Leita í fréttum mbl.is

KRYDD

1

Þykir einhverjum athugavert við að Kryddpíurnar megi ekki verða óléttar, vegna væntanlegrar endurkomu þeirra?  Er í lagi að banna fólki að eignast börn?  Þetta er fegurðarsamkeppnis fyrirkomulag.  Kvenfyrirlitning streymir frá Simon Fuller, þeim arma manni.  Mér er sem ég sjái Fuller banna karlkyns skemmtikröftum sínum það sama.  En konur eru auðvitað ekki til neins brúks óléttar.  Það er löngu vitað.

Sveiattann!

P.s. Tek fram að ég þoli ekki þennan stelpukór svona músíklega séð en það skiptir að sjálfsögðu ekki máli.


mbl.is Ekki fleiri börn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Stakk mig helling ... útlitskúgun er rosaleg í þessum bransa! Hurru, manden sem þú spurðir um á annarri bloggsíðu, heimtaðir nafn á, er númer 3 núna! Hópfúllí skiljer dú! Nema þú hafir kíkt på siden aftur!

Guðríður Haraldsdóttir, 22.6.2007 kl. 00:52

2 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Takk af hverju er ég ekki búin að fatta það.  Er svo rosalega "obvious" eitthvað en mikið ofsalega kemur þetta illa við mig með hvað hann hefur sýslað með.

Jenný Anna Baldursdóttir, 22.6.2007 kl. 00:59

3 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Grunar að hinn aðilinn sé áhugalaus "frímerkjasafnari" hjá mér og þarf að taka til í því sambandi. Bara grunur en það nægir. Mikið er ég dularfull meðan það rennur í næturbaðið mitt ... Ætti að vera leynilöggs! 

Guðríður Haraldsdóttir, 22.6.2007 kl. 01:03

4 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Drepið mig ekki úr forvitni

Jóna Á. Gísladóttir, 22.6.2007 kl. 01:16

5 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

held ég fatti

Jóna Á. Gísladóttir, 22.6.2007 kl. 01:17

6 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

ég fatta

Jóna Á. Gísladóttir, 22.6.2007 kl. 01:23

7 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Jóna þú ert KRÚTT

Jenný Anna Baldursdóttir, 22.6.2007 kl. 01:44

8 identicon

Þetta er mjög skiljanlegt og óþarfi að túlka sem kvenfyrirlitningu. Í svona comeback er fjárfest tugum milljónum dollara, sviðsframkoma er mikilvæg hjá söngsveit eins og Spice Girls.

Ath að samkomulag og þvingun eru ekki það sama. Enginn þvingar þær til þess að skrifa undir.

Geiri (IP-tala skráð) 22.6.2007 kl. 02:34

9 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Reyndu að ná pointinu maður.  Kommon!

Jenný Anna Baldursdóttir, 22.6.2007 kl. 02:36

10 Smámynd: Laufey Ólafsdóttir

Helv... (sorrý orðabragð) kjaftæði. Ég dansaði rosalega mikið þegar ég var ólétt. Ég held þær ættu að skipta um umboðsmann því þessi er aumingi. Svona gaurar eiga ekki að vera í svona djobbum. Einhver ætti að ráða hann í skúringar

...finnst þetta combakk annars slæm hugmynd út í gegn. Sammála þér í því kæra Jenný, en rétt skal vera rétt og þetta er remba af örgustu sort. 

Laufey Ólafsdóttir, 22.6.2007 kl. 02:49

11 Smámynd: halkatla

hvenær eru kryddpíurnar svosem ekki óléttar??? þær eru ekki litlar stelpur lengur, en ég skil ekki þetta rugl í kringum þessar hæfileikalausu konur

halkatla, 22.6.2007 kl. 06:54

12 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

ha? hver? hvar? hvað?

ÓMÆGOD!!!!

Hrönn Sigurðardóttir, 22.6.2007 kl. 08:42

13 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Þið eruð greinilega rosalega öfundsjúkar femínistabeljur eitthvað, maður ... Spice Girls hallærislegar? Not sko! Vá, þær verða það samt ef þær fá að hlaða niður börnum gjörsamlega eftirlitslaust. Gott hjá Simon Fuller, sko!

(djók)

Guðríður Haraldsdóttir, 22.6.2007 kl. 10:03

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 29
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 29
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.