Leita í fréttum mbl.is

AF STJÓRNARMYNDUN OG BARNI

22

Þetta er merkilegur og spennandi dagur.  Ríkisstjórn sem sumir telja farsæla en ég arfalélega hefur runnið sitt skeið á enda.  Geir nefnir til ástæðuna um nauman meirihluta.  Halló, halló það hefur verið ljóst síðan á sunnudagsmorgun og ekki miklir möguleikar á að meirihluti stjórnarinnar stækkaði við það að þeir töluðu saman.  Hver sem ástæðan er þá er þessu lokið og það er gott.

Geir og ISG hafa ákveðið að hefja formlegar stjórnarmyndunarviðræður á morgun.  Það er betri kostur en hin upphaflega vitleysa í Jóni og Geir.  Samt er ég ekki neitt rosa glöð, hefði viljað að Geir hefði byrjað á VG.  Ég er að hugsa um stóriðjuna og tekjulægstu hópana.  Samfylkingin ræddi mikið um biðlistana sem er gott og gengt en hvað með elli- og örorkuþega.  Mig minnir að Samfylkingin hafi talað um að eitthvað yrði gert í þeim efnum þegar svigrúm gæfist.  Ef það er eitthvað sem ég þoli ekki í pólitík svona "frasawise" þá er það svigrúms- og stöðugleikafrasinn. 

Nú ég var með hana Jenny Unu Errriksdótturrr í nótt og við skemmtum okkur all-svakalega vel.  Jenny er alltaf að læra ný orð og orðasambönd.  Núna er "harrrrðbannað að killa og klípa", ekki að ég hafi verið með fyrirætlanir í þá átt hún bara tilkynnti mér það svona óforvarendis.  Svo er hún að fá hugmynd um tímann þessi elska.  Allt sem er leiðinlegt ætlar hún að gera á "ettir" eða á "morgun" en hún var á kaffihúsi í "gær" og risessan fór í sturtu úti í öllum fötunum í "fyrramálið" (lesist í gærmorgun) Svo segir hún "manstu amma" og "Jenny er feimin" en "alltaf kutteis" svo er hún komin upp á lag með að segja "amma Jenny fá ís, gerru ða" og amman engist í krúttkasti og langar að BORÐA barnið.  Jenny fór svo í afmæli suður með sjó.

Nú er að bíða frétta af nýhöfnum rómans Sjálfstæðisflokks og samfylkingar.  Biðlund, biðlund, æðruleysi og sjálfstjórnarfyrirkomulag.

Lofjúgæs!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Jamm einmitt nýhöfnun er ef til vill rétta orðið.  Úr því sem komið er vil ég sjá Samfylkingu, Vinstri græna og Framsókn.  Með stuðningi Frjálslyndra í góðum málum,  ef sú staða kemur upp.  Það er allavega betri ávísun á velferð og uppstokkun í kvótakerfinu.  Sorglegt samt að við fáum ekki að vera með.  

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 17.5.2007 kl. 17:58

2 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Jenny er stórkrútt!

Jenný Anna Baldursdóttir, 17.5.2007 kl. 19:23

3 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

''amman engist í krúttkasti''  Ji minn hvað þetta er krúttlegt allt saman.

Hef ákveðið að kommentera ekki á stjórnmálaumræðuna þína því ég er með samviskubit.

Jóna Á. Gísladóttir, 17.5.2007 kl. 21:18

4 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Jóna ert með samviskubit?  Sjitt þú kaust Samfó og ég sem lagði upp þessa rosaflottu fræðslu um kosti VG.  Hehe þú MÁTT vera með samviskubit stelpa.

Jenný Anna Baldursdóttir, 17.5.2007 kl. 21:28

5 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Jóna Á. Gísladóttir, 17.5.2007 kl. 23:15

6 Smámynd: Laufey Ólafsdóttir

Elska þegar þau eru á þessu stigi! Það sem veltur uppúr þeim þessum elskum! Ég er í krúttukasti yfir þessari mynd... 

Laufey Ólafsdóttir, 18.5.2007 kl. 00:11

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (4.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 41
  • Frá upphafi: 2985796

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 38
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband