Leita í fréttum mbl.is

DÚNDURFRÉTTIR..

 

..ef eitthvað nýtt er til með Lennon sem maður hefur ekki heyrt.  Ég kaupi "The Very Best of Mick Jagger" bara fyrir Lenna.  Flott að Jagger fylgir með í kaupbæti.

Ég bíð spennt.

Ætli það séu til fleiri upptöku óútgefnar með snillingnum?

I wish

Úje

P.s. Nú er ég farin að ganga með hausinn undir hendinni.  Enn eitt fréttabloggið.  Fruuuuuss


mbl.is Dúettsöngur Jaggers og Lennons gefinn út
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: krossgata

Þetta gengur náttúrulega ekki kona að blogga svona um fréttir og vera þar að auki ofarlega á vinsældalistum. 

krossgata, 15.8.2007 kl. 00:04

2 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Ég sendi Bolinn á þig

Jóna Á. Gísladóttir, 15.8.2007 kl. 00:14

3 Smámynd: Kristín M. Jóhannsdóttir

Það er til alveg heill hellingur af óútgefnum upptökum með Lennon en flestar fremur hráar. Það er til ógrynnin öll af bootleggum með jam upptökum með Lennon, Bítlunum, Paul, etc. etc.

Kristín M. Jóhannsdóttir, 15.8.2007 kl. 00:36

4 Smámynd: Bjarndís Helena Mitchell

Bjarndís Helena Mitchell, 15.8.2007 kl. 00:56

5 Smámynd: Jens Guð

  Eins og Kristín nefnir þá er til ógrynni af óútgefnu efni með Lennoni.  Hann hafði þann sið að raula hugmyndir að lögum inn á kassettur.  Ég hef heyrt heilan helling af slíkum upptökum í "bútlegg" dæmum.

  Framhjá mörgum fór að Bítlarnir og Stóns unnu náið saman á sínum tíma.  Það voru Bítlarnir sem komu Stóns á plötusamning til að byrja með.  Þegar Stóns náðu ekki inn á vinsældalista í fyrstu atrennu tóku Bítlarnir sig til og sömdu lagið "I´m Your Man" fyrir Stóns til að koma þeim á vinsældalista.

  Bítlarnir héldu áfram að vinna með Stóns næstu ár.  Reyndu að kenna þeim röddun og hlupu í skarðið í hljóðveri þegar Stónsarar réðu ekki við dæmið.  Bítlarnir aðstoðuðu Stóns líka við flóknari útsetningar.

  Stónsliðar sungu líka inn á plötur með Bítlunum.  Frægasta dæmið er "All You Need is Love".

  Þar fyrir utan djömmuðu bítillinn John Lennon og Stónsarinn Keith Richards saman í blúshljómsveit sem ég man í augnablikinu ekki hvað hét.  Eric Clapton var líka í þeirri hljómsveit.  Skil ekki af hverju ég man ekki nafn hljómsveitarinnar.  Þetta var frægt dæmi á sínum tíma.

Jens Guð, 15.8.2007 kl. 02:33

6 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ég sef á nóttunni ljónynja eins og annað fólk, ljónynja mín.  En ég vakna fyrir allar aldir ljósið mitt og sofna stundum seint.  Muhahahaha

Jenný Anna Baldursdóttir, 15.8.2007 kl. 05:49

7 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Oh ég hrökk við þegar ég sá þetta og fiðringurinn og spenningurinn yfir þessu fór strax af stað! Ég hlakka obba mikið til að upplifa þennan happening!

Edda Agnarsdóttir, 15.8.2007 kl. 07:49

8 Smámynd: Elías Halldór Ágústsson

Ég að finna þetta umrædda lag á netinu, ef til vill í annari útgáfu, því  ég heyri ekki rödd Lennons í því. Það heitir "Too Many Cooks (Ruin The Soup)" og er líka framleitt af Lennon. Sándið minnir um margt á diskólagið Whatever Gets You Through The Night af plötu Lennons Walls and Bridges (1974). Bassinn er mjög áberandi og hef ég fyrir satt að þar sé Jack Bruce á ferð. Lagið sjálft er mest í einum hljóm allan tímann (E dúr) en mikið byggt ofan á, mjög mikið funk; það vantar bara nokkra hljóma af Hohner Clavinet þarna inn á milli til að fullkomna myndina. Allt í allt er þetta mjög gott dæmi um forsögulegt diskó, eins og var mjög algengt meðal svartra soul-tónlistarmanna á þessum tíma eins og t.d. Stevie Wonder, og heyrist líka t.d. hjá Lennon á Mind Games (1973) og Walls and Bridges (1974).

PS: Svo sungu Bítlarnir inn á a.m.k. eitt Stones-lag; bakraddirnar á "She's A Rainbow" (1967) eru Bítlanna. 

PPS: Lagið sem Jens talar um sem Bítlarnir gáfu Stones hét reyndar "I Wanna Be Your Man." Þeir spiluðu það svo sjálfir inn á plötu síðar, með Ringo sem söngvara.

Elías Halldór Ágústsson, 15.8.2007 kl. 08:14

9 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Jamm þvílíkur skandall Jenný mín hehehehe....

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 15.8.2007 kl. 09:12

10 Smámynd: Rebbý

vá hvað hér eru fróðir menn um Bítla og aðra skemmtilegri hljómlistarmenn (sorry Bítla aðdáendur)

Rebbý, 15.8.2007 kl. 09:24

11 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Jens og Elías, það á að þjóðnýta menn eins og ykkur.  Þið eru gangandi alfræðiorðabækur.  Takk fyrir upplýsingarnar. 

Jenný Anna Baldursdóttir, 15.8.2007 kl. 09:28

12 Smámynd: Elías Halldór Ágústsson

Skemmtilegri en Bítlarnir? Ómögulegt! Það er vísindalega sannað að það hefur ekki verið gerð skemmtilegri plata en A Hard Day's Night!

Elías Halldór Ágústsson, 15.8.2007 kl. 11:48

13 Smámynd: Elías Halldór Ágústsson

Og önnur athugasemd til Jens: grúppan hét The Dirty Mac og spiluðu m.a. Lennon-lagið Yer Blues.

Elías Halldór Ágústsson, 15.8.2007 kl. 12:21

14 identicon

Þessi bloggfærsla er svona spekingar spjalla í sinni bestu mynd - skemmtileg blogg, skemmtilegir bloggvinir sem hér hafa lagt inn fróðleik - takk - smjúts  

Anna Ólafsdóttir (anno) (IP-tala skráð) 15.8.2007 kl. 12:32

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (5.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 36
  • Frá upphafi: 2985800

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 36
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.