Leita í fréttum mbl.is

Netlöggan

Ég las viðtal í 24 Stundum, við Gná Guðjónsdóttur, fulltrúa í alþjóðadeild ríkislögreglustjóra þar sem fram kemur sú skoðun hennar á að lögreglan eigi að hefja leit að barnaníðingum á netinu.

Gná hefur kynnt sér rannsóknir FBI, og segir menn þar vera hættir að líta til hliðar þegar þennan málaflokk beri á góma, og að þeir gangi ótrauðir í þessi mál, sem öllum hryllir við.

Rannsókn meðal fanga í USA leiddi í ljós að 85% þeirra sem dæmdir hafa verið vegna vörslu barnakláms, viðurkenna að hafa beitt börn kynferðislegu ofbeldi. Heil 85%, hvorki meira né minna.

Þar höfum við það.

Ég styð amk. stofnun netlöggu, sem vinnur þá eins og FBI.

Ég ímynda mér að allt venjulegt fólk vilji uppræta barnaklám og koma höndum yfir níðingana.

Allir sammála um það, er það ekki?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Lára Hanna Einarsdóttir

Jú.

Lára Hanna Einarsdóttir, 11.11.2007 kl. 01:15

2 Smámynd: Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir

sama hér.... segi jú þótt fyrr hefði verið

Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir, 11.11.2007 kl. 01:21

3 Smámynd: Þórbergur Torfason

Ertu búin að gleyma undirtektunum sem fengust við þessari uppástungu hjá félaga Steingrími hér um árið?

Það er kannske ekki sama hver fær svona hugmyndir.

Þórbergur Torfason, 11.11.2007 kl. 01:22

4 identicon

Síur gera ekkert gagn, einstakalingur með einhverja tölvukunnátu getur farið framhjá "barnaklámsíum" eins og er verið að tala. Eina sem gerist er hærra gjald á interneti sem bitnar á öllum í staðinn

Alexander Kristofer Gustafsson (IP-tala skráð) 11.11.2007 kl. 01:37

5 identicon

Er ekki sjálfsagt að grípa þjóf á vettvangi glæpsins? Er einhver munur þarna á?

Þorgerður Jónsdóttir (IP-tala skráð) 11.11.2007 kl. 01:41

6 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Æi Alexander: Leim mótrök.  Allt er til vinnandi til að stöðva níðingana sem kaupa og framleiða barnaklám.  FBI væru ekki að vinna þetta svona ef þeir teldu það ekki borga sig.  Ónei.

Þórbergur: Það var í apríl s.l. sem Steingrímur J. minn mæti formaður orðaði þetta svona í Silfri Egils.  Að sjálfsögðu komu "friðarpostularnir" og túlkuðu þetta sem yfirvofandi persónunjósnir VG. 

Krumma og Lára Hanna: Við konur skiljum hvað er í húfi.

Jenný Anna Baldursdóttir, 11.11.2007 kl. 01:43

7 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Þorgerður: Nákvæmlega enginn munur þar á og góður punktur hjá þér.

Jenný Anna Baldursdóttir, 11.11.2007 kl. 01:44

8 identicon

Það er það sem ég SEGI!! Steingrímur Jóhann Sigfússon hefur alltaf verið á undan sinni samtíð, og eins við allir ( flestir) Þingeyingarnir :) er hann snillingur, hans tími ER að koma, og svo kemur mín elskulega bekkjarsystir úr lögregluskólanum og staðfestir þetta fyrir Steingrím og alþjóð.  Þetta er auðvitað snilldarfólk. HEYR HEYR!!

Alva (IP-tala skráð) 11.11.2007 kl. 01:51

9 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Hér ætla ég mér að leyfa mér að verða örlítið ósammála, þótt subjektið gargi á pólitíska rétthugsun.

Í fyrsta lagi þá held ég að slík vinnubrögð uppræti ekki neitt en hafi þó í för með sér ákveðna fælni fyrir brotamenn.  Eðlið sem veldur verður það sama, þó svo að haugur manna verði settur í fangelsi og úthrópaði í ystu myrkur fyrir sjúkleikann.

Í öðru lagi tel ég grunninn að slíkri hnýsitækni ekki vera til höfuðs þessum glæpum heldur enn ein aðförin að prívatlífi fólks og uppbyggingu hugsanalögreglu.  Þetta fordæmi mun gagnast og verður notað í víðara samhengi og eru grunnforsendurnar aðeins sætuefni til að réttlæta ósköpin fyrir fólki og að það kyngi því að það verði undir smásjá stórabróður.

Ég treysti ekki þessu fólki til að halda sig við þetta efni eitt og er verið að seilast lengra og lengra af lögreglu inn í einkalíf fólks og síðast var verið að setja inn frumvarp um það að snúa við sönnunarfærslunni hjá ákveðnum brotahópi, hvað varðaði eignir þeirra og eða maka og venslamanna. Allt má gera upptækt ef viðkomandi getur ekki sýnt fram á að hann hafi eignast þetta á löglegann máta.  Það eru skýlaus stjórnarskrárbrot og þú getur rétt ímyndað þér hvað slíkt fordæmi mundi gera réttarkerfinu okkar.

Hér erum við að sigla inn í þann Orwellian veruleika, sem hefur tekið sér trausta bólfestu í vænisýkismekkunni USA, þar sem stjórnarskráin hefur að mestu verið afnumin hvað varðar frelsi þegnanna.

Björn Bjarnason hefur svarið sig vel í þennan vænijúka trend í löggu og herleik sínum og finnst mér kominn tími á að fólk segi stopp.

Eins og ég segi þá er manni gert erfitt með að andmæla þessum yfirgangi á persónufrelsi vegna þeirra umbúða sem tiltækið er pakkað inn í, en ég veit það Jenný mín að þú sérð að ég er ekki að mæla þessum glæpum bót.  Það eru aðrar leiðir til að sporna við þeim, en að láta frelsið af hendi.  Þeir gaurar eiga það bara ekki skilið slíkar fórnir.

Verum ekki eins og einn vegfarandi sagði í viðtali í US: I would gladly give up my liberties for my freedom. 

Við erum ekkert annað en stúpid rollur ef við ætlum að kyngja slíku.

Jón Steinar Ragnarsson, 11.11.2007 kl. 02:05

10 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

FBI er að gera þetta af því að þetta er gátt framhjá stjórnarskrá til að hnýsast í vefumferð. Svo eru tölvuheimar þannig að lei verður fundin framhjá þessu á 0,5 og stöðugt tæknieinvígi mun verða eins  og á vírus og vírusvarnarmarkaðnum.  Það er úr vasa okkar tekið eins og ég benti á. Ég vildi að þetta væri svo einfalt að lausnin væri fundin á kláminu þarna, en ég get lofað þér því að svo er ekki.   Því miður er lífið ekki svona svarthvítt, eða á maður að segja, thank god.

Jón Steinar Ragnarsson, 11.11.2007 kl. 02:11

11 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Ég verð að vera sammála Jóni Steinar hér.  Þetta er dálítið varhugavert, þó málefnið sé gott.  En hér þarf að fara að með stakri gát. Lífið er farið að minna mig óþægilega mikið á 84 myndina um stóra bróður.  Við grípum eitthvað svona þægilegt mótíf, til að að okkar mati að ná skrímslunum.  En hvað fylgir svo í kjölfarið ? Það er og verður spurningin að mínu mati.  Þetta er alltaf spurningin um trúverðugleika, sem ég fyrir mína parta hef miklar efasemdir um, við núverandi stjórnvöld og dómsmálayfirvöld og lögreglu.  En það er bara mín skoðun.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 11.11.2007 kl. 02:42

12 identicon

Sía á barnaklámsefni mundi ekki skila neinum árangri(spurðu hvaða manneskju sem vinnur við tölvukerfi og hún mundi segja það sama)nema hækkun gjalda á interneti til neitanda

Alexander Kristofer Gustafsson (IP-tala skráð) 11.11.2007 kl. 04:25

13 identicon

Fbi hefur gert marga skandala og heimskupör gegnum tíðina, Interpol er mun marktækari stofnun

Alexander Kristofer Gustafsson (IP-tala skráð) 11.11.2007 kl. 04:29

14 Smámynd: Dísa Dóra

Ég er mjög sammála um að barnaklám þarf að uppræta og ég styð að netið sé einnig notað til að stöðva barnaníðinga.

Dísa Dóra, 11.11.2007 kl. 08:00

15 Smámynd: Huld S. Ringsted

Ég er mjög sammála þér Jenný, þetta þarf að uppræta.

Huld S. Ringsted, 11.11.2007 kl. 08:24

16 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Ég er algjörlega hundrað prósent sammála Jóni Steinari!!!

Hef ekkert meira um málið að segja!

Hrönn Sigurðardóttir, 11.11.2007 kl. 08:43

17 identicon

Það eru engin deiluefni um það að barnaníðinga beri að stöðva heldur hitt hvernig standa beri að verki. Málið leysist ekkert við það að eh netlöggan sé að monitora netið öllum  stundum og má líkja því við það að reglulega væri bankað uppá hjá fólki til að athuga hvort einhver lögbrot ættu sér stað á því og því heimilinu. Það eru margar skuggahliðar á netinu rétt eins og út í þjóðlífinu sjálfu en einnig margt mjög gott og þarftlegt rétt eins og þessi bloggvettvangur hérna. Þó svo að skuggahliðar mannlífsins séu til staðar þá réttlætir það ekki að við komum á fót  lögregluríki eða hvað. Það er einfaldlega það sem er verið að leggja til. Auðvitað eigum við að standa að því saman öll sem eitt að uppræta þennan óþverra sem að barnaníð er þó svo að það verði ekki frekar upprætt frekar en annar viðbjóður sem á sér stað meðal manna. Að sjálfsögðu má gera ýmsilegt á netinu með því að leita uppi þær vefsíður sem að bjóða uppá svona viðbjóð og koma höndum yfir þá aðila sem að því standa. En plís. Enga netlöggu takk.

Eggert Vébjörnsson (IP-tala skráð) 11.11.2007 kl. 08:45

18 Smámynd: Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir

Það má alveg koma netlögga í mína tölvu ..   .. Auðvitað er þetta snúið, alltaf tvær ef ekki fleirri hliðar á málum víst.  Allir sammála að stöðva eigi barnaníð, jú mikil ósköp! úff..

Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 11.11.2007 kl. 09:22

19 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ég skil vel sjónarmið þeirra sem setja spurningu við þessa aðferð og mér finnst Jón Steinar hafa heilmikið að segja af viti eins og venjulega og reyndar allir sem hér hafa lagt orð í belg.

En eins og málið horfir við mér, þá er ég að hugsa um eftirfarandi:

Milljónir kvenna og barna eru í ánauð út um heim og þessi "atvinnuvegur" er talinn ábatasamari en fíkniefnagróðinn.

Börn eru notuð til þrælkunarvinnu, kynlífs og þar á meðal í barnaklámmyndir sem vestrænir perrar kaupa og slefa yfir.

Þessar staðreyndir gera það að verkum að miklu er til fórnandi til að uppræta þessa gengdarlausu grimmd og ofbeldi gegn saklausum börnum.

Þarna verður þá að fórna meiri hagsmunum fyrir minni og ég hef ekki mikla trú á að þarna verði alsherjar persónunjósnir settar í gang, þó auðvitað sé ákveðin hætta á misnotkun.  Ég tek fram að mér finnst alveg nóg komið með að láta anda ofan í hálsmálið á mér.

En hvað gerum við gott fólk þegar staðreyndirnar um mansal og ofbeldi, ánauð og mannvonsku gagnvart börnum er borðliggjandi?  Eigum við bara að láta eins og ekkert sé?

Jenný Anna Baldursdóttir, 11.11.2007 kl. 09:34

20 identicon

Tilvitnun í þig Jenný:

"Milljónir kvenna og barna eru í ánauð út um heim og þessi "atvinnuvegur" er talinn ábatasamari en fíkniefnagróðinn.

Börn eru notuð til þrælkunarvinnu, kynlífs og þar á meðal í barnaklámmyndir sem vestrænir perrar kaupa og slefa yfir."

Þetta er alveg rétt hjá þér Jenný. En nær væri að tala um tugmiljónir eða hundruði í þessu samhengi. Kvenn- og barnaþrælkun viðgengst víða um heim og erum við ekki öll að taka þátt í því að viðhalda þeim ósóma. Hver kaupir ekki Nike og annan varning sem er framleiddur í svokölluðum sweetshops í Kína, Bangladesh og víðar. Vændi er einnig mjög algengt í þessum löndum og ekki óalgengt að fátækt fólk í Kína, Filipseyjum, Indlandi og víðar selji dætur sínar í vændi. Við erum að tala um ríki þarna í Asíu, Afríku og Suður til Norður Ameríku þar sem meira en helmingur jarðarbúa býr við bág kjör og vændi er algengt.  Þar með talið barnavændi!!!! Heldur þú og þínar skoðanasystur að þið séuð að taka af einhverju viti á þessu vandamáli sem að blasir við okkur með einhverri netlöggu? Því miður þá held ég að það sé ekki raunin.

 

Eggert Vébjörnsson (IP-tala skráð) 11.11.2007 kl. 09:56

21 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Þessar hnýsingar miða að því að grípa neytendur en ekki hina raunverulegu glæpona, sem er jafn áhrifalaust og í tilfelli fíkniefna. Samtakamáttur fólks, getur skilað ýmsu og við megum ekki setja vald í hendur fárra í svona efnum og leggjast svo á hina.  Það hefur reynst áhrifaríkt að tilkynna um slíkar síður og pósta til þar til gerðra stofnanna.  Ef við höldum vöku í því, þá verður árangurinn skilvísari. Við erum hins vegae ekki nógu dugleg við slíkt. Við hér á blogginu gætum til dæmis haft link á síðum okkar til slíikra staða.

Það er mikið af þessum lólítuviðbjóð á netinu og slíkt kemur raunar upp við saklausustu leitarorð og jafnvel þegar child eða toy er slegið inn. Einnig fær maður svona spam ásamt viagraauglýsingum og annarri óáran.  Það morar allt í þessu.  Ég held að menn átti sig ekki á umfanginu og mér finnst þessir sporhundar lögreglunnar, vera að villa á sér heimildir með að gefa í skyn að slíkar aðgerðir séu eitthvað alfa og omega í þessum málum.  Netverjar geta upplýst um það og þarf t.d. ekki annað en að benda á Torrentið, sem er ein flutningsleiðin og nánast ógerningur að finna sorsinn á þeim, sem er í kjöllurum í Kína og Rússíá m.a.

Ég segi nei við þessu af því að her erum við að brjóta prinsipp, sem verður misnotað og kemur í hausinn á öllum síðar, rétt eins og með frumvörpin han Bjarnar Bjarnasonar.

Jón Steinar Ragnarsson, 11.11.2007 kl. 10:00

22 Smámynd: Ragnheiður

Já nú segi ég eins og Hrönn.

Ragnheiður , 11.11.2007 kl. 11:06

23 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Ég verð að segja að ég myndi óttast afleiðingarnar af þessu. Líkt og Jón Steinar talar um.

En svo velti ég fyrir mér; ef þessi tækni er fyrir hendi, hvernig vitum við hvort það er ekki bara nú þegar verið að anda niður um hálsmálið hjá okkur? Myndi einhverju breyta þó ''netlöggan'' færi í yfirlýst stríð við barnaníðinga á netinu. Er ekki einhver að ''horfa'' á okkur hvort sem er? Spyr fávís kona.

Jóna Á. Gísladóttir, 11.11.2007 kl. 12:00

24 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Þetta voru sjokkerandi tölur á rannsókn fanganna!

Er á því að vinna þurfi að þessu eins og Gná kom inn á og ef það þarf Netlöggu þá þarf þess, þetta krefst þess að fara af stað og þróa þetta en ekki sitja eftir í þessu eins og svo mörgu öðru hjá okkur.

Edda Agnarsdóttir, 11.11.2007 kl. 13:32

25 Smámynd: Hildigunnur Rúnarsdóttir

Ansi hreint hrædd um að úrtölufólkið hafi rétt fyrir sér, hérna.  Síurnar duga ekki nema dagpart, það er svo auðvelt að komast fram hjá þeim.  Og eftir sitjum við, saklausu netnotendurnir, með eftirlitið...

Reyndar var það ekki Steingrímur heldur Steinunn Valdís sem talaði aðallega fyrir neteftirlitinu og síunum.  Steingrímur var að tala um að netið þyrfti að vera undir lögum og reglu, rétt eins og aðrir hlutar mannlegs lífs, nokkuð sem ég held að enginn geti verið á móti.  Steinunn talaði í löngu máli um hluti sem hún hafði ekkert vit á, frekar óréttlátt að það var svo Steingrímur sem var skotið á endalaust.

Hildigunnur Rúnarsdóttir, 11.11.2007 kl. 19:57

26 Smámynd: Steingrímur Helgason

Við nafnar erum vanir þvílíku ...

Steingrímur Helgason, 12.11.2007 kl. 00:26

27 identicon

Ég er heldur á móti því að lögreglan sé að njósna um borgara svona almennt.  Ef upp kemur rökstuddur grunur um refsiverð brot, er auðvelt að fá dómsúrskurð til að fylgjast með viðkomandi.  En svona eftirlit yfirvalda með almenningi getur náð inn á öll möguleg og ómöguleg svið og er hættuleg þróun.

Hreiðar Eiríksson (IP-tala skráð) 12.11.2007 kl. 15:09

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 3
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 52
  • Frá upphafi: 2985883

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 52
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband