Leita í fréttum mbl.is

ÉG ER MEÐ SENDIRÁÐSÓÞOL

Indverjar samþykktu í gær að opna sendiráð á Íslandi. Líka í Guatemala, Niger og Malí.  Ég er með óþol og ofnæmi fyrir sendiráðum núna á nýjum tímum.  Hafa þjóðir heims ekkert betra við peningana að gera en að stunda fasteignakaup út um allar trissur?

Á upplýsingaöld er ég viss um að það væri hægt að hafa "mobiliserandi" fulltrúa landa sem einfaldlega ferðuðust þangað sem á þarf að halda hverju sinni.  Svo er hægt að nota fjarskiptatækni í flestum tilfellum, er ég viss um. 

Þarf fólk að vera líkamlega á svæðinu, nú til dags?

Ég veit að ég hef örgla ekki skilning á mikilvægi sendiráða og það má vera rétt en er ekki nóg að hafa eins og eitt í hverri álfu?  Það er ekki eins og það séu ekki samgöngur til hægri og vinstri til allra átta.

Þetta sendiráðafyrirkomulag og allt í kringum það er tímaskekkja og óþarfa fjárútlát.

Annars er þorskurinn búinn að gera það fínt sem málsvari okkar í gegnum tíðina, svo maður nefni ekki Björk og fleiri henni líka.

Ég er nú hrædd um það.

Súmí!


mbl.is Indverjar samþykkja að opna sendiráð í Reykjavík
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Þetta er allt eitthvað montkennt í kringum svona sendiráð, nokkurs konar snobb gengi finnst mér.

Ásdís Sigurðardóttir, 10.8.2007 kl. 13:57

2 Smámynd: Daði Einarsson

Hér verð ég að vera þér ósammála. Þegar þarf að leysa einhver mál er mikilvægt að vera í sama rými. Ýmislegt er hægt að leysa án þess að viðkomandi hittist en bara ef ekki er ágreiningur um hvað skuli gera. Ég er í starfsumhverfi þar sem hluti af starfseminni er hér í Lúx en stærsti parturinn er í Brussel. Við getum notað e-mail, símann, og aðra fjarskiptatækni. En okkar reynsla að þegar ekki er svotil fullkomin samstaða um viðkomandi mál þá gengur ekkert nema að hitta viðkomandi face to face.

Aftur á móti mætti kannski loka nokkrum sendiráðum Íslands eða gera að ræðismannsskrifstofum sem eru á litlu afmörkuðu svæði eins og á Norðurlöndunum. Hægt væri að hafa eitt sendiráð í Köben með ræðismannsskrifstofur í hinum löndunum. En það er ekki hægt pólitískt nema að samskipti landanna yrðu mjög slæm. Oftast er nær ómögulegt af pólitískum ástæðum að loka sendiráðum eftir að þau hafa verið opnuð. Við megum heldur ekki gleyma að sendiráð eru ekki bara til að gæta hagsmuna viðkomandi lands heldur líka til að aðstoða þegna viðkomandi lands ef þörf er á. T.d. ef Íslendingur kemur sér í mikil vandræði á erlendri grund.

Daði Einarsson, 10.8.2007 kl. 14:05

3 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Okok, það hlýtur að vera hægt að skera niður og hætta að bæta inn nýjum sendiráðum Daði.  Væri eitt fyrir Norðurlöndin alveg príma?  Ég held að þarna mætti spara. 

Jenný Anna Baldursdóttir, 10.8.2007 kl. 14:11

4 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Mér finnst minnimáttarkennd hljóti að ráða því að sendiráð Íslendinga þurfi alltaf að vera svo dýr og fín á meðan stórþjóðir sumar láta sér eina skrifstofu nægja. Ég þoli ekki fjáraustur okkar í þetta bull, við erum bara 300 þúsund og ættum að sætta okkur við að vera smáþjóð ... þótt við séum snillingar ... miðað við höfðatölu!

Guðríður Haraldsdóttir, 10.8.2007 kl. 14:17

5 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Já Gurrí, snillingar miðað við höfðatölu og örgla með þrjú sendiráð á mann með sama viðmið að leiðarljósi. 

Fór eitthvað í póst frá þér darling?

Jenný Anna Baldursdóttir, 10.8.2007 kl. 14:20

6 Smámynd: Ingi Geir Hreinsson

Það er þó eitt sjónarmið sem taka má tillit til. Hvernig í ósköpunum ættum við að losna við þessa afdönkuðu, hrútleiðinlegu þingmenn ef ekki væri hægt að dingla sendiráði framan í þá?

Ingi Geir Hreinsson, 10.8.2007 kl. 14:30

7 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Það er punktur hjá þér Ingi Geir, hvað gera bændur í því?

Búin að fá póst frú Guðríður, kærar þakkir.

Jenný Anna Baldursdóttir, 10.8.2007 kl. 14:44

8 identicon


Sendiráð eru ekki snobb. Þau greiða fyrir viðskiptum og samskiptum þjóða og sinna einu mikilvægasta hlutverki utanríkisþjónustunnar.

Nú er næst fjölmennasta þjóð í heimi að opna hér sendiráð (hjá einni minnstu þjóð í heimi) og fólk er að röfla yfir því??
Eru menn ekki að fatta hvaða möguleika þetta býður okkur Íslendingum?

Ormurinn (IP-tala skráð) 10.8.2007 kl. 18:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 10
  • Sl. viku: 36
  • Frá upphafi: 2985766

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 30
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband