Leita í fréttum mbl.is

FIMMTUDAGSKVÖLD

Hún Jenny Una Errriksdóttirrr kom hér óforvarandis þar sem hún er með hita og getur ekki farið í skólann á morgun.  Við erum búnar að vera mjög uppteknar.  Höfum lesið mikið og áðan þegar Jenny var að fara að sofa og við vorum að klára Einarrr Áskel þá sagði Jenny mér að það væri drrreki sem borðaði ömmurr og hann værrri á leiðinni.  Amman spurði hver ætti þá að passa Jenny og sú stutta svaraði því til að hún myndi hrrringja í Einarrr í vinnuna og biðja hann um að koma heim.  Barn er ekki að gera veður út af því þótt eitt stykki amma verði snædd af drekanum ógurlega.W00t

Ég er að bíða eftir Húsa lækninum geðvonda .  Þegar ég hef borið hann augum fer ég einn bloggrúnt og svo beint í bólið.  Ég ætla að reyna að ná því að sofa eins og saklaust barnið við hliðina á mér.

Síjúgæs!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Þetta er nú meira krúttið! Er að horfa á húsið núna í seinkaðri dagskrá. 

Guðríður Haraldsdóttir, 24.5.2007 kl. 23:52

2 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Guð hvað hún er sæt og fallegt barn.

Kristín Katla Árnadóttir, 24.5.2007 kl. 23:53

3 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Hún er bestasta og klárasta smástelpan í henni víðu veröld. Smjúts.

Jenný Anna Baldursdóttir, 25.5.2007 kl. 00:53

4 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Óttaleg prinsessa þessi gullmoli sem þú átt þarna.

Jóna Á. Gísladóttir, 25.5.2007 kl. 01:21

5 Smámynd: Ragnheiður

Sætasta sætasta rófan, en spurningin er ? er amma heil á húfi eða fór drekinn húsavillt

Ragnheiður , 25.5.2007 kl. 08:19

6 Smámynd: Laufey Ólafsdóttir

Snilld! ...ég er samt áhyggjufull. Kom drekinn?

Laufey Ólafsdóttir, 25.5.2007 kl. 08:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (5.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 35
  • Frá upphafi: 2985799

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 35
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband