Leita í fréttum mbl.is

SNÚRA

3

Ég var að velta því fyrir mér hversu heppin ég væri að vera edrú og að ég skuli eiga heilan meðgöngutíma að baki (eftir nokkra daga).  Hvað skyldi ég hafa verið að gera fyrir einu ári síðan?  Ég man það að sjálfsögðu ekki nákvæmlega þar sem það er hulið óminnisskýi en ég held að ég geti sagt með nokkurri vissu að:

ég hafi setið í stólnum mínum inni í stofu, með bjórglasið í hendi, pillurnar innan seilingar, gluggatjöldin niðurdregin og ég fer nærri um að ég hafi verið að velta fyrir mér hvernig ég gæti bundið enda á þessa djöfulsins kvöl.  Að sjálfsögðu hef ég líka verið að hugsa um hvað ég ætti helvíti bágt.  Ég hef auðvitað verið kvaldasta, misskildasta og sárasta konan á jarðríki.  Þannig er alkahólismi.  Ein stór sjálfsvorkunn þótt auðvitað sé það sorglegt að vera komin eins langt og hægt er að komast án þess að hrökkva upp af.

Núna er ég með heppnari konum, gluggatjöldin eru uppi að sjálfsögðu og það eina sem er innan seilingar er kaffibolli (lesist kaffi og sígó) og ég á að sjálfsögðu ekki vitund bágt.

Svona er lífið í dag ó je.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: SigrúnSveitó

Til hamingju.  Yndislegt :)

SigrúnSveitó, 6.7.2007 kl. 11:33

2 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Knús og haltu áfram - þú ert besta fyrirmynd.

Edda Agnarsdóttir, 6.7.2007 kl. 12:09

3 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Til hamingju - þetta er mikið frelsi. Þekki það af eigin reynslu.

Jóhannes Ragnarsson, 6.7.2007 kl. 12:22

4 Smámynd: Sigurbjörg Sigurðardóttir

Frábært,eygum að þykja vænt um okkur sjálf,til hamingju

Sigurbjörg Sigurðardóttir, 6.7.2007 kl. 12:24

5 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Frábært hjá þér, gjörsamlega æðislegt. Það er svo dýrlegt að vera bara maður sjálfur!

Guðríður Haraldsdóttir, 6.7.2007 kl. 12:33

6 Smámynd: Orri Harðarson

Þú stendur þig rosalega vel, Jenný mín! Ég er stoltur af þér!

Orri Harðarson, 6.7.2007 kl. 12:54

7 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Frábæra stúlkan mín. Til lukku með dugnaðinn. Núna er bara gott framundan hjá þér, ég er viss um það.  Er flensan ekki betri?? Þarf að skreppa til Rk. hlakka til að kíkja betur á færslurnar í kvöld.  smúts til þín.  Heldurðu að við þurfum að fara að loka Ellý

Ásdís Sigurðardóttir, 6.7.2007 kl. 13:02

8 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Takk elskurnar.

Ásdís ég held að það verði að banna Ellý innan 75.  Eða meira.  Andskotans klám og nú eru það loðin bök.  Ég æli.

Jenný Anna Baldursdóttir, 6.7.2007 kl. 13:03

9 Smámynd: Fanney Björg Karlsdóttir

Sæl.... ég get varla orða bundist.... til hamingju með þennan árangur, gott gengi í framtíðinni.....

Fanney Björg Karlsdóttir, 6.7.2007 kl. 13:29

10 Smámynd: Báran

Einn dagur í einu... en þeir safnast svo saman og gera eitt gott líf  Til hamingju með daginn.

Báran, 6.7.2007 kl. 13:31

11 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Æi hvað þið eruð sætar Fanney og Báran. Takk, takk.

Jenný Anna Baldursdóttir, 6.7.2007 kl. 13:45

12 identicon

Æi, mikið vildi að ég að pabbi minn hefði verið eins duglegur og þú. Sjúkdómurinn tók hann nefnilega fyrir nokkrum árum. Þú lætur okkur vita þegar þú nærð "meðgöngutímanum".

Maja Solla (IP-tala skráð) 6.7.2007 kl. 13:59

13 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

 fallega hreinskilna kona.

Jóna Á. Gísladóttir, 6.7.2007 kl. 14:03

14 identicon

Góður dagur fyrir snúrublogg - hef oft velt fyrir mér hvað prógrammið gæti komið að góðu gagni í fleiru en þessu, t.d. í fótboltabransanum þessa dagana - en æ nú er ég aftur farin að tala kínversku - þorrý  til lukku með hvern dag mín kæra bloggvinkona

Anna Ólafsdóttir (anno) (IP-tala skráð) 6.7.2007 kl. 14:06

15 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Alltaf regluleg snúra hér stelpur mínar og 20. júlí verður viðkomandi bjútíkvín 9 mánaða.  OMG (skelfingarkarl og henyksliskarl vegna feimni) og anna what are you saying?  Pratar du svenska?  Jag förstår inget av vad du säger. Híhí

Jenný Anna Baldursdóttir, 6.7.2007 kl. 14:49

16 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Leiðinlegt að heyra Maja Solla, svo margir deyja af völdum sjúkdómsins.  4 sem ég þekki til eru dánir á árinu (þar af ein góð vinkona).

Jenný Anna Baldursdóttir, 6.7.2007 kl. 14:50

17 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Hrönn Sigurðardóttir, 6.7.2007 kl. 16:52

18 identicon

4 á árinu, það er leiðindatala. Gangi þér vel, ég man þig 20. júlí.

Maja Solla (IP-tala skráð) 6.7.2007 kl. 20:43

19 identicon

Til hamingju með 9 mánuðina

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 7.7.2007 kl. 09:15

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 5
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 54
  • Frá upphafi: 2985885

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 54
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.