Leita í fréttum mbl.is

GÓÐI GUÐ - PLÍS BÆNHEYRÐU MIG NÚNA

Elsku góði Guð, Jesú, Búdda, Java, Múhammed, Abraham og hvað sem þú nú annars heitir þessa dagana.

Ekki láta mig leggjast inn á Lansann eftir áramót.  Þá verður bannað að reykja allsstaðar á spítalanum og í KRING um hann.  Ég ákalla þig.  Ekki láta gera mér þetta ef ég verð veik og aumingjaleg.  Það væri nóg samt.  Ef ég veikist á geði t.d. og þarf að reykja í plastbúrinu við geðdeildina, þar sem ég verð til sýnis fyrir alla sem ganga um bygginguna, skal ég ekki kvarta.  Ég skal meira að segja dansa, hoppa, slefa og froðufella, til skemmtunar fyrir alla þá sem fram hjá fara, bara ef þú leyfir andskotans búrinu að standa.

Þú mátt dúndra á mig eldingu, henda mér í veggi, sparka í magann á mér og rífa í hárið á mér, en ekki láta þessa umboðsmenn dauðans, drepa mig úr fráhvörfum þegar og ef ég verð veik og lítil í mér.

Þess bið ég þig í mestu auðmýkt.

Til vara bið ég um nútíma holdsveikraspítala, uppi á öræfum þess vegna, fyrir okkur sem forpestum tilveruna og kaupum dópið sem ríkið selur í þínu nafni (æi þú veist Þjóðkirkjan sem kennd er við þig er ríkisstofnun sko).

Plísdóntheitmí!

ÚFF-je


mbl.is Landspítali verður reyklaus um næstu áramót
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Ohhh.. ég verð svo reið. Þetta er ekki einu sinni forræðishyggja. Þetta er skepnuskapur á versta stigi. Verið að sparka í liggjandi fólk í mörgum tilvikum.

Jóna Á. Gísladóttir, 7.8.2007 kl. 10:54

2 identicon

Glerbúr Jenný ekki plastbúr. Fróðlegt að sjá hvernig verður staðið að þessu

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 7.8.2007 kl. 11:02

3 identicon

Haha ef ég lendi í slysi og verð lagður inn fótbrotinn til dæmis mun ég heimta á klukkutíma fresti að starfsmenn sjúkrahússins fari með mig út til að reykja! 

Þetta er bara mjög óhugsað hjá stjórnvöldum eða þá stjórn Landsspítala!

Sæþór (IP-tala skráð) 7.8.2007 kl. 11:10

4 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Það á greinilega að láta fólk hætta að reykja með öllum ráðum. Reykingabannið á veitingastöðum misheppnaðist að því leytinu til, reykingar hafa bara aukist, skv. sölutölum, enda er allt sem er bannað svo skemmtilegt. 

Einu sinni buðum við nokkrum stríðshrjáðum, stórslösuðum mönnum frá gömlu Júgó til umönnunar á Lansanum. Þeir voru eins og fuglar í búri, enda einangraðir frá öðrum, og alveg brjálaðir af því að þeir fengu ekki að reykja! Held að þeir hafi stolist til að reykja út um baðgluggann þegar almennilegt fólk var á vaktinni. Þegar flestir reykingamenn gæta þess að trufla ekki aðra með reykingum sínum á bara að láta þá í friði. Mikið vildi ég að jafnmikilli orku og fjármunum væri eytt í að hjálpa ofdrykkjufólki og fíkniefnaneytendum til að hætta. 

Guðríður Haraldsdóttir, 7.8.2007 kl. 11:15

5 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Sammála þó það sé meðvirkni.  Sæþór það verður að bera þig út á Umferðarmiðstöð ef þú ætlar að reykja því það er bann á allt umhverfi LSP.

Jenný Anna Baldursdóttir, 7.8.2007 kl. 11:20

6 Smámynd: krossgata

Níðingsháttur er þetta alltaf hreint.  Það verður reyndar fróðlegt að sjá hvað gerist á sumum langtímalegudeildum.  Annars heyrði ég einu sinni slökkviliðsmann, sem var með brunavarnanámskeið, segja að alger svona bönn auki á brunahættu.  Því þau leiða til þess að fólk er að reykja í felum í alls konar skotum, sem geta svo einmitt verið illa til þess fallin að reykja í.

krossgata, 7.8.2007 kl. 11:26

7 Smámynd: Ragnheiður

þetta er þegar byrjað hvað starfsfólkið snertir, það er meira að segja uppi eitthvað þras með gangstéttina Eiríksgötumegin. Þið hljótið að hafa séð fólkið sem stendur þar í rennusteininum að reykja.

Þetta er komið út í öfgar.

Ég lá inni á sitthvorri stofnuninni og nennti ekki að flækjast út langar leiðir og reykti bara ekkert meðan ég lá inni.

Ragnheiður , 7.8.2007 kl. 11:34

8 identicon

Ef ég sé körfubíl fyrir utan glugga á sjúkrastofu við Lansann, eitthvað sem líkist konu í körfunni, og reyk stíga upp veit ég hver það er Hugmynd! You will beat them my dear, múhaaaa 

PS Fékk ekkert meil í gærkvöldi 

Anna Ólafsdóttir (anno) (IP-tala skráð) 7.8.2007 kl. 12:02

9 Smámynd: Birna Dís

Amen

Birna Dís , 7.8.2007 kl. 12:09

10 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ekkert meil, OMG það er fokkings bloggmeðvirknin og skortur minn á karakter sem er að hlaupa með mig í gönur.  Bæti samstundis úr.

Jenný Anna Baldursdóttir, 7.8.2007 kl. 12:10

11 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Við gerum ekkert bara hálfa leið...... eða þannig

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 7.8.2007 kl. 12:12

12 identicon

 

Sammála! Hér er netfangið hjá forstjóranum sjálfum á Landspítala. Hvernig væri nú að senda honum mótmælapóst

Magnús Pétursson forstjóri



Landspítala - háskólasjúkrahúss



magnusp@landspitali.is

kristján (IP-tala skráð) 7.8.2007 kl. 15:17

13 Smámynd: Sævar Einarsson

Ef ég þarf að leggjast þarna inn, þá kveiki ég mér í rettu fram í sjónvarpsholi, og hvað verður gert ? kallað á lögregluna ? ég verð þá búinn með rettuna, ég þoli ekki svona forræðishyggju, hún fer mest af öllu í pirrurnar á mér.

Sævar Einarsson, 8.8.2007 kl. 00:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 10
  • Sl. viku: 36
  • Frá upphafi: 2985766

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 30
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband