Þriðjudagur, 9. október 2007
Ég varð öll væmin innan í mér...
..og táraðist og allt, þegar þeir kveiktu á súlunni. Ég hætti við grillpartíið úti á Köllunkletti af því að það rann upp fyrir mér að ég væri forréttindapíka, sem gæti horft á tendrunina í beinni, í hlýjunni heima í stofu sem er þá nokkurs konar VIP-lounge.
Ég sum sé táraðist og allt. Það verður ekki á mig logið tilfinningaseminni og þrátt fyrir köld vatnsböð og aðrar pyntigaaðferðir, hefur ekki tekist að herða mig tilfinningalega og sarga úr mér væmnina.
Það gerði mig enn meyrari, að konurnar og börnin voru að koma frá Kólumbíu og eiga nú möguleika á að lifa í friði og verða hamingjusamir landsmenn þessarar þjóðar. Ég vildi að við tækjum fleiri. Saga þessarra kvenna og barna, er svo skelfileg, að við ættum að leggja nótt við dag, að styðja sem flesta og koma í öruggt skjól. Nóg er um fólk í heiminum, sem þjáist.
Ég er ennþá smá mössí-mössí og það er í góðu. Ætla að reyna að halda í tilfinninguna og "HUGSA MÉR FRIÐ".
Þá er á hreinu að ég má ekki láta hugann missa sig í Binga og Bill, því þá fer í verra.
Úje
Gjöf frá John og Yoko og íslensku þjóðinni til heimsbyggðarinnar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Meginflokkur: Bloggar | Aukaflokkar: Dægurmál, Menning og listir, Tónlist | Breytt s.d. kl. 21:04 | Facebook
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.11.): 0
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 16
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 14
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Færsluflokkar
- Bláar eyllýar
- Bloggar
- Bækur
- danskar kjötbollur með sósu
- Dómar
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Femínistablogg
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Halloki
- Hamfarablogg
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Hneyksli
- Íþróttir
- Jólafár
- Kjaramál
- kvikindiskapur og illt umtal
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Lúkas
- lygasögur
- Löggæsla
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Samgöngur
- Sjálfsdýrkun
- Sjónvarp
- Snúra
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Synt til sigurs
- Synt yfir sundið
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
- Þvagleggur
Eldri færslur
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
Tenglar
Tónlist
Vinir og fjölskylda
Vinkonur
Ég les alltaf
Netmiðlar
Tónlistarspilari
Bloggvinir
- draumur
- jonaa
- hronnsig
- larahanna
- skessa
- eddaagn
- amman
- annabjo
- annambragadottir
- annaragna
- asthildurcesil
- kolgrima
- birnan
- bjarnihardar
- brjann
- brylli
- christinemarie
- danjensen
- lillagud
- disadora
- einari
- einarorneinars
- emm
- estro
- evabenz
- fifudalur
- garun
- gelgjan
- gunnarggg
- halkatla
- halo
- hildurhelgas
- heidah
- helgamagg
- hildigunnurr
- iaprag
- hlynurh
- hugarfluga
- hugsadu
- ibbasig
- katrinsnaeholm
- ingolfurasgeirjohannesson
- jogamagg
- jara
- jensgud
- katlaa
- krummasnill
- krissa1
- lehamzdr
- ktomm
- laufeywaage
- lauola
- lindalinnet
- madamhex
- maggij
- majaogco
- mariakr
- markusth
- meistarinn
- motta
- nimbus
- olinathorv
- pollyanna
- ragnarfreyr
- ragnhildur
- ringarinn
- rosa
- roslin
- saedis
- sailor
- salkaforlag
- skordalsbrynja
- skrifa
- snar
- soley
- steingerdur
- steinnhaf
- steinunnolina
- stinajohanns
- sunnadora
- svetlana
- thuridurbjorg
- tibet
- tigercopper
- toshiki
- unns
- valgerdurhalldorsdottir
- wonderwoman
- vefritid
- vest1
- bidda
- zeriaph
- killjoker
- sisvet
- gudrununa
- dora61
- possi
- gelin
- silfri
- jyderupdrottningin
- gretaulfs
- sibba
- baldvinj
- stjaniloga
- bokakaffid
- kreppukallinn
- jonerr
- gerdurpalma112
- adhdblogg
- astafeb
- snjolfur
- haddih
- brell
- reisubokkristinar
- little-miss-silly
- baldis
- olofdebont
- kikka
- jarnar
- thorolfursfinnsson
- birnast
- vrkristinn
- leifur
- astroblog
- bjarkey
- manisvans
- siggisig
- nordurljos1
- gunnaraxel
- ragnar73
- sij
- kreppu
- runirokk
- gotusmidjan
- dorje
- slembra
- skari60
- must
- fhg
- aevark
- fridaeyland
- hedinnb
- cakedecoideas
- taraji
- audurproppe
- kollakvaran
- finni
- arnaringvarsson
- samstada
- drum
- gretarogoskar
- tbs
- vistarband
- valdivest
- fingurbjorg
- gustichef
- skulablogg
- andreskrist
- fasteignir
- rognvaldurthor
- helgatho
- gullfoss
- bailey
- jennystefania
- gattin
- annaandulka
- ansy
- gumson
- berg65
- bjarnimax
- brahim
- elin
- gudlaugbjork
- dramb
- gudrunkatrin
- hvilberg
- himmalingur
- ingaragna
- naflaskodun
- kiddirokk
- sigurborgkrhannesdottir
- joklamus
- stjornlagathing
- saemi7
- unnurgkr
Athugasemdir
Sona sona gamla mín. Vertu bara væmin í kvöld Bing og Bill fara ekkert, þú nærð þeim á morgun. Nokkuð sammála færslunni og meyrnaði smá inní mér þegar flóttafólkið kom til landsins.
Þröstur Unnar, 9.10.2007 kl. 21:02
Já, þetta var krúttlegur dagur!
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir, 9.10.2007 kl. 21:04
Hvað ég deili þessum hughrifum með þér,sá ljósið bláa hér frá heimii mínu.Fegurðin og ljótleikinn hvarflaði ekki að mér þá stundina.Velti því þó fyrir mér hvað það hefði verið gott að ein af konunum sem ræsti Orkuveituhúsið...............með ca 120 kall á mánuði og eiga kost á að ávaxta mitt pund.Er svo hrædd um að einhver eyðileggjandi öfl komi í veg fyrir það.Ég lýg ekki.Vegna þess að ég hef einfaldlega ekki verið spurð í hvað ég vilji að útsvarið mitt far.
Hallgerður Langbrók... (IP-tala skráð) 9.10.2007 kl. 21:08
Þetta er flott súla og mjög táknræn
Huld S. Ringsted, 9.10.2007 kl. 21:12
ég þarf alls ekki neina friðarsúlu til þess að vona á hverjum degi og leggja alla mína hugarorku til í einlægri bæn, við að óska eftir friði öllum heimsbúum til handa... ég skil ekki pointið með því að planta þessu áminningarshowi niður hér (nema augljóslega afþví að galdrakrafturinn er svo sterkur hjá okkur). En þetta skaðar svosem ekkert heldur, ég bara skil ekki hvernig það geta ennþá fundist einstaklingar sem þurfa áminningu, þ.e einhverjir sem óska ekki öllum sömu lífsgæða og við erum svo heppin við að njóta hér á Íslandi. Auðvitað á ekki að þurfa að áminna fólk um það að heimurinn er að mestu í dáldið miklum voða og gríðarlega illa er farið með fólk víða. En reyndar er lífstíll margra íslendinga ekki til fyrirmyndar, kannski áminnir þessi súla þannig séð einhverja um að vera minna gráðugir, eigingjarnir og stressaðir og fara í stað þess að hugsa um þá sem minna mega sín. Við skulum vona það. Og já, mikið var æðislegt að fá þessa flóttamenn til landsins. Það væri gæfa að fá sem flesta
halkatla, 9.10.2007 kl. 21:15
Súlan er auðvitað bara symbol og vonandi kallar hún á fallegar hugsanir. Ég má amk ekki heyra Imagne öðruvísi en að tárast enda sökker fyrir Lennon.
Sammála um að við eigum að taka mikið fleira fólk frá þessum hrjáðu löndum hingað en auðvitað á heimurinn í heild að hysja upp um sig og láta ekki fara illa með nokkurn mann, en mig grunar að ég lifi það ekki. Dæs.
Jenný Anna Baldursdóttir, 9.10.2007 kl. 21:27
En hvað með Dr. Gunna? Bíður hann úti á kletti?
krossgata, 9.10.2007 kl. 21:53
Imagen all the people.. living life in peace. júhúúúúú....
dúllan mín. Eins og Heiða ertu nagli að utan kona en mjúk eins og heit marsipanfylling að innan. Ég er að spotta ykkur hér á netinu... ykkur marsipankellingarnar
Jóna Á. Gísladóttir, 9.10.2007 kl. 22:02
Forréttindapíkan þín addna... Við stóðum öll í herbergi Gelgjunnar áðan og störðum á ljósið. Sá Einhverfi vissi ekkert á hvað við vorum að horfa en hann tók samt þátt.
Jóna Á. Gísladóttir, 9.10.2007 kl. 22:03
Það er ekki hægt annað en að tárast yfir fallega friðardraumnum, enda felldi ég nokkur tár með ykkur hinum. Reyndar rifjaðist líka upp fyrir mér morguninn erfiði þegar Lennon var myrtur, grét hástöfum þegar ég afhenti dagmömmu börnin mín og fór í vinnuna, dagmömmunni góðu til mikillar furðu.
Anna Ólafsdóttir Björnsson, 9.10.2007 kl. 22:05
jiminn, þetta ljós á eftir að rugla alla! ég er dauðhrædd sko - híhí.
halkatla, 9.10.2007 kl. 22:05
Buuuhuuu. Mig langar heimmmm. Dauðlangar að berja súluna augum.
Skil vel þessa væmni er sjálf eins og grenjudúkka .....stundum.
Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir, 9.10.2007 kl. 22:09
þú ert svo mikil rúsina, dúllan mín
Hrönn Sigurðardóttir, 9.10.2007 kl. 22:15
Þú þarna Lassiez-Faire ert með jafn neikvæðari mönnum sem ég hef rekist á. Svei mér þá. Rímar! Lalalala
Þið eruð öll dúllur.
Jenný Anna Baldursdóttir, 9.10.2007 kl. 22:23
Dóttir mín hringdi í mig á meðan útsendingin var, m.a. til að segja mér að hún gæti aldrei haldið aftur að sér tárunum þegar hún hlustar á Imagne, ég sagði að það færu allir að grenja þegar hlustað væri á það!
Er það einhver vitleysa? Loksins getur maður notað gráttáknið.
Edda Agnarsdóttir, 9.10.2007 kl. 22:25
Nei Edda það er hárrétt, allavega klökknum við konur, svo mikið er víst.
Jóna, ég sé ykkur í anda við gluggann, starandi opinmynnt út í náttmyrkrið. Æi krútt
Jenný Anna Baldursdóttir, 9.10.2007 kl. 22:30
Ég grenjaði ekki baun þótt ég væri að horfa, enginn geisli barst austur og ég alveg laus við tár, en lagið Imagine, kemur út á mér gæsahúð eins og á meðal broddgelti. Er reyndar að slakna í geðvonskunni. Have a nice blue night.
Ásdís Sigurðardóttir, 9.10.2007 kl. 22:35
...sá ekki súluna....heyrði ekki imagine og sá ekki konurnar og börnin heldur...en ég tárast samt með ykkur í anda, algjörlega. Þetta hefur ábyggilega verið nokkurra tára virði, efast ekki um það þegar imagine er annars vegar !
Sunna Dóra Möller, 9.10.2007 kl. 22:46
Væluskjóður.
Þröstur Unnar, 9.10.2007 kl. 22:50
Heyrði lagið og sé súluna útum stofugluggann á íbúðinni minni sem er í úthverfi í Reykjavík og ég er líka forréttindapíka eins og hinar sem héngu yfir sjónvarpsskjánum. Ég táraðist ekki og grét ekki enda mikill jaxl.
Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 9.10.2007 kl. 23:09
Ég er nú líka svona með marsipanfyllingu og næfurþunnum súkkulaðihjúp, sem bráðnar við minnstu hlýju. Kannski er þetta bara kostur hjá okkur rykpissum. Ég fékk svona hnút í brjóstið og volgnaði um augun við að sjá blessaðar konurnar og börnin frá Kólumbú. Mikill léttir hlýtur það að vera að vera heimtur úr slíkri helju. Við getum sennilega ekki bjargað heiminum en þetta viðvik sýnir þó huginn og líknar nokkrum sálum. Vona að við sýnum uppburði og úthald og leiðum þessa nýju Íslendinga til hamingjusams lífs. Hér er gott að vera, svona miðað við allt og allt.
Jón Steinar Ragnarsson, 10.10.2007 kl. 00:00
Laissez-Faire, þegar að ég sem barn ólst upp við kaldastríðshugsun sjöunda áratugarins þá kveiktu lög Bítlanna og síðar sólóplötur/lög Lennons í mér. All You Need is Love, Give Peace a Chance, Imagineog fleiri lög hreyfðu virkilega við mér. Ég var alinn upp í Sjálfstæðisflokknum og af Morgunblaðinu sem að dásömuðu og vörðu stríðsglæpi Bandóðuríkjanna í Víetnam og víðar.
Tilgreind lög og fleiri, ásamt viðtölum við Bítlana, opnuðu augu mín fyrir því hversu stríðsrekstur, hernaður og yfirgangur eru vond fyrirbæri. Ég fór í uppreisn gegn stríði og hernaði. Sem að varir enn þegar að ég er kominn á sextugsaldur.
Hugmyndafræði Lennons og Yoko(ar) hafði djúpstæð áhrif á mig. Og klárlega marga fleiri. Dropinn holar steininn. War is Over (if you want it).
Jens Guð, 10.10.2007 kl. 00:18
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.