Leita í fréttum mbl.is

SUMARRÓS FALLIN Í FYRRA HORF

p

Moggasérfræðingurinn i stjörnuspám, hún Sumarrós,  hefur haldið sér nokkuð á mottunni undanfarið, allavega hef ég ekki séð ástæðu til að blogga um hana nýlega og ég var eignlega búin að sleppa af henni hendinni.  Svo þegar ég var að vafra um netið í hægðum mínum (!) þá rakst ég á stjörnuspá dagsins fyrir Steingeitina og ég fékk nett áfall:

"Steingeit: Þegar þú umfaðmar sjálfstæði þitt, færðu einmitt alla þá hjálp sem þú þarfnast. Þú eykur vinsældir þínar með því að mæta á samkomu. Og skapið verður betra."

Nú er þetta farið að snúast um persónunjósnir hjá sumarstarfsmanninum.  Hvað er hann að læða því að mér að ég þurfi að fara á samkomu?  Er hann með eitthvað bókhald yfir mína AA-fundi og er ég ekki í góðum málum í minni edrúmennsku? Ha!

Ég má ekki vera svona neikvæð.  Ætli það sé ekki bara verið að benda mér á að drífa mig á trúarsamkomu, það ku gera skapið mun betra.

Arg.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Samkoman sem um ræðir er þessi heks-samkoma sem þú fékkst ekki að koma á. Þess vegna ertu jafn andstyggileg í skapinu og alltaf

Jóna Á. Gísladóttir, 28.6.2007 kl. 22:17

2 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ertu búin að tékka á meilboxinu þínu kjéddling og hættu þessu röfli. Smjúts.

Jenný Anna Baldursdóttir, 28.6.2007 kl. 22:20

3 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Þetta er stórmerkilegur fjandi. Hjá Ljóninu kom eftirfarandi:

"Mikið lítur þú vel út. Útgeislun þín er þvílík að sennilega vinnur þú í lottóinu um helgina. Notaðu vinninginn til að kaupa þér búrku, það gengur ekki að allir falli í skuggann af þér."  

Guðríður Haraldsdóttir, 28.6.2007 kl. 22:24

4 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Gólfsmellur af hlátri í annað sinn í kvöld.  Fíbblið yðar frú Görr.

Jenný Anna Baldursdóttir, 28.6.2007 kl. 22:28

5 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

takk fyrir mail. búin að svara.

Jóna Á. Gísladóttir, 28.6.2007 kl. 22:42

6 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Hvað hvað eru þið að bardúsa Jóna og Jenný er það eitthvað leyndar mál ég bara spyr.

Kristín Katla Árnadóttir, 28.6.2007 kl. 23:22

7 Smámynd: Heiða  Þórðar

Jenný Anna Baldursdóttir, ég er niðurbrotinn mannekla... núna, ekkert komment?! ertu skilinn við mig...sakna þín sárlega...

Heiða Þórðar, 28.6.2007 kl. 23:28

8 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Já það ég segi það  sama eins og Heiða.

Kristín Katla Árnadóttir, 28.6.2007 kl. 23:36

9 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Kristín mín við erum að plana blóðuga byltingu ójá.  Er á leiðinni stelpur, er á leiðinni er svo bissí í bréfaskriftunum við hana Marlín Monró.

Jenný Anna Baldursdóttir, 28.6.2007 kl. 23:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (16.5.): 8
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 52
  • Frá upphafi: 2985875

Annað

  • Innlit í dag: 8
  • Innlit sl. viku: 52
  • Gestir í dag: 8
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband