Leita í fréttum mbl.is

ÉG HELD AÐ ÉG SÉ..

1

eilífðar hippi, föst í 68-dæminu, svona eilífðar ungmenni í skoðunum,  því það eru ákveðnir hlutir sem fara alltaf jafn mikið fyrir brjóstið á mér.  Er það sæmandi fyrir konu á ömmualdrinum að pirra sig út í fánalög og orðuveitingar, svo eitt dæmi sé tekið?  Ég held svei mér þá að það sé einhver anarkisti að flakka um í skapgerðinni, einn svona algjörlega á móti öllu sem telst til borgaralegra gilda.  En svo er ég á hina hliðina líka.  Algjör tvíklofi í skapgerð.  Er svo borgaraleg og neyslusjúk þegar kemur að fatnaði að það eru ekki margar jafnöldrur mínar með tærnar þar sem ég hef hælana.  Þetta er heldur ekki í rénum. OMG! Ég staðnaði um tvítugt og ég er að hugsa um að fara út og mynda þrýstihópa gegn heilum hellingi af málefnum.  Hér nokkur:

Til höfuðs fermingum

Til höfuðs amerískum giftingum með rammíslenskum þátttakendum og ég byrja á hópi um slaufur á giftingadrossíum

Til höfuðs Goldfinger og öðrum skítabúllum slíkum (það er þó allavega vit í að ráðast gegn því)

Á móti íbúðum upp á 230 miljónir króna

Á móti fánalögunum

Á móti orðuveitingum

Á móti hefðbundnum jakkafataklæðnaði Alþingiskarlmanna (konurnar eru flottar og eðlilegar til fara)

Á móti, á móti, á móti, ökuföntum, unnum kjötvörum, skordýrum, reyklausum kaffihúsum og, og, og..

Omg ég þarf enduruppeldi strax.  Mamma!!!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

.....ég er alfarið á móti því að vera á móti.... nema landsmót sé

Hrönn Sigurðardóttir, 18.6.2007 kl. 00:53

2 identicon

„Omg ég þarf enduruppeldi strax. Mamma!!!“ Hafðu engar áhyggjur - þetta lagast allt með aldrinum 

Anna Ólafsdóttir (anno) (IP-tala skráð) 18.6.2007 kl. 02:06

3 Smámynd: Eva Þorsteinsdóttir

Ég er alltaf á móti.......

Eva Þorsteinsdóttir, 18.6.2007 kl. 02:07

4 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Þú Eva getur skrifað á nóttunni þar sem ég veit að þú ert bara að byrja kvöldið (amró tími) en Anna mín hver er okkar afsöklun?? Vökum og vökum. Smjúts eslkurnar.

Jenný Anna Baldursdóttir, 18.6.2007 kl. 02:11

5 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Eva blogga, Hrönnslan búin en Anna þetta er ekki hægt.  Blogga stelpur komasoh!

Jenný Anna Baldursdóttir, 18.6.2007 kl. 02:12

6 Smámynd: Ester Júlía

Þú ert svo fylgin þér í skoðunum Jenný..og gengur alla leið.  . Ég hinsvegar er ..jújú oft á móti .. en gleymi því svo jafnóðum.  Veit ekki hvort er betra .  Smjúts til þín..

Ester Júlía, 18.6.2007 kl. 08:49

7 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Ég er af hinni alræmdu 78 kynslóð og get sko alveg tekið undir þetta með þér!

Guðríður Haraldsdóttir, 18.6.2007 kl. 08:51

8 identicon

Ég er sammála... er í fánanærum í dag ;)

DoctorE (IP-tala skráð) 18.6.2007 kl. 09:02

9 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Hahahahaha: Love u kids

Jenný Anna Baldursdóttir, 18.6.2007 kl. 09:06

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 23
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 21
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.