Leita í fréttum mbl.is

HVERNIG FÓLK BLOGGAR..

1

..kemur mér ekki nokkurn skapaðan hlut við, það eina sem skiptir mig máli er hvort það er skemmtilegt/áhugavert eða fræðandi.  Ég las á einhverju bloggi í morgun, pistil um hvernig höfundur vildi ekki blogga.  Það var á viðkomandi að skilja að honum fyndist nú ekki mikið til um "frétta-bloggara" koma.  Viðkomandi var á því að þeir væru bara að ná sér í heimsóknir.  Meiri skilgreiningaráráttan hjá sumu fólki.  Nú blogga ég um alla skapaða hluti og ég blogga oft um fréttir.  Mis mikið að vísu.  Nú er ég að blogga um blogg.  Hm.. ætli það setji mig í hóp með minna metandi bloggurum, en samkvæmt því sem sumir segja þá er sum tegund af bloggi einhvers konar lágstéttafyrirkomulag. 

Ég hef lesið arfa skemmtileg fréttablogg þar sem fólk lætur gamminn geysa út frá fréttinni án þess að eyðileggja boðskapinn.  Það er svo mikið til af skemmtilegum pistlum hér á Moggablogginu að ég kemst sjaldan út fyrir þessa heimahaga mína.  Svo er öllum skemmtilegu bloggvinum og óvinum fyrir að þakka.

Má ekki hver syngja með sínu nefi?  Þarf alltaf að vera að draga fólk í dilka?  Leiðinlegast þykir mér þegar svona "bloggarar um annaramannablogg" setja sjálfa sig skör hærra en okkur, sauðsvartan almúgann.

Nú bloggaði ég um hvernig aðrir blogga, dem, er til einhver flokkur undir það?  Já hér fann ég flokkinn: "Bloggað um aðra bloggara og þeir gagnrýndir svakalega". 

Síjúgæs!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Ég get ekki anna en verið sammála þér fólk má blogga það sem það vill og hana nú.

Kristín Katla Árnadóttir, 18.6.2007 kl. 10:25

2 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Ps það átti að standa þarna annað sorrý ég gleymdi gleraugunum. he he

Kristín Katla Árnadóttir, 18.6.2007 kl. 10:30

3 Smámynd: Ósk Sigurðardóttir

Segi það sama, bloggi hver eins og hann vill!

Ósk Sigurðardóttir, 18.6.2007 kl. 10:44

4 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

bloggi hver sem betur getur.....

Hrönn Sigurðardóttir, 18.6.2007 kl. 10:51

5 identicon

Það er bara eitt sem pirrar mig við suma bloggara og það eru þeir sem leyfa ekki comment og eða eru með ritskoðun á athugasemdum.

DoctorE (IP-tala skráð) 18.6.2007 kl. 11:14

6 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Blogga skulum bara sko.

best þó hver þar  með sitt nefið.

Fréttir hinum færa svo,

fyrst það okkur er svo gefið.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 18.6.2007 kl. 12:06

7 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ég er reyndar sammála DoctorE og hef BLOGGAÐ um þá sem leyfa ekki athugasemdir.

Jenný Anna Baldursdóttir, 18.6.2007 kl. 12:53

8 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Flott Ásthildur. hehe

Jenný Anna Baldursdóttir, 18.6.2007 kl. 13:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 30
  • Frá upphafi: 2985889

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 30
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.