systur, afneitunin og sjálfsblekkingin. Svo magnaðar að margir eru tilbúnir að fórna lífi sínu fyrir þær. Ekki lítið.

Brjánn Guðjónsson, 26.11.2007 kl. 21:19

7 Smámynd: Þorkell Sigurjónsson

Þakka þér innilega Jenný, þetta var einmitt það sem ég þurfti, akkúrat núna.   Kær kveðja til þín.

Þorkell Sigurjónsson, 26.11.2007 kl. 21:23

8 Smámynd: Linda litla

Fyndið, afneitunin er alltaf til staðar þegar fólk er í neyslu og það sér það ekki fyrr en það er orðið edrú.

Linda litla, 26.11.2007 kl. 21:23

9 Smámynd: Ragnheiður

Það kostar kjark að horfast í augu við sjálfan sig og hann hefur þú svo ekki verður um villst. Takk fyrir flotta snúru

Ragnheiður , 26.11.2007 kl. 21:29

10 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Fín snúra

Jónína Dúadóttir, 26.11.2007 kl. 21:54

11 Smámynd: Sunna Dóra Möller

Góðanótt knús og þú ert sannarlega flott og raunsæ og edrú og allt ! Þetta var flott snúrublogg !

Sunna Dóra Möller, 26.11.2007 kl. 22:05

12 identicon

Þú ert einstök jenný - Vi ses  - hringi

Anna Ólafsdóttir (anno) (IP-tala skráð) 26.11.2007 kl. 22:06

13 identicon

Jenný  lítill upphafsstafur í nafni fer þér alveg sérdeilis illa - þorrý -  

Anna Ólafsdóttir (anno) (IP-tala skráð) 26.11.2007 kl. 22:08

14 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Knúsídúlla Jenný Anna

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 26.11.2007 kl. 23:32

15 Smámynd: Laufey Ólafsdóttir

Einstaka bjór! Eins og maður sé að ýkja hlutina eitthvað!

Góða nótt ljúfust!

Laufey Ólafsdóttir, 27.11.2007 kl. 00:37

16 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Brynjar: Já þær eru magnaðar systurnar og alveg ferlega þaulsætnar.  Dæs.

Þorkell: Ég er afskaplega glöð ef þessi skrif mín geta létt einhverjum tilveruna. 

Anna. Flott að muna eftir stórum staf í nafninu mínu, ég er svoddan big mama

Takk öll elskurnar mínar.

Jenný Anna Baldursdóttir, 27.11.2007 kl. 01:14

17 Smámynd: Steingrímur Helgason

Hreinlega skil ekki að þú skildir viðurkenna þennann einstaka bjór !

Steingrímur Helgason, 27.11.2007 kl. 01:47

18 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Steingrímur: Segðu, ég er enn að klóra mér í hausnum yfir þessari fáránlegu játningu

Jenný Anna Baldursdóttir, 27.11.2007 kl. 06:58

19 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Hallgerður: Svart maður minn, það sér ekki út úr augum.  Annars er þetta rétt hjá þér með að afneitunin er oft nauðsynleg, held að stundum myndi maður hreinlega deyja drottni sínum ef ástandið yrði málað í sínum eðlilegu litum.

Jenný Anna Baldursdóttir, 27.11.2007 kl. 09:56

20 identicon

Sæl, Jenný.

Dett reglulega inn á bloggið þitt og hef þá yfirleitt um nokkrar 'sögur/hugleiðingar' að velja! 

Langaði að segja þér að þú bjargar yfirleitt deginum hjá mér, með skemmtilegum hugleiðingum og gríni fyrir sjálfri þér.  Eins, ef um er að ræða erfið eða ljót mál, er ég yfirleitt alltaf sammála þér.

Þú hefur einstaka hæfileika til að koma hugsunum í orð.

Keep up the fantastic work! 

Hrefna Gunnarsdóttir (IP-tala skráð) 27.11.2007 kl. 10:07

21 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Takk Hrefna, þetta var fallega sagt og gleður mig mikið

Jenný Anna Baldursdóttir, 27.11.2007 kl. 10:08

22 Smámynd: Hildigunnur Rúnarsdóttir

ég hef á tilfinningunni að læknirinn hafi spurt þig, hlustað á svarið en horft á mann/dóttur. Þeir kunna þetta...

Hildigunnur Rúnarsdóttir, 27.11.2007 kl. 10:53

23 identicon

Mamma sagði alltaf: "Ég get ómögulega verið edrú á morgun í dag", og vitnaði þar í AA-félaga sinn. Point: Maður veit ekki hvernig morgundagurinn fer og getur bara tekið einn dag í einu - daginn í dag. Gangi þér áfram vel!

Pálína (IP-tala skráð) 27.11.2007 kl. 12:28

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.5.): 6
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 49
  • Frá upphafi: 2985795

Annað

  • Innlit í dag: 6
  • Innlit sl. viku: 43
  • Gestir í dag: 6
  • IP-tölur í dag: 6

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.