Leita í fréttum mbl.is

Halló - ég er að blogga og það er nóóótt!

1 

Ákvað að taka Össur mér til fyrirmyndar og blogga áður en ég slengi mér til sængur, nú um hánótt.  Þar sem ég var í matarboði fyrr í kvöld og upptekin í allan dag, eyddi ég tímanum frá miðnætti þar til nú í að horfa á Silfrið og svo Evu Maríu tala við Ragnheiði Gröndal, sem er ein af mínum uppáhalds. 

Ég og Sara vorum í stelpumatarboði hjá frumburði, í flottu nýju íbúðinni.  Matur: Osta-og pestófylltar kjúklingabringur, kús-kús og saltat.  Ég styn af matarfrygð.  Íbúðin er æði, útsýnið yfir Vesturbæinn ólýsanlegt og ég skil núna hvers vegna dóttir mín rauk í lögfræði, fremur en fyrirhugað blaðamannanám.  Þorrí Helga mín, bara varð.

Oddný var frábær í Silfrinu, bar af eins og gull af eir.  Málmur hvað?  Reyndar var Silfrið gott í dag, og nú eru tvær bækur komnar á bókaóskalistann til viðbótar, þ.e. Guðni og saga Kleppsspítala.  Tékk, tékk.

Það er æðislegt að fylgjast með henni Ragnheiði Gröndal.  Þessi unga stelpa er svo þroskuð og flott og svo er hún tónlistarmaður af Guðs náð.  Pabbi hennar Jennýjar Unu, hann Erik, hefur spilað töluvert með henni og ég fylgst grannt með henni í gegnum hann, m.a.  Hún söng í brúðkaupinu þeirra og hreif alla með sér. Alveg er ég viss um að þessi frábæra listakona á eftir að ná hæstu hæðum.

 Ég set hér inn myndband með Ragnheiði, gjörsvovel.

Kl. er núna 2.17 að staðartíma, ég er edrú að blogga, auðvitað, vindurinn gnauðar og lífið er yndislegt.  En núna er ég farin að sofa og kem sterk inn í fyrramálið, við fyrsta hanagal.

Lovejúgæs.

Úje. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kolgrima

Hvurslags - það ER dularfullt

Kolgrima, 26.11.2007 kl. 03:32

2 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Góðan daginn stelpur mínar.  Auðvitað er það rétt Hallgerður að vitna í tveggja manna tal og allt það, en ég er bara sökker fyrir pólitík og þessi bók er auðvitað  must read fyrir svoleiðis kerlingu.

Kolfinna mín: Hvað af mínum stórundarlega pistili finnst þér dularfullt?  Haha.

Jenný Anna Baldursdóttir, 26.11.2007 kl. 07:13

3 Smámynd: Sunna Dóra Möller

Daginn hér .

Það er ofur svalt að blogga á nóttunni  !

Eigðu góðan dag í rokinu

Sunna Dóra Möller, 26.11.2007 kl. 08:33

4 identicon

Missti af kastljósinu..ooo.

Grunsamlegt að vera að blogga svona á nóttunni....tíhíhí

alva (IP-tala skráð) 26.11.2007 kl. 08:35

5 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Það vantar ALLTAF komment frá þér Dúska mín, nema þegar þú kommentar audda!

Alva: Alveg svakalega grunsamlegt þetta næturblogg

SD: Daginn sjálf honní, er að fara að lúlla aftur, enda örþreytt eftir næturbloggið.

Jenný Anna Baldursdóttir, 26.11.2007 kl. 08:44

6 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Daginn Jenný mín.  Mér sýnist bara koma ágætlega út að blogga á nóttunni.

Ég veit ekki með þetta tveggja manna tal með Guðna og forsetann.  Hafa ekki forsvarsmenn þær skyldur gagnvart almenningi í þessu landi, að vera ekki að pukrast eitthvað.  Mér finnst það.  Mér finnst að við eigum rétt á að vita hvað þeir eru að bralla svona á bak við okkur.  Þetta er þessi yfirþyrmandi lúffaraskapur gagnvart yfirvaldi, sem mér finnst birtast þegar fólk er að hneykslast.  Það er mitt álit allaveg.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 26.11.2007 kl. 09:04

7 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Gröndal stökk fram á sjónarsviðið kornung og allt að því fullþroskuð. Hún er nú eitthvað blúsaðri þarna en ég hef heyrt hana áður. Baaara flott.

klukkan er 10:26 að morgni og ég er að kommenta í vinnunni. Hversu grunsamlegt er það ekki

Jóna Á. Gísladóttir, 26.11.2007 kl. 10:27

8 Smámynd: Kolgrima

Að blogga á nóttunni, kv. Kolþrúður

Kolgrima, 26.11.2007 kl. 15:32

9 Smámynd: Laufey Ólafsdóttir

Nákvæmlega Jóna! Þeir myndu örugglega skamma hann líka ef hann væri að blogga í vinnunni

Ég er að hugsa um að blogga í nótt.

Laufey Ólafsdóttir, 26.11.2007 kl. 16:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.5.): 4
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 47
  • Frá upphafi: 2985793

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 41
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband