Leita í fréttum mbl.is

Túdú- Tékklisti Jennýjar

 1

Á morgun hendi ég út tveimur sófum og tek inn einn þokkalega stóran í staðinn.

Á morgun ætla ég bara að lesa slúðurfréttir í blöðunum til að hamingjujafna.

Á morgun ætla ég ekki að aga nokkurn annan en sjálfa mig. (Stolið úr deginum í dag).

Ég ætla að vera í jólaskapi frá morgni til kvölds.

Ég ætla að heimsækja frumburð eða hún mig.

Ég ætla að vera með hana Jenný Unu, var að grenja út barn hjá foreldrum.

Ég ælta að tala við Maysuna mína í London og Oliver líka, heyra hann segja "Amma Jenný", vitið þið að það er hægt að segja þessi tvö orð þannig að maður fletjist út á vegg í krúttkasti og fara svo að grenja úr söknuði?  Jú, jú, alveg hægt.

Ég ætla að lesa AA-bókina til hamingjuauka og bættrar heilsu.

Ég ætla að láta eins og fífl á milli þátta.

Ég ætla að jólast eins og m-f.  Ekki nema mánuður til stefnu.  Flýta sér.

Dem, það er ekki pláss fyrir meira.

Tjékk, tékk, tékk.

Bítmíbætmídóntsúmí.

Úje

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sunna Dóra Möller

Snilldar tékklisti....þessi færsla var alveg hamingjujöfnun fyrir moi !

Ég er búin að plana alveg rosalegt jólastúss á morgun...Ikeaferð, Garðheimaferð og áframhald og seríuuppsetningu....!

Þessi tími er bara hamingjuhvetjandi....spurning hvort að það þurfi slúðurblöð til að hamingjujafna (sem að mér finnst nota bene snilldarorð )!

Sunna Dóra Möller, 23.11.2007 kl. 21:52

2 Smámynd: Sunna Dóra Möller

þetta litla"og" þarna í annarri málsgrein á undan seríuuppsetningu á að vera eitt lítið "á"...

Sunna Dóra Möller, 23.11.2007 kl. 21:53

3 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Mín kæra systir í jólastússinu.  Nú er komið formlegt leyfi á jóló, mánuður til jóla. Falalalala-lalalala

Jenný Anna Baldursdóttir, 23.11.2007 kl. 21:55

4 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Ég er með mega plan, sofa eins lengi og ég get fram eftir degi og ekki tala við leiðinlegt fólk í síma. 

Ásdís Sigurðardóttir, 23.11.2007 kl. 22:07

5 Smámynd: Laufey Ólafsdóttir

Gott plan og ég trúi þér alveg

Eigðu góðan morgundag! 

Laufey Ólafsdóttir, 23.11.2007 kl. 22:33

6 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Flottur listi hjá þér.  Ég er að hamast í að gera jólagjafir, ég er sum sé búin að ákveða að gera þær flestar sjálf, og ég veit að ég er búin að smita nokkra aðila hehehehe...

En veistu að þú er sjálf alveg rosalegt krútt  Var það orð annars nokkur á bannlistanum.....

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 23.11.2007 kl. 22:46

7 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Yndislegur listi, ég fór bara í jólaskap við að lesa hann. Já, ein Jenný á dag kemur skapinu í lag.

Guðríður Haraldsdóttir, 23.11.2007 kl. 23:19

8 Smámynd: Jens Guð

  Það er ágætt að skerpa á jólastemmningunni með laufabrauði og jólamalti.

Jens Guð, 23.11.2007 kl. 23:27

9 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Á morgun ætla ég í íþróttavöruverslun og svo í lunch með gamalli vinkonu. jeiiii

Jóna Á. Gísladóttir, 23.11.2007 kl. 23:58

10 identicon

Gott plan - nema hvað það er "ekki kaupa" dagurinn á morgun

Anna Ólafsdóttir (anno) (IP-tala skráð) 24.11.2007 kl. 00:03

11 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Benidikt: Ég set ekki selvfölgeligheder á listann.  Eins og að pissa, borða,anda og blogga.  Þú verður bara að vera með eitthvað yfir augunum kallinn min.

Anna: Auðvitað kaupi ég eins og brjálæðingur.  Hvað annað.

Jóna: Til hamingju með það.

Jens: Rólegur í jóladæminu

Ásdís: Bannlista?

Annars allir góðir bara? Ehaeggi?

Jenný Anna Baldursdóttir, 24.11.2007 kl. 00:24

12 Smámynd: Bjarndís Helena Mitchell

Eigðu góðan dag á morgun, ég ætla að gera mitt besta til hins sama. Jólastússið mitt verður að bíða enn um sinn. Nóg annað að gera. Góða nótt.

Bjarndís Helena Mitchell, 24.11.2007 kl. 00:24

13 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

mail

Jóna Á. Gísladóttir, 24.11.2007 kl. 00:27

14 Smámynd: Hugarfluga

Vá, þú ert alveg um það bil að koma mér í stemninguna! Set sko allavega eina seríu upp í dag ... það er nokkuð ljóst! Eigðu góðan dag, ljúfust.

Hugarfluga, 24.11.2007 kl. 10:56

15 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Takk fyrir kveðjurnar krakkar.  Hallgerður: Ég bíð í ofvæni eftir að þú stingir þér af alvöru í blogglaugina.  Pældu í uslanum sem við getum valdið, sterkar saman?  Þarf að lesa Pál. Híhí.

Fluva: Ég skal búa til svo magnað jólastuð á komandi vikum að við þurfum allar að leggjast inn á heilsuhæli til að jafna okkur.

Helga: Takk fyrir falleg orð.  Ég les alltaf hjá þér þó ég kvitti ekki og ég sendi þér hlýjar baráttukveðjur.

Jenný Anna Baldursdóttir, 24.11.2007 kl. 11:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (1.5.): 3
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 43
  • Frá upphafi: 2985778

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 37
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband