Leita í fréttum mbl.is

BLOGGVINATILTEKT EI MEIR

1

Eins og bloggvinir mínir vita þá hef ég hent reglulega út bloggvinum og það síðan gert það að verkum að þeir sem eftir standa kunna enn betur að meta mig og skrifa um mig lofræður í kommnetakerfið.  Hehe (er að grínast, súmí).  Annað hvort er ég orðin svona meyr eða þá að gæðastuðullinn á bloggvinunum er orðinn blússandi hár. Ég held að seinni skýringin sé sú rétta, því ég hef fjárann ekkert mýkst, að ég held.  Nú er svo komið að ég tími ekki einum einasta.  Hver vinurinn öðrum skemmtilegri. 

Ég settist við áðan og ætlaði að grisja svo ég væri ekki með stöðugan kvíðahnút í maganum að komast ekki allan hringinn en það var ekki eitt kvikindi á listanum sem höfðaði til hreinsunaráráttu minnar og því hef ég gefist upp.  Ég er hætt að henda út fólki. 

Ég henti henni Kolgrímu út um daginn af því ég hélt að hún væri hætt að blogga og Klöru litlu líka, um leið og ég henti þeim út komu þær til baka og ég laut höfði í skömm. 

Já krakkar mínir, mér er heiður að vináttunni og hætti hér með að láta eins og fífl, í bloggvinadeildinni sko, áskil mér rétt til hálfvitaháttar á öðrum sviðum.

Súmí.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Líst vel á þig, stelpa! Aldrei of vel farið með góðan bloggvin!

Ég á fullt af æðislegum bloggvinum og sinni þeim hræðilega illa. Verð að taka mig til um helgina og kíkja í heimsókn og kommenta á fullu.

Guðríður Haraldsdóttir, 12.7.2007 kl. 09:47

2 Smámynd: Þröstur Unnar

Á bara að láta mann fá hland fyrir hjartað, reglulega í hverri viku.

Þröstur Unnar, 12.7.2007 kl. 10:12

3 Smámynd: Ester Júlía

Þetta var falleg og krúttleg færsla.  Æðisleg! 

Stórt knús til þín

Ester Júlía, 12.7.2007 kl. 10:19

4 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Skemmtileg færsla hjá þér ljósið mitt.

Kristín Katla Árnadóttir, 12.7.2007 kl. 11:22

5 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

I am save. Lucky me

Ásdís Sigurðardóttir, 12.7.2007 kl. 13:28

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 4
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 38
  • Frá upphafi: 2985768

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 32
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband