Leita í fréttum mbl.is

NOKKRAR EÐAL TIL VIÐBÓTAR

Ég held áfram að kynna mínar krúttdósir, þ.e. mínar eðlu bloggvinkonur.  Ég er með rosalegan hóp af þessum elskum og tek þær eftir minni, nema eina sem lætur ekki setja sig hjá og bregst illa við að fá ekki að vera með (Devil).  Bloggvinkonulistinn verður birtur reglulega og fljótlega mun ég tæta þær í mig, af mikilli grimmd enda segja karlar að konur séu konum verstar og fyrst þeir segja það þá hlýtur það að vera satt. Voru það ekki karlmenn sem sögðu að jörðin væri flöt, röndótt, köflótt, hnöttótt og bröndótt?  Ég hélt það.

www.eddaagn.blog.is Eddu þekki ég síðan í denn,denn, þ.e. á gelgjunni og nú höfum við endurnýjað kynnin hér.  Edda er salt jarðar, hún er svo heiðarleg konan og hreinskilin að það er ekki mögulegt að bendla hana við reykfyllt bakherbergi.  Edda bloggar um allt og er bæði fræðandi og skemmtileg.

www.heidathord.blog.is  Heiðan er gömul vinkona frumburðarins.  Hún dvaldi hjá okkur sumarlangt í Svíþjóð fyrir margt löngu.  Ég er reglulega að eignast aftur það sem ég taldi glatað.  Heiðan er heiftargóður penni, meinfyndin og oftast á eigin kostnað.  Heiða bloggar oft neðanmittis og gerir það skemmtilega, mun skemmtilegar en sumir.  Ég er farin að stunda talningar á kyn-orðunum hjá Heiðu, eins og Sóley telur hausana hjá Agli.  Einhver verður að vera í bókhaldinu.

www.hronnsig.blog.is utanbæjarkonan fræga sem er í sambandi við Hús-lækni, skrifar eins og engill og gerir hversdagslífið að heilu ævintýri.  Sé gluggað í skoðanakönnun á síðunni hennar má sjá að konan veit allt um svona stóra krana, eða eru það flutningabílar eða valtarar?  Æi tjékkið á því sjálf.

www.steinunnolina.blog.iser fulltrúi minna kvenna í LA.  Hún eldar mat með því að kveikja í honum, slengja í veggi og allskonar.  Hún bloggar dásamleg ljóð og ég er ekki frá því að hún sé nautnaseggur þessi kona.  Hún er ein af þeim nýjustu í bloggvinkonuhópnum og ég er með hana í gjörgæslu.  Konar er meinfyndin.  Ætti að vera leikkona, svei mér þá. (Hm)

Æi læt þetta duga í bili, þarf að henda í kökudruslu (skelfingarkarl), taka til á lóðinni, tína ber, banka teppi, hrista af mér slenið, leggja mig, blogga og blogga meira. 

Lofjúgæs og munið, gestir og gangandi, að einu sinni enn geri ég ykkur "bigtime" greiða með því að vísa á mína flottu vini á blogginu.

Hætt að taka við blómum en ávaxtakörfunar skiljið þið eftir við útganginn.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: halkatla

þú ert svo yndisleg bloggvinkona sjálf, mundu það bara  

halkatla, 26.6.2007 kl. 12:07

2 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

 Ekki hlotnast öllum sá heiður að vera í hópi hinna staðföstu kvenna hjá dr. Húsa........

Nei sko það eru að vaxa á mig vængir........

ást og friður

Hrönn Sigurðardóttir, 26.6.2007 kl. 12:14

3 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Anna Karen þú færð að kenna á því líka.  Bíddu bara.

Jenný Anna Baldursdóttir, 26.6.2007 kl. 12:17

4 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Maður verður bara feimin  Takk fyrir þetta

Edda Agnarsdóttir, 26.6.2007 kl. 12:49

5 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Svampur þú ert... dúllurass eins og þú segir réttilega sjálfur og skammastín

Jenný Anna Baldursdóttir, 26.6.2007 kl. 13:01

6 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Því miður kallinn minn ég loka bara á fólk sem vill það ALLS EKKI.  Tihvers heldur þú að fídusarnir á Moggablogginu séu?  Til að þjóna þínum pervers löngunum? Óekkí drengur

Jenný Anna Baldursdóttir, 26.6.2007 kl. 13:13

7 Smámynd: Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir

Loksins loksins loksins.....I made it!

Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir, 26.6.2007 kl. 16:45

8 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Jenný Anna Baldursdóttir, 26.6.2007 kl. 17:05

9 Smámynd: Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir

what?

Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir, 26.6.2007 kl. 18:11

10 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Jenný Anna Baldursdóttir, 26.6.2007 kl. 18:30

11 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ég gjöri hér með að engu fyrri færslu um orð og ást mína til þeirra.  Undanfarið hef ég komist að því að það er vel hægt að gera sig skiljanlegan með táknum, sko tilfinningatáknum.  Enda ég eins og Gurrí vinkona mín beinlínis hrædd við að fólk brosi framan í mig lengur.  Er vönust broskörlum

Jenný Anna Baldursdóttir, 26.6.2007 kl. 18:32

12 Smámynd: Heiða  Þórðar

æi... verð feimin, þú ert yndisleg, enda ertu á toppnum hjá mér ljúfan.. og ekkert á niðurleið

Heiða Þórðar, 26.6.2007 kl. 21:31

13 Smámynd: Laufey Ólafsdóttir

Er búin að heimsækja þær allar og skemmti mér vel! Bíð spennt eftir næsta skammti Þú ert samt enn skemmtilegust af öllum og við vitum það allar!

Laufey Ólafsdóttir, 26.6.2007 kl. 21:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (14.5.): 5
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 55
  • Frá upphafi: 2985864

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 55
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.