Leita í fréttum mbl.is

HÉR ER LEIÐARVÍSIR...

 

..um hvert skal leita til kaupa á rússneskri vændiskonu sem fylgdarþjónusta frá sama landi sendi hingað til að þræla.  Svona hlutir hljóta að fara gerast í auknum mæli á góssenlandinu Íslandi, fyrir þorska sem lifa á neyð kvenna.  Allt vegna nýju lagana sem gera þrælahaldið löglegt.

Verðlisti fylgir þjónustunni svo þetta er allt samkvæmt nýjustu reglum í viðskiptum.

Arg.


mbl.is Rússnesk vændiskona send til Íslands
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Skrítið að þetta sé í fréttum, maður hefði haldið að menn reyndu að fara leynt með svona. En kannski er allt opinbert nú orðið.

Ásdís Sigurðardóttir, 11.7.2007 kl. 00:10

2 Smámynd: Baldvin Mar Smárason

"...maður hefði haldið að menn reyndu að fara leynt með svona. En kannski er allt opinbert nú orðið."

Hér fór ekkert ósiðlegt fram, þannig að það var enginn þörf hjá þessari þjónustu, að halda þessu leyndu.

Fylgdarþjónustur hafa verið á þessu skeri í tugi ára, sama hvort þú viljir vita það, eða ekki.

Leyfum þessari blessuðu stelpu að stunda sitt kynlíf í friði.

Ég hef aldrei fattað afhveru það er svona gífurlega syndlegt, að selja kynlíf.

Ég er kannski svona siðferðislega blindur, en ég bara sé ekkert athugavert við það.

Baldvin Mar Smárason, 11.7.2007 kl. 00:41

3 Smámynd: Kristófer Sigurðsson

Sammála Baldvin - ég sé engin sterk rök fyrir því að banna vændi.  Enn eitt dæmið um fólk sem neyðir sinni siðferðiskennd upp á annað fólk.  Burtséð frá mínum skoðunum á vændi (ég vil hvorki stunda það né kaupa það), þá sé ég einfaldlega ekki hvaða rétt ég, eða nokkur annar, hefur á því að banna öðrum það, þar sem það ógnar engu.

Ef vændi væri fáanlegt á "yfirborðinu", þ.e.a.s. í löggiltum fyrirtækjum með heilbrigðisvottorð og slíkt myndu kaupendur vændis örugglega að mestu leyti leita þangað - þá myndi svarti markaðurinn þar sem mansal, fíkniefni og ofbeldi þrífst missa kúnnana og að miklu leyti leggja upp laupana.  Hljómar það ekki vel fyrir alla?  Eða erum við svo miklar teprur að við getum ekki hugsað okkur að fólk sem við þekkjum ekki sofi hjá öðru fólki sem við þekkjum ekki heldur á öðrum forsendum en við teljum "réttar"?

Kristófer Sigurðsson, 11.7.2007 kl. 18:48

4 Smámynd: Kristófer Sigurðsson

Og já - til þeirra sem segja að vændi sé alltaf eitthvað sem seljendurnir séu neyddir út í af ólöglegum ástæðum, hvað er þá að því að gera vændi löglegt, að settum skilyrðum um heilbrigðisvottorð eftirlit, t.d. í ætt við eftirlit sem lögregla hefur með vínveitingastöðum?  Það myndi enginn stunda vændi af fúsum og frjálsum vilja, er það nokkuð?

Kristófer Sigurðsson, 11.7.2007 kl. 18:51

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 9
  • Sl. viku: 29
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 24
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.