Leita í fréttum mbl.is

Og hausinn á mér hringsnýst

Á hverjum degi koma upp ný plott, varðandi fall meirihlutans í borginni og það sem leiddi til þess.  Bingi sá gsm, með "til í allt, án Villa", Sjálfstæðismenn eru að gera Binga að einum allsherjar sökudólg og hver samsæriskenningin á fætur annarri, lítur dagsins ljós.  Svo koma af og til fréttir, sem segja manni að þeir sem hafa lýst því yfir að hafa ekki vitað neitt, hafi vitað og þeir sem sögðu alls ekki eitthvað, hafi sagt það.

Er stór hluti stjórnmálamanna forstokkaðir lygarar?

Er það bara spurning um að upp kemst um suma en aðra ekki?

Trú mín á stjórnmálamönnum fer dvínandi með hverri mínútunni sem líður.

Hausinn á mér hringsnýst.  Hverjir eru alvondu gæjarnir og hverjir þeir minna vondu?

Nú bíð ég eftir að sjá kvöldfréttir.

Hvaða "sannleikur" lítur þá dagsins ljós?

Lies, lies, lies.

Úje


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ragnheiður

Aha 

Við förum bara á þing, pant fá dómsmálin

Ragnheiður , 14.10.2007 kl. 16:33

2 Smámynd: Sunna Dóra Möller

Jams....mér líst vel á þinframboð bloggara...hahaha...pant fá kirkjumálin  (við sko nebblega bara aðskiljum sko dóms og kirkjumálin )

Sunna Dóra Möller, 14.10.2007 kl. 16:47

3 Smámynd: Ari Guðmar Hallgrímsson

Hræddur um að þú megir bíða ansi lengi eftir sannleikskorni frá pólitíkusum

Ari Guðmar Hallgrímsson, 14.10.2007 kl. 17:16

4 Smámynd: Laufey Ólafsdóttir

Þetta eru samantekin ráð um að fá nóg sjónvarpsefni og halda okkur uppteknum í spennu og fréttaglápi.

Ef við förum á þing... pant þá fá peningamálaráðuneytið.

Laufey Ólafsdóttir, 14.10.2007 kl. 17:18

5 identicon

Það hlýtur einhver að vera byrjaður að skrifa handrit að bíómynd. Ekki vantar plottin. Venjulega reglan ef ég man rétt eru tveir plot-staðir annar frekar framarlega hinn undir lokin. Spurning hvort þetta yrði ekki ekki nóg efni í nr. two, three, og jafnvel four. Verst að það er nú þegar búið að búa til mynd sem heitir True Lies

Anna Ólafsdóttir (anno) (IP-tala skráð) 14.10.2007 kl. 17:28

6 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Mig langar ekki í pólitík, hef ekki þolinmæði og úthald í seinvirka vinnu mála í kerfinu.  Aðrir eru betur fallnir til þess.  Mér finnst reyndar, gott fólk að það séu tvær tegundir stjórnmálamanna til, hugsjónafólkið sem er ekki að maka eigin krók, heldur fer áfram af brennandi áhuga (eins og Svandís ofkors) og svo hinir sem vilja völd og peninga, fyrir sig sjálfa, ákveðna hópa osfrv.

Ég neita samt að gefast upp Ari, það er ekkert náttúrulögmál að ekki sé hægt að treysta stjórnmálamönnum.  Alls ekki.

Jenný Anna Baldursdóttir, 14.10.2007 kl. 17:39

7 Smámynd: Heiða  Þórðar

Sama súpa í sitthvorri skálinni Jenný mín.

Heiða Þórðar, 14.10.2007 kl. 18:30

8 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

En Svandís lætur ekki taka sig!

Edda Agnarsdóttir, 14.10.2007 kl. 19:41

9 Smámynd: Ari Guðmar Hallgrímsson

Ég skal alveg taka undir  það með þér Jenny að það séu tvær tegundur til,en því miður virðist ekki sjens fyrir hugsjónafólkið að koma sér eða sínum málum á framfæri,nema þá með verulegum afslætti á kostnað hugsjónanna,ég skal ekki segja um náttúrulögmálið,en ef pólitíkin heldur áfram að þróst eins og hún hefur gert núna í fjölda ára þá styttist í það.

Ari Guðmar Hallgrímsson, 14.10.2007 kl. 20:24

10 Smámynd: Hugarfluga

Aha, my thought exaaaactly! Hvað er í gangi? Er engum hægt að treysta? Ljúga allir ... bara mismikið? Maður er eiginlega kjaftstopp eftir þetta Dario Fo dæmi. *grrrr*

Hugarfluga, 14.10.2007 kl. 21:09

11 identicon

Ég bara get ekki með nokkru móti tekið mark á nokkru sem Björn Ingi segist hafa séð eða heyrt. Í mínum huga er hann allra samviskulausasti og spilltasti stjórnmálamaður á Íslandi, jafnvel verri en gamli kallinn á bak við tjöldin, Alfredo. 

Stefán (IP-tala skráð) 15.10.2007 kl. 11:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 36
  • Frá upphafi: 2985887

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 36
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband