Leita í fréttum mbl.is

Vegið úr launsátri!

Nafnlausar gungur snúa við í mér maganum.  Fólk sem vill koma upplýsingum á framfæri um náungann, bregða fyrir hann fæti og ærumeiða, nafnlaust, eru viðurstyggilegt fyrirbæri og því miður, skilur þetta fólk oft eftir sig sviðna jörð.

Mér er þessi "baráttuaðferð" ekki með öllu ókunn og ég hef ævarandi skömm á henni.

Það er gott að ganga fram fyrir skjöldu, benda á það sem miður fer, en þá ætti að vera lágmarkskrafa að fólk geri það undir nafni.

Ég veit ekkert um Jens Kjartansson, lýtalækni, sem nú sætir árásum frá hópi fólks, sem telur hann ekki til þess bæran að vera yfirlækni á lýtalækningadeild.  Það má vel vera að hann hafi fyrirgert rétti sínum til stöðunnar með framferði sínu, ekki ætla ég að leggja mat á það.

En ef svo er, af hverju getur þetta fólk sem skrifar bréf til forstjóra Landspítalans, heilbrigðisráðherra, landlæknis og siðanefndar lækna, ekki gert það undir nafni?  Þvílíkur gunguháttur.

Svo er dæmigert fyrir launsátursfólkið að kalla sig fallegum nöfnum eins og "velunnarar".  Sumir eru hógværari og kalla sig "heimildarmenn" og enn aðrir vilja líta út fyrir að vera Jón og Gunna sem bera hag samfélagsins fyrir brjósti, og kalla sig þá gjarnan "húsmóður í Vesturbænum".  Það má gefa þessum "umhyggjusömu" einstaklingum alls kyns nöfn, en hvað mig áhrærir þá er eitt samheiti yfir fólk sem vegur úr launsátri, án tillits til málefnis, en það er mannleysur.

Ég vona að "velunnarar Landspítalans" fái ekki kröfum sínum framgengt nema að þeir gefi sig fram með hverjir þeir eru.

Ójá.


mbl.is Vilja Jens burt sem yfirlækni lýtalækningadeildar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: halkatla

vá Jenný, veistu, akkúrat í dag skrifaði Dennis Prager (hægrisinnaði gúrúinn minn) pistil um nafnleysi og svona árásir og hvernig þessar mannleysur væru að spilla samfélaginu öllu - great minds think alike

halkatla, 23.10.2007 kl. 11:02

2 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Takk ljósið mitt.  Það er því miður æði algengt að gungurnar taki þessi aðferð á að ná fram breytingum.  Það er ekki bara sá sem fyrir verður sem líður heldur allir sem nákomnir eru.  Dji don´t get me started.

Jenný Anna Baldursdóttir, 23.10.2007 kl. 11:06

3 Smámynd: krossgata

Ekki þekki ég Jens persónulega og ég hef ekki hugmynd um hvort hann sé yfirlæknisefni eða ekki.  Geri frekar ráð fyrir að hann sé jafn hæfur og sá næsti.  Hann fjarlægði fæðingarblett úr andliti sonar míns.  Gerði það mjög vel og ekki sér á krakkanum.

Þarna virðist vera mistakamál sem notað er gegn honum eða sem rök fyrir ófrægingarherferð.  Ekki veit ég hvort þarna eru á ferð aðrir heilbrigðisstarfsmenn eða reiðir aðstandendur, en mér finnst ekki að þeir eigi að fá vilja sínum framgengt ef þeir gefa upp hverjir þeir eru.  Heldur ætti slíkt að vera eftir faglegt mat.  Spurning hvort ekki sé vafasamt að byggja það á einu máli.  En hvað veit ég?

krossgata, 23.10.2007 kl. 11:10

4 Smámynd: Hildigunnur Rúnarsdóttir

já, nafnleysi er óttalegur ósiður og gunguháttur. Ekki spurning.

Reyndar kom þetta mér ekki alveg á óvart með Jens, ég fékk að njóta „þjónustu“ hans þegar ég fór í lýtaaðgerð einu sinni, sem betur fer ekki í sjálfri aðgerðinni (hann Guðmundur Már lýtalæknir er hins vegar snillingur) heldur í eftirmeðferð. Var lengi búin að vera að hugsa um hvort það væri verið að tala um Jens þegar talið barst að kærum á deildina. Trúði því þó tæpast, þar sem maðurinn var yfirmaður deildarinnar.

Hildigunnur Rúnarsdóttir, 23.10.2007 kl. 11:10

5 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ég tek fram, bara svo það sé á hreinu, að ég veit ekkert um hæfni/vanhæni þessa manns, enda finnst mér það ekki skipta nokkru máli í samhenginu.  Það sem ég er að benda á er nafnlaust bréf þar sem hæfni mannsins til að vinna vinnuna sína er dregin í efa.  Svoleiðis kvartanir á að bera fram undir nafni.  Nú er þetta í blöðunum, ég blogga um þetta og fleiri, fólk talar.  Hvað ef þessi krafa um brottrekstur mannsins er byggð á ósanngirni?  Það er þegar búið að taka hann af lífi af skuggaverum sem enginn sér.

Og sveiattan.

Jenný Anna Baldursdóttir, 23.10.2007 kl. 11:27

6 Smámynd: Svanur Sigurbjörnsson

Sammala

Med svona alvarlega krofu (sorry hef ekki islenska stafi nuna) ber folki ad bera abyrgd a ordum sinum.  That er serkennilegt ad krefja Jens meiri abyrgdar en hann er thegar buinn ad gangast undir en skrifa svo ekki undir sjalf eigin bref.  Eg veit ekki um malavexti i thessu mali likt og thu svo eg aetla ekki ad daema um rettmaeti krofunnar.  BK - Svanur

Svanur Sigurbjörnsson, 23.10.2007 kl. 11:30

7 Smámynd: Hildigunnur Rúnarsdóttir

(ég vona að fólk taki eftir að ég skrifa mína athugasemd undir fullu nafni)

Hildigunnur Rúnarsdóttir, 23.10.2007 kl. 11:36

8 Smámynd: Sunna Dóra Möller

Ég er sammála, ef að á að bera fram kvörtun þá ber fólki að hafa kjak til að skrifa undir hana með nafni. Annars á fólk að sleppa því að bera fram alvarlegar ásakanir! Ég á mjög erfitt með að þola nafnlausar kvartanir!

Sunna Dóra Möller, 23.10.2007 kl. 11:40

9 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

mér þykir með ólíkindum að tekið sé mark á nafnlausum kvörtunarbréfum í hvaða formi sem er. Þetta er svo mikill gunguháttur.

Jóna Á. Gísladóttir, 23.10.2007 kl. 11:52

10 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Þarna er beinlínis sent á allt heila batteríið, ekki verið að tvínóna við hlutina, en allt undir nafninu "velunnarar Landspítalans".  Svo smekklegt eitthvað.

Hildugunnur: Point taken

SD: Sammála.

Björn: Kíki á þinn pistil

Svanur: Lágmarkskrafa að láta skína í "velviljuð" andlit

Orðin velunnarar og slík orð fá nýja merkingu í svona máli.

Jenný Anna Baldursdóttir, 23.10.2007 kl. 11:52

11 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Jóna: Nákvæmlega, gunguháttur og ekkert annað.

Jenný Anna Baldursdóttir, 23.10.2007 kl. 11:53

12 Smámynd: Ingibjörg Gunnarsdóttir

Algjörlega sammála - þegar menn eru nefndir á nafn og taldir óhæfir í lífi eða starfi, þá á ekki að taka mark á ásökunum nema að viðkomandi standi við orð sín - með nafni.........   Og verandi yfirlæknir lýtadeildar þá get ég ekki annað en ímyndað mér að maðurinn hafi sýnt einhverja hæfni í t.d. að laga andlit og líkama fólks sem hefur lent í bruna, fæðst með mikil lýti o.sv.frv..........

Ingibjörg Gunnarsdóttir, 23.10.2007 kl. 12:03

13 Smámynd: Ragnhildur Sverrisdóttir

Svo er ekki einu sinni neitt sem staðfestir að þarna sé einhver hópur á ferðinni. Ég gæti hæglega skrifað svona bréf, en ritað undir það "velunnarar", "samtök", "starfshópur" eða hvað annað sem mér sýnist.

Furðulegur andskoti að láta eins og þetta sé marktækt á einhvern hátt.

Ragnhildur Sverrisdóttir, 23.10.2007 kl. 12:06

14 Smámynd: Hugarfluga

Fyrst að ákveðið fólk kýs að taka ekki mark á mér, nafnlausu fluvugungunni, get ég ekki ímyndað mér að nokkur geri það í svona viðkvæmu og mikilvægu máli.

Hugarfluga, 23.10.2007 kl. 12:11

15 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ég tek mark á þér fluga mínen þarna er vegið að æru mannsins og enginn stendur fyrir ásökunum. 

Ragnhildur og Ingibjörg: Þetta hefði auðvitað ekki einu sinni átt að komast í fréttir.

Jenný Anna Baldursdóttir, 23.10.2007 kl. 12:14

16 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tek undir með Jónu, það er undarlegt ef tekið er tillit til nafnlausra kvartana eða jafnvel þungra ásakana.  Mér finnst það eiginlega vera verra en að senda inn nafnlausa kæru. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 23.10.2007 kl. 12:15

17 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Alltof algengt að tekið sé mark á nafnlausum!! Eða þeir bornir fyrir sig. Tala ég þar hokin af reynslu............

Gjörsamlega óþolandi aðferð!! ÓÞOLANDI!!

Hrönn Sigurðardóttir, 23.10.2007 kl. 13:11

18 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Óþolandi gungugangur, það sem þú ekki getur sagt undir nafni áttu bara hreinlega að þegja um. Svo sammála þér kona.

Ásdís Sigurðardóttir, 23.10.2007 kl. 13:25

19 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Vona svo sannarlega að allur dagurinn í dag verði góður, ertu að fara í mjög erfiðar rannsóknir?? þú leyfir okkur að fylgjast vel með. 

Ásdís Sigurðardóttir, 23.10.2007 kl. 13:27

20 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Mér finnst þetta mjög merkileg og þörf umræða um nafnlausar rógsherferðir.  Netið t.d. er mjög öflugur miðill og ef fólk fer fram gegn einhverjum í nafnleysi er skaðinn óbætanlegur í þessu litla þjóðfélagi.  Ég skil að fólk á netinu t.d. skrifi nafnlaust og það er allt í lagi meðan ekki er verið að ráðast á persónur. 

En merkilegast í þessu umrædda máli er auðvitað að þetta bréf skuli ekki hafa hafnað í tætaranum með sama, og aldrei orðið neitt meira en "konfetti" en í staðinn hefur þessu verið lekið í fjölmiðla og fjallað um það eins og marktækar athugasemdir um starfshæfni mannsins.  Hversu lágt er hægt að leggjast?

ARG

Jenný Anna Baldursdóttir, 23.10.2007 kl. 13:36

21 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Staðreyndir málsins tala sínu máli í bréfinu þó það sá nafnlaust og það er það alvarlega í málinu: 1. Yfirlæknir á að hafa óflekkað mannorð. 2. Læknirinn hlaut þungan dóm. Hann neitar líka allir sök þrátt fyrir dóminn og greiðir því skaðabæturnar sem gustukaverk og niðurlægir þar með konuna sem er nánast óvinnufær og fær ekki annan sjens í lífiinu. Félag lýtalækna stendur með sínum manni og stjíon LSP beitir því fyrir sig að læknirinn hafi ekki unnið vekrið á spítalanum heldur á einkastofu. Þetta er hneykslið í málinu en ekki bréfið sem efnislega er hárrétt.

Sigurður Þór Guðjónsson, 26.10.2007 kl. 10:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 36
  • Frá upphafi: 2985887

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 36
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband