Leita í fréttum mbl.is

Ofbeldisdómur III - Skilorðsbundinn

Ég reyndist sannspá þegar ég taldi að ég fengi nóg að gera þegar ég einsetti mér að blogga um skilorðsbundna dóma fyrir ofbeldi.  Nú er það Héraðsdómur Reykjaness sem leggur í púkkið. 

Að þessu sinni er um að ræða heimilisofbeldi.  Árásin sem átti sér stað á þáverandi heimili málsaðila í nóvember á sl. ári var með þeim hætti, að maðurinn tók konuna kverkataki og henti henni í framhaldinu í gólfið. Konan marðist og tognaði á hálsi, baki og yfir bringspölum. Hún fór ekki fram á miskabætur.

Ofbeldishundurinn fær tveggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir tiltækið.  Mér finnst eins og dómarinn sé að segja blíðlega við hann; dona dona, gúkkulaðidrengurinn minn, ekki lemja kjéddlinguna, það kallar á töluvert vesen.  Hættessu strákur.

Síðan er manninum gert að greiða 10 þús. krónur í sakarkostnað.

Vó Héraðsdómur Reykjaness, rólegir á sektunum.  Það er óþarfi að rýja manninn inn að skyrtunni!

Hm, en ég held áfram á dómavaktinni.

 


mbl.is Skilorð fyrir árás á sambýliskonu sína
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Heiða  Þórðar

Ótrúlegur andskoti!

Heiða Þórðar, 27.9.2007 kl. 14:28

2 Smámynd: Huld S. Ringsted

Ég veit um einn sem mig  langar til að lemja duglega, kannski ég framkvæmi þann verknað snöggvast fyrst ég þarf ekki að hafa áhyggjur af afleiðingunum Þetta er fáránlegt!!

Huld S. Ringsted, 27.9.2007 kl. 14:44

3 identicon

Ætli ég fái þá hrós og viðurkenningu ef og ég skyldi berja Byrgisperrann ( eftir dóm að sjálfsögðu) og í vesta falli smá skilorð og borga 10 þús ef ég reyni að kirkja kvikindið  Ég asnaðist til að lesa dóm og gögn yfir lögfræðingsperranum og er reið og svo er ég með flensu svo gremjan er tvöföld í dag. Og dómar í ofbeldismálum á Íslandi eru fáránlegir

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 27.9.2007 kl. 15:42

4 Smámynd: Matthildur Ágústa Helgadóttir Jónudóttir

Er ekki tími til kominn að breyta lögum og reglum til að þyngja dóma yfir ofbeldisfólki? 

Matthildur Ágústa Helgadóttir Jónudóttir, 27.9.2007 kl. 15:43

5 identicon

Svona er Ísland í dag

Margrét Össurardóttir (IP-tala skráð) 27.9.2007 kl. 16:35

6 Smámynd: Laufey Ólafsdóttir

Ég gæti gargað og geri það hér með.

Laufey Ólafsdóttir, 27.9.2007 kl. 16:58

7 Smámynd: Sunna Dóra Möller

Það er svo merkilegt að ég hef einmitt verið að lesa um hvernig ofbeldei á konum er vafið inn í samfélagsgerð okkar á þann hátt að það er einhvern veginn ekki talið neitt athugavert við það af karlaveldi samtímans. Ég var að skrifa pistil um kúgun kvenna og þar segir ef ég má vitna í eitt atriði, þar sem verið er að vísa í criteriur þegar meta á hvort að kúgun á konum sé til staðar: 

Kerfisbundið ofbeldi: Ofbeldi gegn konum er ekki oft séð sem ofbeldi gegn grundvallar mannréttindum. Heldur er það oftar en ekki sagt, vera tilkomið vegna þess að konan á sök á því sjálf, eða er orsök ofbeldisins að finna í hennar eigin veikleikum. Komið er illa fram við konur, líkamlega, andlega, kynferðislega og trúarlega. Þær eru beittar kynferðislegu ofbeldi, sveltar, pyntaðar, barðar og drepnar eingöngu vegna þess að þær eru konur.

Ég held einmitt að á meðan við búum við þessa heimsmynd þar sem drottnandi vald er það sem að er aðlaðandi og eftirsóknarvert  og um leið er ofbeldið vafið inn í menningarheiminn okkar að þá munum við búa við svona dóma. Það er bara þannig. Það þurfa ansi margir þættir að breytast í samfélaginu til að almennt verði fari að líta ofbeldi gegn konum öðrum augum.

bk. Sunnasemgeturaldreiskrifaðneittístuttumáli !

Sunna Dóra Möller, 27.9.2007 kl. 17:37

8 Smámynd: Brynjar Jóhannsson

Ég nátturlega veit ekki hvað átti sér stað í þessu máli en ég get fullvissað þig Jenný um að raunveruleg breiting á þyngingu dóma hæsta rétts og héraðsdóms er vegna þess að almenningsálitið hefur snúist svo mikið gegn vægum dómum þeirrra. Að blogga um svona mál skiptir gríðarlegu málli sem og umtal innan samfélagsins.

Ég vil samt enn og aftur ítreka að þyngri refsing er ekki alltaf lausnin á þessum málum heldur að gerandinn læri að taka ábyrð á gjörðum sínum og að þolandin fái þá ummönnun sem hann þarfnast. Fyrir mér er það miklu mikilvægara að tryggt sé að þolandi ofbeldis og nauðganna lendi ekki aftur í geranda og refsivistin stuðli að því að gera glæpamanni af óvirkum glæpamanni. 

Það verður að ræða um svona málefni af skynsemi . Auðvitað má  þyngja refsirammann í ofbeldismálum og hafa þá í samræmi við glæpin en aðal málið er að þolandin fá uppreisn og æru. Bæði í réttarsal og svo í þeirri ummönnun sem æskliegur væri hverju sinni. 

Brynjar Jóhannsson, 27.9.2007 kl. 17:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.5.): 6
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 49
  • Frá upphafi: 2985795

Annað

  • Innlit í dag: 6
  • Innlit sl. viku: 43
  • Gestir í dag: 6
  • IP-tölur í dag: 6

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband