Leita í fréttum mbl.is

Kæri Dr. Gunni

Mikið skelfing finnst mér leiðinlegt að það sé búið með skýrum og óyggandi hætti, að skipa þér, sjálfum poppsérfræðingnum, á bekk með okkur, nafnlausa og andlitslausa múgnum. 

Ég "in person" er algjörlega áhrifalaus í íslensku menningarelítunni og tel ég mig þó þokkalega stofufæra í umræðum um bæði eitt og annað, sem snýr að listum, menningu, friðarmálum og annari pólitík.

Nú veit ég að þú hefur ábyggilega varið þína "doktorsritgerð" í poppfræðum, í andyri Dakótabyggingarinnar, en trúðu mér, ef þú horfir t.d. á Kiljuna hans Egils og aðra menningarþætti, þá átt þú "in person" ekki séns í helvíti að komast með tærnar, þar sem liðið hans Egils, að honum meðtöldum, hafa hælana, í menningarlegu innsæi.  Sama hvar borið er niður.

Ég "in person" hef hugsað mér að grilla kótilettur úti við Köllunarklett að kvöldi 9. október og glápa öfundaraugum, út í eyjuna þar sem eðlar manneskjur, mér og þér miklu æðri, munu standa og kveikja í súluhelvítinu hennar Yoko.  Ég er reyndar frekar höll undir þessa tilteknu súlu, en það er sú eina súla sem ég skrifa upp á, á þessum síðustu og ógeðslegu. 

Ég hef ekki efni á gullnu boðskorti svona "in person" en ég nota veraldarvefinn til að bjóða þér í andskotans lambakjötið úti í rignarsuddanum á þriðjudagskvöldið.

Vinsamlegast sendu svarmeil á www.famouswannabees.com fyrir mánudagskvöld.

Hlakka til að sjá þig karlinn.

Hef ekki hangið sjálf fyrir utan Dakótabygginguna en hef nærri því drekkt mér í ánni Mersey.

Þangað til þá.

Ég "in person"


mbl.is Dr. Gunni fékk ekki boðskort
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Af því hvað stutt er orðið til næstu jóla, þá tel ég að það komi út bók eftir þig jólin 2008 með svona short stories. Þú ert flott.

Er Jenný  Una sofnuð. ?

Ásdís Sigurðardóttir, 5.10.2007 kl. 22:47

2 Smámynd: Þröstur Unnar

Verð eiginlega að gerast papparss og ná ykkur báðum á mynd við grillið.

Verðið þið ekki annars bara tvö?

Þröstur Unnar, 5.10.2007 kl. 22:48

3 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Þröstur min: Ekki ef ég get "dregið" tónlistarmanninn og húsbandið með mér í kóteletturnar út á Klett.  Spurning hvort ég og Dr. Gunni eigum ekki að "kalla" Imagne yfir til "herrskapsins" við hm.. "súluna".

Ásdís: Á nú þegar smásögur tilbúnar í bók.  Þær eru ævintýri fyrir konur.  Bíddu bara.  Muhahaha og svo þakka ég hrósið elskan.

Jenný Anna Baldursdóttir, 5.10.2007 kl. 22:53

4 Smámynd: krossgata

Þetta umtalaða menningarinnsæi... er þetta ekki meira og minna utanaðbókarlærðir frasar og löng "greindarleg" orð sem enginn veit hvað í rauninni merkja? 

Ég er annars þess fullviss að kótilettur úti á klett með Jenfo og Dr. Gunna er skemmtilegri viðburður en súla úti í eyju. 

krossgata, 5.10.2007 kl. 22:57

5 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Algjörlega sammála þér Krossgata.  Ég horfði á Kiljuna í gærkvöldi og hélt að ismatal þeirra félaga þar myndi gera mig brjálaða og hélt ég að ég væri þokkalega "ismuð" sjálf.

Existenialismi t.d. fellur örgla vel í kramið hjá venjulegu fólki sem elskar bækur en er ekki með próf í listasögu frá einhverjum "uppskrúfaðuríeiginvitneskjuháskóla" í Anskotanssnobblandi.

Þoli ekki svona smáklíkur sem tala "klíkumál" sem venjulegt fólk getur ekki skilið.  Homies forever í einkaklúbbnum eitthvað.  Arg.  Skilur þú hvað ég er að fara?  Ég skil það.

Jenný Anna Baldursdóttir, 5.10.2007 kl. 23:12

6 identicon

Talandi um isma, frasa og kenningar. Hafið þið aldrei heyrt um Bítlafræðina? Það er mikil og athyglisverð fræðigrein byggð á sögulegum staðreyndum. Ég skrifaði meira að segja BA-ritgerðina mína í Félagsfræði þar sem ég rannsaka ungdómsbyltinguna sem var í Reykjavík á sjöunda áratugnum. Þegar ég stofnaði Bítlaklúbbinn 1996 hér á Íslandi, kom það til tals og menn leituðu til okkar að vera með sem valfag á félagsfræðibraut þar sem Bítlafræðin yrðu kennd með öllu því sem henni fylgdi. En talandi um þessa uppákomu í Viðey, þá hefur enn enginn haft samband við okkur svo ég vitna í bloggið sem ég skrifaði í morgun við fréttina um Dr. Gunna.

Eiríkur Einarsson, formaður og stofnandi Bítlaklúbbsins á Íslandi

Eiríkur Einarsson (IP-tala skráð) 5.10.2007 kl. 23:33

7 Smámynd: krossgata

Já ég skil hvað þú ert að fara....

út á klett auðvitað!!!! 

krossgata, 5.10.2007 kl. 23:45

8 identicon

Eru grúppís leyfðar þarna í grillveisluna??? Ég er sliguð af reynslu  

Anna Ólafsdóttir (anno) (IP-tala skráð) 5.10.2007 kl. 23:51

9 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Anna mín, fyrir nú utan mína vafasömu fortíð í músíkbransanum þá er ég í grúppísku hjónabandi, við erum því þjáningarsystur og auðvitað ertu velkomin.

Hvað segirðu um sjálfstyrkingarhóp íslenskra gúppía?  Sounds like a plan eins og Maysa mín segir?

Jenný Anna Baldursdóttir, 6.10.2007 kl. 00:04

10 Smámynd: Þröstur Unnar

Það er rigning og myrkur

og meinlegir skuggar á Kletti þetta kvöld...........

Legg til að þið sleppið kolagrillinu og fáið sendar ljúffengar hangikjötssamlokur úr Einrasbúð. + Malt og Appelsín. Klikkar ekki.

Aldrei að vita nema Ókó Jónó slæðist í mat til ykkar...

Grúppíur.......er á leiðinni.

Þröstur Unnar, 6.10.2007 kl. 00:17

11 Smámynd: Hildigunnur Rúnarsdóttir

uhhh...

sko, sem fulltrúi menningarelítunnar, þá...

æi, nei, ég er víst í tónlistarelítunni og ekki gjaldgeng í bókmennta/myndlistar/hönnunar/humm...

vona að Egill frændi skemmti sér bara :D

Hildigunnur Rúnarsdóttir, 6.10.2007 kl. 00:42

12 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Við erum hér eimitt að ræða um tónlistarlegar grúppíur, bítlamúsík, menningarhálfvita (þorrí menningarvita) og annað tengt listum/lystum í víðtækasta skilningi orðsins Hildigunnur mín.  Þetta er eimitt "your home town" vúman.

Jenný Anna Baldursdóttir, 6.10.2007 kl. 00:47

13 identicon

Þú ert snigglingur Jenný.. algjör snigglingur.

Guðrún B. (IP-tala skráð) 6.10.2007 kl. 01:25

14 identicon

Vaknaði fyrir allar aldir í morgun og byrjaði að hanna prógrammið fyrir sjálfstyrkingarhóp íslenskra grúppía. Allir liðir í prógramminu byrja á "how to cope with .... " Þú mátt botna ..

Anna Ólafsdóttir (anno) (IP-tala skráð) 6.10.2007 kl. 10:30

15 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Við vinnum listann í dag Anna mín, þegar "gesturinn" er farinn heim.  Núna erum við að lita "Mögg mikið"

Jenný Anna Baldursdóttir, 6.10.2007 kl. 12:05

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (2.5.): 9
  • Sl. sólarhring: 10
  • Sl. viku: 46
  • Frá upphafi: 2985788

Annað

  • Innlit í dag: 9
  • Innlit sl. viku: 40
  • Gestir í dag: 9
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.