Leita í fréttum mbl.is

VONT VERSNAR

 

Ég hef ekki getað hugsað mér að setja mig inn í viðurstyggilegt drápið á litla hundinum Lúkas.  Get hvort sem er ekki skilið hvaða grimmd það er sem nær svona tökum á fólki og ég verð satt að segja svo döpur að ég get varla hugsað mér að dvelja við svona atburði.

En vont versnar.  Nú eru sömu hvatir á ferð hjá fólki sem er að morðhóta ungum manni sem á að hafa staðið að þessum voðaverknaði.  Ég veit ekkert um það hvort þetta er einu sinni réttur maður, það virðist ekki skipta máli.  Þarna er einfaldlega sama grimmdin að baki og við hundsdrápið. 

Ég held að hver og einn mætti líta sjálfum sér nær.  Nógu slæmt er þetta mál alltsaman þó það haldi ekki áfram að vinda upp á sig.


mbl.is Morðhótunum rignir yfir ungan mann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Segi það með þér. Ég gat ekki fengið mig til að hlusta á þetta í fréttum. Hvað þá horfa á það í sjónvarpinu....

Ömurlegt!

Hrönn Sigurðardóttir, 29.6.2007 kl. 11:37

2 Smámynd: Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir

Ég er sammála þér Jenný Anna - þetta mál er nógu sorglegt þó að drengurinn verði ekki fyrir samskonar grimmd sjálfur. Hann lærir fátt gott af því.

Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir, 29.6.2007 kl. 11:51

3 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Stelpur vitið þið að ég er með hnút í maganum út af þessu máli.  Þvílík mannvonska í báðar áttir.

Jenný Anna Baldursdóttir, 29.6.2007 kl. 12:01

4 Smámynd: gerður rósa gunnarsdóttir

En skjúsmí! Voru VITNI að atburðinum??!! Ef það fólk stöðvaði ekki atburðinn má hengja ÞAÐ fólk í hæstu ljósastaura fyrir mér.

Annars er til margskonar dýraníðsla, til dæmis er langvarandi hirðuleysi gæludýraeiganda, vegna tímaleysis og annars, ekkert betra í mínum augum. Eins og allir vita er andlegt ofbeldi ekkert betra en beint líkamlegt ofbeldi. Einnig erum við sjálf ábyrg fyrir massívri dýraníðslu með því að neyta kjöts dýra sem eru látin lifa og deyja við óviðunandi aðstæður. Fyrir því lokum við augunum, horfum bara í budduna og á kílóverðið og spáum svo ekki meira í því.

gerður rósa gunnarsdóttir, 29.6.2007 kl. 12:36

5 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Nákvæmlega það sem ég kommentaði hjá Stebba Fr dómstóll götunnar er ekki sú hegning sem svona menn þurfa að fá.

Ásdís Sigurðardóttir, 29.6.2007 kl. 12:40

6 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ofbeldi er ofbeldi, sama hvaða birtingarmynd þess sýnir sig.  Sorrí Gerður mín er kjötæta, óforbetranleg en borða hamingjusamt kjöt.  Tryllingslega hamingjusamt kjöt.

Hvað getur maður sagt?  Svo sekur inn í bein.

Jenný Anna Baldursdóttir, 29.6.2007 kl. 12:51

7 Smámynd: gerður rósa gunnarsdóttir

Ég borða líka kjöt, elsku Jenný. Með ´við´ meina ég líka ´ég´. Er bara að benda á fleiri hliðar á málinu :)
En athafna- og sinnuleysi manna sem verða vitni að óhæfu fer alltaf í taugarnar á mér.

gerður rósa gunnarsdóttir, 29.6.2007 kl. 20:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 5
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 39
  • Frá upphafi: 2985769

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 33
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.