Leita í fréttum mbl.is

HEFUR SIGURVÍMA OG VALDAGLEÐI..

 

...Samfylkingarinnar náð tökum á fulltrúum þeirra í ferðamálaráði, þeim Oddnýju Sturludóttur og Felix Bergssyni?  Ég veit svei mér þá ekki,  hvað ég á að halda, en ég sé ekki alveg hvert SF er að fara með þessum aðgerðum. Báðir fulltrúarnir sátu sem sagt hjá þegar Ragnar Bjarnason söngvari var útnefndur borgarlistamaður á fundi ráðsins í síðustu viku.  Oddný skýrir málið:

"Okkur var tilkynnt að þetta væri borgarlistamaður Reykjavíkur og okkur hefði þótt eðlilegt að fulltrúar minnihlutans, sem og þeir tveir áheyrnarfulltrúar listamanna sem sitja fundi ráðsins, hefðu komið að þessari ákvörðun, verið með í ferlinu. Raggi Bjarna er frábær söngvari og vel að þessum heiðri kominn en við ákváðum að taka ekki afstöðu vegna þessara vinnubragða. Við vorum ekki á móti, við sátum bara hjá," segir Oddný. Hún ítrekar að Samfylkingin hafi ekkert út á Ragga Bjarna að setja og þyki hann frábær söngvari. Þetta sé hennar fyrsta ár í þessu ráði og því hafi þessi vinnubrögð komið flatt upp á hana."

Æi svo leim, eitthvað, um svona hluti ætti að geta ríkt þverpólitísk samstaða.

 


mbl.is Samfylking sat hjá við útnefningu borgarlistamanns
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

no comment

Jóna Á. Gísladóttir, 19.6.2007 kl. 12:34

2 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ég á eftir að herma þetta upp á þig stelpa svo lengi sem lifir nema að þú áttir þig og kjósir rétt næst þegar tækifæri býðst

Jenný Anna Baldursdóttir, 19.6.2007 kl. 12:40

3 Smámynd: Jónas Tryggvi Jóhannsson

Vá hvað fólk virðist vera biturt út í Samfylkinguna.. að fara að bölsótast út í hana fyrir að vera á móti sloppí vinnubrögðum. 

Jónas Tryggvi Jóhannsson, 19.6.2007 kl. 13:04

4 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ég er ekki bitur úr í SF kæri Jónas og á reyndar marga af mínum bestu vinum innan þeirra raða.  En þeir eru ekki hafnir yfir gagnrýni fremur en aðrir og verk þeirra ekki heldur.  Það hefur verið hrokabragur á SF eftir stjórnarmyndun það sér hver sem vill sjá.  Að vera að halda sér til hlés við svona útnefningu sem hefð er fyrir að sé unnin á ákveðinn hátt er bara kjánalegt og á alls ekki heima þarna. 

Takk fyrir innlitið og gangi þér vel.

Jenný Anna Baldursdóttir, 19.6.2007 kl. 13:10

5 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

mér þykir svo liggja í orðunum þetta framhald... og vertu svo úti vinur.

Jóna Á. Gísladóttir, 19.6.2007 kl. 21:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (4.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 41
  • Frá upphafi: 2985796

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 38
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband