Leita í fréttum mbl.is

ALGJÖRT KJAFTÆÐI

28

Ég fór í IKEA í dag og keypti það sem ég ætlaði að kaupa og meira til.  Ég keypti auðvitað ekki sturtuhengi.  Það gleymdist aftur eða þannig.  Stjörnuspáin mín fyrir daginn er svona:

Steingeit: Tengsl þín við peninga byggjast á innsæi. Treystu því og þú munt hagnast. Í kvöld ertu dularfullur og laðar að þér vatnsmerkin krabba, sporðdreka og fiska.

Ég varð ekki vör við það í dag þegar ég borgaði við kassann í búðinni að ég hefði peningainnsæi, þvert á móti þá var nærri liðið yfir mig af undrun.. yfir því hversu mikið þetta lítilræði sem ég keypti kostaði.  Síðan fór ég í Rúmfatalagerinn og skoðið Lazygörl eins og Gurrí á, keypti eitt og annað og sagan endurtók sig, ég var alveg steinhissa.  Það sem ég keypti kostaði bæði hendi og fót. 

Nú sit ég og bíð eftir að tvö skriðdýr og einn uggi komi í heimsókn. 

Ég er að farast úr spennu.

Bætmí!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þorkell Sigurjónsson

Sniðug tilviljun þetta með stjörnuspána þar sem ég er Sporðdreki og er nýlega farinn að kíkja á síðuna þína, eða  í gær.

Þorkell Sigurjónsson, 1.8.2007 kl. 20:36

2 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

ugginn kemur í staðinn fyrir höndina?

og skriðdýrin þá....?

Jóna Á. Gísladóttir, 1.8.2007 kl. 20:50

3 identicon

Ég er með ugga.

Maja Solla (IP-tala skráð) 1.8.2007 kl. 20:59

4 Smámynd: Gísli Bergsveinn Ívarsson

Í mínum huga er IKEA önnur að leiðinlegu búðunum. Hin er Rúmfatalagerinn.

Gísli Bergsveinn Ívarsson, 1.8.2007 kl. 21:04

5 Smámynd: Sunna Dóra Möller

Ég myndi ekki sofa róleg ef að ég fengi þessa stjörnuspá. Skriðdýr eru ógjó......vonandi líður kvöldið þitt bara hratt án þess að kvikindin láti sjá sig! All í lagi með uggann þó, sérstaklega ef að hann tilheyrir gullfiski, þú gætir sagt honum allt og hann ekki munað neitt þegar birta tekur að morgni !

Sunna Dóra Möller, 1.8.2007 kl. 21:10

6 identicon

Well, á ágætlega við mig!

Maja Solla (IP-tala skráð) 1.8.2007 kl. 21:41

7 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Hvað er þetta með þig og sturtuhengi, geturðu ekki keypt þér eitt strax svo við förum ekki yfir á taugum yfir hengisleysi, ég get líka keypt eitt og sent þér??  he

Ásdís Sigurðardóttir, 1.8.2007 kl. 21:46

8 Smámynd: Þröstur Unnar

Akkurru þarftu sturtuhengi?

Þröstur Unnar, 1.8.2007 kl. 22:08

9 Smámynd: Þröstur Unnar

Bruðl.

Þröstur Unnar, 1.8.2007 kl. 22:08

10 Smámynd: Brynjar Jóhannsson

Útskýrðu þá  ÞETTA .. ég er sporðdreki OG ÉG ER AÐ LESA ÞETTA

Brynjar Jóhannsson, 1.8.2007 kl. 22:30

11 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Af hverju viltu ekki tvíbura?

ha?

Hrönn Sigurðardóttir, 1.8.2007 kl. 23:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 51
  • Frá upphafi: 2985882

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 51
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband