Leita í fréttum mbl.is

DÝRASMYGL

1

Einhver maður var handtekinn í Kaíró fyrir að ætla að smygla 700 lifandi snákum til Sádí-Arabíu.  Það er nokkuð langt í burtu þannig að ég geri mér ekki grillur út af því.  Auðvitað er þetta alvarlegt mál þegar verið er að smygla dýrum á milli landa.  Ég er eins og komið hefur fram hér á blogginu mínu, rosalega hrædd við skordýr, köngulær t.d. eru skelfilegastar að mínu mati.  Þótt þær séu hættulausar og mikið minni en ég.  Það eru lappirnar sko og hvernig þær hlaupa sem geta ært mig að viðbjóði og hræðslu.  Þegar ég var við nám í Gautaborg labbaði ég einu sinni inn á kaffihús sem oftar og var að lesa Göteborgs Posten.  Á forsíðunni var mynd af Tarantúllu.  Spikfeitri, kafloðinni og kvikindið var með attitjúd.  Í greininni stóð að hún hefði "stokkið" frá lögreglu þegar hann var með hana á leið inn á lögreglustöð en henni hafði verið smyglað til Svíþjóðar.  Lögreglustöðin var bara steinsnar þaðan sem ég var.  Lappirnar á mér hentust upp á vegg ég urlaðist í sætinu, reyndi að gera mig ósýnilega og þá rann það upp fyrir mér að ég væri hvergi óhult.  Ég komst heim  við illan leik og það tók mig marga daga að hætta að svipast um eftir kvikindinu.  Auðvitað er þetta geðveiki en eru fóbíur ekki brjálsemi af verstu sort?  Þess vegna er ég að hugsa um alla dýrasafnarana sem smygla svona dýrum til landsins.  Snákar, köngulær og fleiri ófreskjur.  Jafnvel konan með viðhorfið í þvottahúsinu gæti verið sek um dýrasmygl.  Hverjum á ég að treysta?  Get ég farið í heimsóknir?  Getur verið að það sé kominn tími á Bio-feedback meðferð, þe að horfast í augu við hræðsluna? Ónei ég fer til sálfræðings.  Þar mun ég ekki þurfa að halda á óttaelementinu með lappirnar óteljandi, grimmdarglampa í augum og illkvittnislegt glott út í annað munnvikið.

Sofið rótt krakkarDevil


mbl.is Ætlaði með 700 snáka um borð í flugvél
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Skil þig vel. Ég þjáist af HOBLOFÓBÍU (hræðslu við slökkviliðsbíla).

Guðríður Haraldsdóttir, 25.5.2007 kl. 00:48

2 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Hoblofóbía flott nafn á veikindum ég ætla að koma mér upp svona fóbíu.

Jenný Anna Baldursdóttir, 25.5.2007 kl. 00:52

3 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Hvað segir þú þegar vinnuveitandinn spyr hvernig veikindi þetta eru? Eða gúglar? Heheheheheh! Þetta er í alvörunni hræðsla við slökkviliðsbíla. Er með bók hjá mér sem heitir BLA BLA, 600 ótrúlega gagnslausar staðreyndir. Margt hrikalega fyndið í henni. 

Guðríður Haraldsdóttir, 25.5.2007 kl. 00:55

4 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Yndisleg lesning svona rétt fyrir svefninn þegar alls konar kvikyndi, af þessum heimi og öðrum, eiga svo gott að krípa upp að manni. Þakka þér fyrir Jenný.

Ég legg til að Gurrí deili með okkur einni og einni staðreynd úr Bla Bla öðru hverju.

Jóna Á. Gísladóttir, 25.5.2007 kl. 01:24

5 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Heyrðu Jóna, ég geri það! Hef líka fengið beiðnir um fleiri dýrlinga (skelfilega dauðdaga þeirra) og hverra verndardýrlingar þeir séu ... alveg uppáhaldið hennar Jennýjar ... múahahahhaha. Það skal bloggað á morgun, maður minn, ég meina, kona mín!!!

Guðríður Haraldsdóttir, 25.5.2007 kl. 01:41

6 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Af hverju að fara til sálfræðings og eyða trilljón mínútum i að reyna að losna við fóbíur þegar hægt er að "Tappa" þær burtu á nokkrum mínútum. Fara að lifa í nútímanum Jenný mín..nútímanum!!!! Þú verður töppuð vel og vandlega næst þegar ég kem til landsins. Hlakka svo til að sýna þér litlu sætu tarantúllurnar mínar. Vissiru að það er hægt að koma þeim fyrir í eldspýtustokkum þegar maður flytur á milli landa??? SÍJÚ

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 25.5.2007 kl. 08:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (5.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 34
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 34
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband