Leita í fréttum mbl.is

Frændur okkar?

Mér datt í hug að Ástralar væru skyldari okkur en mig grunaði.

Bræður okkar í baráttunni.

"Kevin Andrews, ráðherra innflytjendamála í Ástralíu, hefur tilkynnt að Ástralar muni ekki taka við flóttamönnum frá Afríku á næstunni þar sem flóttamenn þaðan hafi átt í erfiðleikum með að aðlagast áströlsku samfélagi. Á bannið einnig við um flóttamenn frá Darfur-héraði í Súdan. Þetta kemur fram á fréttavef BBC."

Algjörlega út í hött að vera að hleypa fólki inn í lönd nema viðkomandi stökkvi alfullkominn inn í samfélagið og hreinlega smelli inn í innréttinguna.

Um að gera að loka bara og henda lyklinum.

Eða gera eins og við, opna ekki einu sinni rifu á hurðarfandanum.

Arg.


mbl.is Ástralar taka ekki við flóttamönnum frá Afríku
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Bjarndís Helena Mitchell

Já, kannski kippir þeim í kynið við okkur, eða öfugt. Hljómar rökrétt þar sem Ástralir eru af breskum uppruna og margir Íslendingar af Írskum. Hmmm....veit samt ekki alveg hvað mér finnst um þetta, þar sem Ástralir eru í raun gestir innfæddra Aborigenee ættbálksins. Hann er kannski meiri ættingi Afrískra flóttamanna, en upprunalegum Breskum föngum í útlegð sem er við völd. Já, það er margt skrítið í henni veröld....

Bjarndís Helena Mitchell, 4.10.2007 kl. 10:36

2 Smámynd: Promotor Fidei

Það er nákvæmlega ekkert óeðlilegt við stefnu Ástralskra stjórnvalda.

Þeir sem búa fyrir í landinu hafa fullan rétt á að vernda sig fyrir áhrifum sem geta komið róti á samfélagið og haft neikvæð á hrif á öryggi og efnahag heildarinnar.

Þeir sem fyrir búa í landinu eru þeir sem hafa borið kostnaðinn af uppbyggingu samfélagsins og velferðarkerfisins. Þeir þurfa ekki að skammast sín fyrir að vilja vernda fjárfestingu sína. Og þeim ber engin skylda til að taka við flóttamönnum, hvað þá flóttamönnum sem líklegir eru til að gera meira tjón en gagn.

Promotor Fidei, 4.10.2007 kl. 13:32

3 Smámynd: Arnþór Guðjón Benediktsson

Það er ekkert að því að þjóðir hafi sjálfar eitthvað að segja um hverjir komi þangað. Og það er nú bara fordómar að segja að fólk frá vestur Evrópu sé haldið eitthvað meiri fordómum en aðrir. Ástralir voru búnir að láta reyna á að fá Afríska flóttamenn og það var bara ekki að ganga upp.

Arnþór Guðjón Benediktsson, 4.10.2007 kl. 15:54

4 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Arnþór: Það fer eftir því hvað fólk kallar að "ganga upp".  Þetta er misnotað túlkunaratriði.  Fólkið lifði af.  Það er ærin ástæða til að hleypa inn fólki í landið.  Þ.e. að bjarga mannslífum.  Auðvitað eiga þjóðir að hafa eitthvað um það að segja hverjir koma.  Þeir eiga bara að vera manneskjulegir og með vott af samkennd.

Promotor:  Þínar skoðanir eru góðar og gildar, fyrir þig en ég blæs á svona "efnahagslega" mælikvarða á mannslífum.

Jenný Anna Baldursdóttir, 4.10.2007 kl. 16:29

5 identicon

Og ef þú ert 12 kg yfir kjörþyngd færðu ekki heldur að flytja til Ástralíu.

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 4.10.2007 kl. 16:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 51
  • Frá upphafi: 2985882

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 51
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband