Leita í fréttum mbl.is

ÞAÐ ER GREINILEGA GOÐSÖGN..

1

..að allir bifhjólamenn séu ábyrgir í umferðinni.  Svei mér þá ég var farin að trúa því þar sem talsmenn t.d. Sniglana hafa alltaf verið svo ábyrgir í tali.  Nú var fyrrverandi stjórnarmaður í Sniglunum einn af þeim sem lentu í slysinu alvarlega í vikunni, þar sem hraðinn var ótrúlega mikill.  Ekki virðist það slys ætla að verða sumum bifhjólamönnum víti til varnaðar.  Í gærkvöld var hópur bifhjólamanna staðinn að ofsaakstri á Þingvallavegi en þeir óku á 174 km. hraða.

Helmingur þeirra virtu að vettugi stöðvunarmerki lögreglu og héldu áfram sinni dauðakeyrslu.  Látum vera ef fólk vill endilega leika sér með líf sitt, það er ekkert við því að gera. En vinsamlegast gerið það ekki á kostnað saklausra borgara sem á vegi ykkar verða, ökufantarnir ykkar.


mbl.is Hópur bifhjólamanna mældur á 174 km hraða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Maður þorir nú varla að kommentera á þetta svona miða við æsinginn í kommentum hjá Rúnu bloggvinkonu í gær http://marzibil.blog.is/blog/marzibil/ um slysið alvarlega í vikunni.

Jóna Á. Gísladóttir, 13.6.2007 kl. 17:14

2 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Þvílík læti en ég hugsa að bifhjólamenn rati ekki hér inn, ég er nefnilega með dyravörð og hann biður alla um "backstage" passa.  Tek enga sénsa, er svo vinsæl hjá þjóðinni

Jenný Anna Baldursdóttir, 13.6.2007 kl. 17:19

3 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Já, veistu þetta er rosaleg vandmeðfarið að ræða þessi mál. Þau eru mér nokkuð tengd því fyrri maðurinn minn lést eftir mótorhjólaslys þar sem hjólið bilaði og svo er sonurinn ALGJÖR hjólari og ég veit að hann hefur ekið eins og glanni en sloppið hingað til guð einn veit hvernig allt endar, en ég er oft óróleg.

Ásdís Sigurðardóttir, 13.6.2007 kl. 17:34

4 Smámynd: Eva Þorsteinsdóttir

Eva Þorsteinsdóttir, 13.6.2007 kl. 17:58

5 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

þetta er mjög alvarlegt mál og sorglegt.

Kristín Katla Árnadóttir, 13.6.2007 kl. 18:36

6 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ég skil vel að þú eigir erfitt með þetta Ásdís mín og ég votta þér samúð mína.

Jenný Anna Baldursdóttir, 13.6.2007 kl. 18:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (5.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 35
  • Frá upphafi: 2985799

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 35
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband