Leita í fréttum mbl.is

ÉG SOFNAÐI Á VAKTINNI

Ég sofnaði aftur í morgun án þess að ætla mér það og vaknaði skelfingu lostin.  Jesúsminnáhimnum hugsaði ég og svitinn spratt út á mér og eldsúla ein mikil hentist upp hrygglengjuna.  Augun voru blóðhlaupin og voru á hraðferð út úr augntóftunum.  Hjartað hamaðist í hálsinum og mér var ómögulegt að koma upp hljóði.  Ég dróst á síðustu blóðdropunum að tölvunni og loggaði mig inn á mbl.is.  Guðisélofogdýrð ekkert stórvægilegt hafði gerst meðan ég sofnaði á bloggvaktinni.  Himnarnir höfðu ekki opnast, fjöllin voru ekki hrunin og jörðin var ennþá laus við ummerki af því að hafa sprungið.  Ég tók þetta sem skilaboð að handan.  Þetta var aðvörun til mín að halda mér vakandi.  Ég gladdist yfir því að hafa ekki sofið af mér "suppræs" aldarinnar þegar íhald og framsókn framlengja líftíma sinn til næstu 4 ára (sem nú virðast heil eilífð).  Ég verð líklega vakandi þegar þau undur og stórmerki gerast.

Ég er búin að laga mér rótsterkt kaffi.  Ég ætla að vaka á verðinum.  Fyrirfram aðvöruð, fyrirfram vopnuð.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Er þetta satt? Eru þeir komnir í eina sæng? Ég hélt bara að þeir ætluðu hafa tvær sængur næstu fjögur... andsk...

Edda Agnarsdóttir, 16.5.2007 kl. 15:43

2 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Kanilkakan sendist á hotmailinu þínu!

Edda Agnarsdóttir, 16.5.2007 kl. 15:45

3 Smámynd: Steingerður Steinarsdóttir

Frábær lesning. Annars ertu búin að vera svo dugleg að blogga að ég er í vandræðum með að fylgja þér eftir. Verð það sem eftir er dags að skoða síðuna þína og lesa nýju færslurnar.

Steingerður Steinarsdóttir, 16.5.2007 kl. 16:51

4 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Takk stelpur mínar báðar.  Steingerður mín ég tek allt með stormi bæði gott og vont. Hehe

Jenný Anna Baldursdóttir, 16.5.2007 kl. 17:05

5 identicon

Nafna mín. Nú er ég búin að reikna út að þér er óhætt að sofa í svona næstu ca 32-34 klst. Það verður ekki fyrr en þá sem Framsóknarmenn verða búnir að fara gegnum uppstigninguna! Mundu samt að stilla vekjaraklukkuna reglulega, skríða framúr örskotsstund og kommenta hjá bloggvinkonunum þínum  Sweet dreams

Anna Ólafsdóttir (anno) (IP-tala skráð) 16.5.2007 kl. 20:21

6 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

hehe

Jóna Á. Gísladóttir, 17.5.2007 kl. 00:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (5.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 35
  • Frá upphafi: 2985799

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 35
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband