Leita í fréttum mbl.is

Er ekki enn búin að átta mig..

..á breyttu stjórnarmynstri í borginni.  Ég hef setið eins og líf mitt liggi við, yfir sjónvarpinu og reynt að melta þessar hröðu breytingar.

Mér finnst Bingi ekki hafa staðið vel að málum.

Ég finn smá til með borgarfulltrúum Sjálfstæðisflokks, þeir eru svo innilega hissa og ég held að það sé engin blekking.

Ég skil ekki afhverju Svandís varð ekki Borgarstjóri, hennar vinna leiddi til þess að boltinn fór að rúlla.

Hm..

Farin að horfa á Kastljós

Djö.. sem það er mikið að gera hjá mér.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Miða við framgang Svandísar hefði hún auðvitað átt að fá borgarstjórastólinn, hefði hún heitið Svanur og verið með pippi þá hefði stóllinn verið hennar. Lúffaði fyrir karlmanni sem hefur ekkert að segja nema me me me óþolandi. AUmingja borgarbúar að hafa þenna gaur í forsvari. Hann er best geymdur á skurðstofu með grímu fyrir andlitinu, að mínu mati.  En það eru ekki öll kurl komin til grafar. Á t.d. núna að hætta að rannsaka ósóman?? hann hefur ekkert minnkað þótt svo að nýr meirihluti hafi tekið við, og þá á ég við ósómann í REI og öllum þeim helv. ríkisbubbum sem klappa hvor öðrum á bakið og vilja meir peninga, græðgin er  að drepa þetta lið og spurnin hvað verður nú um vinstri elítuna þegar hún er komin til valda, dollaramerki í augum margra nú held ég.

Ásdís Sigurðardóttir, 11.10.2007 kl. 20:07

2 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Já, þessu þarf að venjast. Var á fundi í dag og þegar við komum fram var bara allt sprungið í borginni! Þetta eru spennandi tímar. Svandís er kúl!

Guðríður Haraldsdóttir, 11.10.2007 kl. 20:14

3 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Sammála þér með áttirnar - hef hálfgerðan ýmugust af ímynd Björns Inga. Svandís er í miklu betra hlutverki heldur en ef hún hefði orðið Borgarstjóri, hún fær tækifæri til að tala óheft og svo ef þetta gengur ekki er hún í betri stöðu.

Edda Agnarsdóttir, 11.10.2007 kl. 20:30

4 identicon

Ég þarf að melta og melta og melta meira. Er engan veginn búin að ná þessu en finn soltið til með Villa þó að mér finnist hann hafa klúðrað big time.

Anna Ólafsdóttir (anno) (IP-tala skráð) 11.10.2007 kl. 20:44

5 Smámynd: Ingibjörg Friðriksdóttir

Ég get vorkennt Villa, mest fyrir það hversu aulalegur hann hefur verið síðustu daga.  En ég er hæstánægð, sérstaklega með Svandísi, en VG kýs ég aldrei.

Ingibjörg Friðriksdóttir, 11.10.2007 kl. 20:53

6 Smámynd: Kej

Allt í einu var Villi Vill ekki Chilly chill lengur . Heldur bara Villti spillti Villi .  En fláráður þykir mér hann Bingi og ekki vildi ég fara í hjónaband með aðila sem sér í iljarnar á við fyrstu ágjöf. 

Kej, 11.10.2007 kl. 20:56

7 Smámynd: Sunna Dóra Möller

Sammála þér Jenný með áttirnar...þær eiga það til að fara út og suður og sértaklega nú í dag og kvöld! Ég sem vonaði eftir leiðinlegum bloggdegi vegna skila á morgun ..... mér varð ekki að ósk minni og ligg nú á netinu í stað þess að skrifa...!

Sunna Dóra Möller, 11.10.2007 kl. 21:11

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 10
  • Sl. viku: 36
  • Frá upphafi: 2985766

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 30
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband