Leita í fréttum mbl.is

ANDA-STJÓRNIN AÐ FÆÐAST

22

Andastjórnin er í burðarliðnum.  Miðað við að hún sé búin að vera í vinnslu frá því fyrir kosningar ætti þetta að fara að ganga.  Samfylkingarmenn hafa talað um það allan tímann eftir að formlegar viðræður hófust eins og stjórnin væri handsöluð, múr- og naglföst, þannig að þetta ætti að skotganga.

Þetta andatal í mér kemur til að því að nánast í hverri einustu frétt þar sem talað er við Ingibjörgu Sólrúnu og Geir varðandi gang stjórnarmyndunar tala þau um að góður andi sé í viðræðunum.  Aftur og aftur.  Er stjórnin ekki af þessum heimi?  Verður þetta heilög stjórn blessuð af Guði?  Það væri ekki verra.  Annars verður spennandi að sjá málefnasamning hinnar nýju ríkisstjórnar.  Ég gef mér að Ísland verði tekið af lista hinna staðföstu þjóða, tafarlaust. Biðlistarnir minnkaðir eða þeim eytt.  Eitthvað hljóta kjör hinna lægstlaunuðu og lífeyrisþega að batna. Launamunur kynjanna verður auðvitað tekinn sterkum tökum.  Spennandi að sjá.  Stærsti plúsinn við þessa stjórn verður Jóhanna Sigurðardóttir, ISG og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir að öllum öðrum konum ólöstuðum.  Þarna er föngulegur hópur fólks úr báðum flokkum.

Síðast þegar ég vissi þá var Össur enn "hugfanginn" af verkefninu og ég vona svo innilega að hann sé ekki kalinn á hjarta. 

Gúddnætgæs!

 


mbl.is Fundur stendur enn yfir á Þingvöllum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Þetta hlýtur að ganga eftir sem þú telur upp.  Hins vegar hef ég stórar áhyggjur af kvótakerfinu og einhverjum tilslípunum á því.  Byggðamálin eru líka einhvernveginn ekki alveg í anda þessa fólks því miður.  Það má segja að þetta séu glæsilegar konur, en ég segi fyrir mig að Þorgerður Katrín er stórlega ofmetinin, það sást best á algjöru klúðri hennar í kennaraverkfalli fyrir nokkru.  Og hún er botnlaus frekja og hrokafull að mínu mati.  Þau eru reyndar mörg málin sem hafa klúðrast í höndunum á henni. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 21.5.2007 kl. 08:26

2 Smámynd: Ibba Sig.

Jó, bara smá kvitt, hef ekki gefið mér tíma til að skrifa lengi en les reglulega. (Þorði ekki öðru því mig óar við að lenda í vikulegri bloggvinahreingerningu hjá þér). 

Ibba Sig., 21.5.2007 kl. 09:21

3 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

No komment

Jóna Á. Gísladóttir, 21.5.2007 kl. 11:48

4 Smámynd: Ósk Sigurðardóttir

Það töluðu allir flokkar um að það þyrfti að stytta biðlista, t.d á elli heimilum. Byggja fleiri heimili o.s.frv. Ég spyr bara; hvernig í ósköpunum ætla "þeir" að manna heimilin.... nú þegar, er þetta alveg svakalegt vandamál og starfsfólk elliheimilanna fer í röðum í veikindafrí vegna álags!!!!!  Ég segi bara að það þarf að borga almennileg og mannsæmandi laun svo einhver yfirhöfuð hafi áhuga á að vinna þessa lítilsmetnu vinnu.

Ósk Sigurðardóttir, 21.5.2007 kl. 12:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 23
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 21
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband