Leita í fréttum mbl.is

Í LAUGARDAGSHÖLL FYRIR 37 ÁRUM

1

Þar var ég gott fólk á tónleikunum margfrægu með Led Zeppilin.  Enn þann dag í dag og eftir allt sem ég síðan hef fengið að upplifa, er fátt sem hefur toppað þessa tónleika þarna um árið.  Ég hef reglulega hitt fólk gegnum lífið sem talar upp stemminguna í höllinni þetta kvöld í júní fyrir svo löngu síðan.

Ég veit ekki hvort mig myndi langa á þetta "reunion" með Zeppelin.  Það gæti skemmt upplifunina af orginalnum.

Ó já, stairway to heaven var það heilinn.


mbl.is Led Zeppelin að snúa aftur?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Góð blogg hér á undan eins og alltaf hjá þér gullið mitt. Fékk heimsókn í kvöld þannig að ég varð að leggja viðhaldinu.  Man vel eftir bls. 82 ekkert smá sem manni kveið þessi tími, ef hann kæmi, hann var tekin  4 mín fyrir próf, á 6 nanósek. og ekkert spurt út í hann á prófinu. Eins gott að maður kunni að hafa lappirnar í kross og lærði ekki af biturri reynslu.  Með stafsetn. þarna í kvöld á síðunni minni, þá hætti mér til að hafa fleiri Y en færri þegar ég er í vafa, bara deila þeim eftir kunnáttu fyrir hina.  Bæ girl

Ásdís Sigurðardóttir, 29.6.2007 kl. 00:47

2 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

37 árum.... Þá var ég..... hmmmm.. látum okkur sjá.... TÆPRA TVEGGJA ÁRA

Jóna Á. Gísladóttir, 29.6.2007 kl. 01:19

3 identicon

ÓKEI! Það var þar sem ég hitti þig. Þess vegna höfum við þekkst svona lengi!  Skrýtið að við skyldum ekki fatta þetta fyrr - yrr- rr - r - A hól lotta lov

Anna Ólafsdóttir (anno) (IP-tala skráð) 29.6.2007 kl. 02:03

4 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Það var ekki nema von að mér fyndist við þekkjast.  Mannstu eftir hárinu á Plant?  Djö sem það var flott (typisk kona, er á ógeðisflottum tónleikum og man enn eftir hárinu á söngvaranum).

Jenný Anna Baldursdóttir, 29.6.2007 kl. 08:14

5 Smámynd: Laufey Ólafsdóttir

Enn voru 4 ár í mig en mamma var þarna að sjálfsögðu

Laufey Ólafsdóttir, 29.6.2007 kl. 08:23

6 identicon

OMG já ég man eftir bls 82. Það var hlaupið yfir hana í mínum skóla. Okkur sagt að lesa þetta heima. Og auðvitað var það gert. Ein af fáum bls sem voru lesnar þann veturinn enda mótþróinn minn mættur og var viðloðandi í nokkur ár.

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 29.6.2007 kl. 08:40

7 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Laufey mikið svakalega ertu yong, þaddna vúmanið þitt. En þú ert bæði sæt og góð esskan.

Birna Dís tölum ekki um mótþróa ég er nýlega komin af því skeiði.

Jenný Anna Baldursdóttir, 29.6.2007 kl. 11:58

8 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Beta þú ert ákaflega illa sett í langtímaminninu en þú ert tiltölulega lagleg.  Það bjargar ýmsu.

Jóna mín: Agú, agú, agú LILLABARN (hneyksliskarl)

Jenný Anna Baldursdóttir, 29.6.2007 kl. 12:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (4.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 40
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 37
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband