Leita í fréttum mbl.is

Bara fyrir börn..

 

..með peninga vænti ég þá, þessi nýja verslun með leikföng í Garðabænum.  NO?

Eða er tekið á móti foreldrum með kort? Hm...

Ég held að íslensk börn séu leikfangasvelt svo um munar.  Að það hafi ekki sést dúkkudrusla, né brunabílshræ í barnaherbergjum landsins frá því fyrir stríð.  Sko eitthvað stríð.

Við erum 300 þúsund hræður eða u.þ.b.

Leikfangaverslunarrýmið er fleiri þúsund fermetrar.

Það hljóta að vera margir munnar að metta í leikfangalegum skilningi.

Af hverju þurfum við alltaf að vera svona svakalega ýkt þegar kemur að því að kaupa?

Maður fer hjá sér og svo slæst fólkið bara um hvert sippuband þarna.

Eins og síðasti legókubburinn, síðasta dúkkan og síðasti leikfangabílinn hafi verið framleiddur.

Gerum eins og Magga Pála með Hjallastefnuna, höfum aðeins minna af hefðbundum leikföngum og látum börnin nýta frjóan hug sinn til leikja.

A.m.k. að einhverju leyti.

Gleðileg jól.

Úje

 

 


mbl.is Þrjár stórverslanir opnaðar í Garðabæ á tveimur dögum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þversumman var 16.

Þú ert óforbetranlegur humoristi.Það er samviskubitið sem heldur þessum verslunum gangandi.

Hallgerður Pétursdóttir (IP-tala skráð) 10.11.2007 kl. 19:32

2 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

önnfokkingbelívabúl

Jóna Á. Gísladóttir, 10.11.2007 kl. 19:35

3 Smámynd: Huld S. Ringsted

Þetta er magnað, það er hálfur mánuður síðan hin búðin opnaði með tilheyrandi biðröð og látum, svo opnar þessi með sömu látum. Mikið er ég glöð að dætur mínar eru vaxnar upp úr dótastússi

Huld S. Ringsted, 10.11.2007 kl. 19:39

4 Smámynd: Ragnheiður

hrmpf..ég var að aka leigubifreiðinni minni í dag og sat í klikkuðum leikfangahnútum í kringum þetta svæði...ekki gaman ekki gaman...

Komin heim og sit bara í æðahnútum venjulegum....

Ragnheiður , 10.11.2007 kl. 20:30

5 Smámynd: Sunna Dóra Möller

Ég ætla ekki að vera með neinar yfirlísingar hér, ég er svo mikið fórnarlamb neysluhyggjunnar að ég á örgla eftir að fara og kaupa ekkað! Fór í Toys´r´us á þriðja degi

Sunna Dóra Möller, 10.11.2007 kl. 20:34

6 Smámynd: Bjarndís Helena Mitchell

Uss, ekki nenni ég að æða þangað strax í opnunarbrjálæðinu. Á enn eftir að fara í Toy'R'Us, vænti þess ekki að flýta mér í þessa nýju heldur. Knús

Bjarndís Helena Mitchell, 10.11.2007 kl. 20:52

7 Smámynd: Dísa Dóra

Ekta kaupbrjálaðir íslendingar.  Verður gaman að sjá hve lengi þessar verslanir endast allar

Annars verð ég að viðurkenna að mér finnst þessi nýja hljóma einna mest spennandi af þessum barnabúðum að því leiti að þar er allt á einum stað - leikföng, barnaföt, húsgögn, barnavörur. 

Dísa Dóra, 10.11.2007 kl. 20:58

8 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Ég fékk bækling inn úr dyrunum  Frá þessu Toy (R) us, og með í bæklingnum var óskalisti  sem minn stubbur er nú búin að fylla út.  Hann stóð í þeirri meiningu að sjoppan ætlaði að gefa honum allar þessar gjafir  Amma varð að útskýra fyrir honum, að óskalistinn væri kostaður af afa og ömmu.   Mikið djöfull getur fólk gengið langt í sölumennskunni.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 10.11.2007 kl. 21:05

9 Smámynd: Hugarfluga

Ógnvænlegt ... það setur að mér hroll. Samt er ég að fara til Boston að versla dót og meira dót læk ðer is nó túmorró bráðum. Hræsnari? Ég? hmmm .... oh well.

Hugarfluga, 10.11.2007 kl. 21:47

10 identicon

Ég hef nú ekki oft á ævinni verið sammála Davíð Oddssyni en fannst hann hitta naglann á höfuðið þegar hann sagði að fólk léti eins og það hefði engin dótabúð verið í borginni fram að þessu. Was ist los???

Anna Ólafsdóttir (anno) (IP-tala skráð) 10.11.2007 kl. 22:44

11 Smámynd: Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir

Einu sinni sem oftar er ég sammála þér Jenný.... lengi lifi Hjallastefnan.

Það er svo algerlega ofmetið að börn þurfi allt þetta dót sem verið er að versla, það er hins vegar verið að búa til neysluóða einstaklinga og enginn sér neitt athugavert við það.

Mitt barnabarn er á leikskóla þar sem Hjallastefnan er ráðandi og það er dásamlegt að sjá hugmyndaflug og sjálfstæði þessara barna blómstra. 

Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir, 10.11.2007 kl. 23:42

12 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

 úff allt að verða vitlaust á þessu landi þetta er nú meira brjálæðið

Kristín Katla Árnadóttir, 10.11.2007 kl. 23:46

13 Smámynd: Lára Hanna Einarsdóttir

Ég var einmitt að hugsa nákvæmlega þetta sama og þú, Anna - með að hafa ekki oft verið sammála Davíð. Ég man meira að segja hvert hitt skiptið var og hvenær. En nú var ég sammála honum, bæði með orð hans um dótabúðina og að við þyrftum að hægja á neyslunni og framkvæmdaæðinu við álver og orkuver.

Og eftir að hafa nýverið staðið í allsherjar tiltekt og úthendingum úr íbúð og geymslu spyr ég:  Hvar geymir fólk allt þetta dót sem það er að kaupa?

Lára Hanna Einarsdóttir, 11.11.2007 kl. 00:12

14 Smámynd: Hildigunnur Rúnarsdóttir

Rugl, þetta er tómt rugl. Ekki er ég búin að fara þarna og sé ekki að það gerist í bráð. Krakkarnir mínir eiga feikinóg af dóti.

Hildigunnur Rúnarsdóttir, 11.11.2007 kl. 13:21

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (4.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 42
  • Frá upphafi: 2985797

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 39
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.