Leita í fréttum mbl.is

ÉG ÆTLA RÉTT AÐ VONA

..að Lúkasinn verði ekki tekin á hegðun ræðismannsins í Boston, við Aron Pálma.  Þá á ég ekki við það, að hann hafi átt eitthvað með að vera með hótanir og viðhorf, heldur einfaldlega að allt í kringum mál Arons Pálma er þannig vaxið að það gæti orðið að gjörningaveðri.

Nú er ég ekki nógu mikið inn í diplómatíunni til að vita nákvæmlega hvernig ræðismenn verða til, en er það ekki keyptur titill?  Það er eins og ég hafi lesið það einhvern tímann.

Allavega má telja upp á 20013 og bíða eftir frekari fréttum.

Kikkmíinðenöts!

Úje


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Það má búast við miklum skrifum, umræðum, mótmælum, ásökunum, afsökunum.... bara öllum pakkanum. Ég vona bara að aumingja drengurinn komi heill út úr þessu öllu. Minna mótmæli hefur nú brotið fólk á bak aftur.

Jóna Á. Gísladóttir, 26.8.2007 kl. 21:13

2 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

þetta átti auðvitað að vera: minna mótlæti hefur nú brotið fólk.... 

Jóna Á. Gísladóttir, 26.8.2007 kl. 21:19

3 Smámynd: Þröstur Unnar

Að sjálfsögðu er hann ekki heill, og þarf aðstoð.

Var ekki LEE inn bara að vara hann við að fara ekki út ú flugstöðinni?

Þröstur Unnar, 26.8.2007 kl. 22:32

4 identicon

Mér finnst nú bara að strákgreyið eigi að fá að vera í friði. Er hann ekki annars búinn að taka út sína refsingu ??

Guðrún B. (IP-tala skráð) 26.8.2007 kl. 23:06

5 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Mér finnst svo sannarlega að hann eigi að vera í friði.  Ég held að það hljóti að vera kærkomið fyrir hann og fjölskylduna eftir allar þessar hörmungar.

Jenný Anna Baldursdóttir, 27.8.2007 kl. 01:26

6 Smámynd: krossgata

Einhvers staðar las ég að þessi tiltekni ræðismaður væri að hætta, alla vega að hugsa um það, því hann réði bara ekki við alls konar skrítna Íslendinga með vesen.  Ég hélt annars að það væri vinna ræðismanna að greiða úr veseni hjá fólki hvort sem það flokkast svo skrítið eða ekki.  *Klórar-sér-í-höbbðinu-karl*

krossgata, 27.8.2007 kl. 01:28

7 Smámynd: Hildigunnur Rúnarsdóttir

Einhvern veginn myndi ég nú vilja fá að vita nákvæmlega hvað ræðismaðurinn sagði og hvernig, ekki aaaalveg alltaf að marka hvernig hlutirnir eru orðaðir í stuttum greinum á netinu...

Hildigunnur Rúnarsdóttir, 27.8.2007 kl. 14:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (16.5.): 7
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 51
  • Frá upphafi: 2985874

Annað

  • Innlit í dag: 7
  • Innlit sl. viku: 51
  • Gestir í dag: 7
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband