Leita í fréttum mbl.is

OG ÉG FÉKK VELGJU

 1(þarna má sjá mig græna í framan á meðal hreinsunarmanna)

 Af því ég gerði það sem sumarstarfsmaðurinn sagði mér að ég ætti ekki að gera en ég fór og gerði tilraun til að hreinsa andrúmsloftið. Ég fór sem sagt, þvert ofan í ráðleggingar hans, með flokki manna að hreinsa í kringum Álverið og ætlaði síðan upp á Kárahnjúka en þar sem ég varð svona heiftarlega veik af andrúmsloftinu varð ég að snúa heim græn í framan.  Hannes Már Kaldval er hinsvegar með meirapróf á andrúmsloftshreinsara og er samviskusamur með afbrigðum og hélt áfram án mín.

"Steingeit: Einhver er að reyna að hreinsa andrúmsloftið og er voða samviskusamur. Þú kemur ekki nálægt þessu! Þér yrði bara óglatt og liði mun verr eftir á."

Mér væri nær að hlýða Sumarrós ég geri það næst.

Eins og danirnir segja "vi vill ha lite mer mennskiligt andrumsluft".


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Heiða  Þórðar

Hvar í ósköpunum færðu þessa stjörnuspá? Býrðu hana til eða....

Heiða Þórðar, 9.6.2007 kl. 00:28

2 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ó nei það er einhver "blaðamaður" Moggans sem þýðir hana af ensku held ég.  Ég gef mér að þetta sé afleysingamanneskja.

Jenný Anna Baldursdóttir, 9.6.2007 kl. 00:30

3 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Hvar læturðu lita á þér hárið?

Hrönn Sigurðardóttir, 9.6.2007 kl. 00:56

4 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Iss, piss. Farðu að lesa stjörnuspána í Vikunni, stelpa. Ég skal svindla núna og gefa þér hana:

Steingeitin
22. desember – 19. janúar

Þú ert allt of opin/n fyrir neikvæðni og leiðindum. Forðastu fólk sem lætur þér líða illa og einbeittu þér að því góða í lífi þínu og það er margt. Traustur maður veitir þér aukið öryggi.

Happadagur: 12. júní

Guðríður Haraldsdóttir, 9.6.2007 kl. 00:58

5 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

ég hef alltaf sagt það Júní er góður mánuður....

ójá

Hrönn Sigurðardóttir, 9.6.2007 kl. 01:02

6 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Asskoti hittist þessum stjörnuspámanni/konu rétt orð á munn.  Ég er í vafstri með að halda frá mér neikvæðum áhrifum og þ. 12. júní smelltum við æskuástin okkur í samfélag árið 1994 og síðan hefur ekki staðið steinn yfir steini

Hárið er ekki litað Hrönn!  Lestu pistilinn þetta er eitur í andrúmsloftinu við Straumsvík.  Ég er svo viðkvæm fyrir utanaðkomandi áhrifum manneskja.

Jenný Anna Baldursdóttir, 9.6.2007 kl. 01:44

7 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Stjörnuspá og stjörnuspá

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 9.6.2007 kl. 02:13

8 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

þú ert nú meiri bullukollan . Sumarrós er helvíti gott nafn á þessa konu sem er að gera þér lífið leitt.

Jóna Á. Gísladóttir, 9.6.2007 kl. 02:20

9 Smámynd: Sædís Ósk Harðardóttir

smá innlitskvitt eftir langa fjarveru af vefnum

Sædís Ósk Harðardóttir, 9.6.2007 kl. 10:03

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.5.): 6
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 49
  • Frá upphafi: 2985795

Annað

  • Innlit í dag: 6
  • Innlit sl. viku: 43
  • Gestir í dag: 6
  • IP-tölur í dag: 6

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.