Leita í fréttum mbl.is

Syngdu - syngdu!

Geir Haarde er að fara að syngja inn á plötu.  Hann ætlar að syngja "Walk The Line" (Johnny Cash lagið).  Ég veit ekki með ykkur, en mér finnst þetta lag svo viðeigandi.  Nú eru þeir í stjórn með höfuðandstæðingnum, eins og Sjálfstæðisflokkurinn sjálfur skilgreindi Samfylkinguna á vordögum.  Mér segir svo hugur að Geir eigi eftir að þurfa að stunda töluverðar jafnvægisæfingar sem milligöngumaður milli flokkanna. 

Mér finnst Geir voða dúlla.  Landsföðurlegur og svona.  En hann er ekki sexí eins og Johnny Cash, né er hann prakkaralegur.  Hann var ekki í BÆNUM þegar Guð úthlutaði prakkaraskapnum. Það finnst mér  töluverður mínus.  En hann getur sungið er mér sagt.  Það er alltaf gott þegar fólk hefur húmor.

Hvaða lag myndi Pétur Blöndal velja sér?  Hugmyndir?

Eða Sturla?

En Kristján Möller?

En... okokok, ég er hætt.

Cry me a river!

Úje


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Pétur: Money makes the world go around

Sturla: Don´t pay the ferryman (lag með Chris DeBurgh)

Kristján Möller: Bridge over troubled water

Anna Ólafsdóttir (anno) (IP-tala skráð) 3.10.2007 kl. 19:11

2 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

LOL Anna, góð.  Ætli einhver geti toppað þetta?

Jenný Anna Baldursdóttir, 3.10.2007 kl. 19:12

3 Smámynd: Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir

hahahahaha, annars vildi ég sjá Pétur reyna að rappa. Hann er svo helv... ferkantaður eitthvað og svart/hvítur.

Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir, 3.10.2007 kl. 19:27

4 Smámynd: Huld S. Ringsted

Já hann má eiga það kallinn að hann getur sungið. Tillögurnar hjá Önnu frábærar

Huld S. Ringsted, 3.10.2007 kl. 19:38

5 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Víst er Geir prakkaralegur. Hann er meira að segja mjög prakkaralegur. Hann er eins og prakkaralegur Stephen King

Jóna Á. Gísladóttir, 3.10.2007 kl. 20:06

6 Smámynd: Sunna Dóra Möller

LOL

Sunna Dóra Möller, 3.10.2007 kl. 20:17

7 identicon

Sammála Jónu og Krummu og bara ykkur öllum ég er svo sveigjanleg og víðsýn

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 3.10.2007 kl. 20:22

8 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Ég ætla sko að kaupa diskinn, vona að syngji fleiri en eitt lag. Mér heftur alltaf fundist þegar maður sér Geir, Davíð og Kjartan (nýjapabba) saman að þeir séu soldið hobbitalegir  Pétur Running wild with the hair in my eyes.  Kristján I made it, Sturla I did'nt do it, I did'nt do it. Þú ert stór sykurmoli

Ásdís Sigurðardóttir, 3.10.2007 kl. 20:27

9 Smámynd: krossgata

Hmm Stephen King, gæti passað hjá Jónu, ég fæ alltaf hroll þegar ég sé manninn. 

krossgata, 3.10.2007 kl. 20:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 51
  • Frá upphafi: 2985882

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 51
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband