Leita í fréttum mbl.is

VEIT DENNI EITTHVAÐ?

22

Ég var á röltinu um bloggheima núna í morgunsárið.  Þar eru margir að velta fyrir sér alls konar stjórnamyndunarplottum sem von er þar sem við erum skilin eftir í lausu lofti og fáum í raun ekkert að vita.  Skemmtileg viðtöl við Geir og Jón á báðum sjónvarpsstöðunum þar sem þeir ítrekað svara engu.  Spurning um að láta þá ekki í friði karlana í staðinn fyrir að eyða hellings tíma í að horfa á þá svara engu með pókerandlitin sín upp á þrjár og þurrk.

Fréttablaðið gerði könnun með úrtaki upp á 800 manns um hvaða ríkisstjórnarblanda hugnaðist fólki best.  35% vilja sjá Samfylkingu og Sjálfstæðisflokk í stjórn.  14% vilja VG og íhaldið.  Ég er ein af þeim.  Úr því að draumar um vinstri stjórn virðast brostnir þá sýnist mér þetta ágætur kostur.

Skúbbarinn Denni í Íslandi í dag heyrir ýmislegt og bloggaði um eftirfarandi:

"Upplýst var í Íslandi í dag á Stöð 2 í kvöld að viðræður eru í gangi milli Sjálfstæðisflokks og Vinstri grænna um ríkisstjórnarmyndun.

Samkvæmt heimildum Íslands í dag eru viðræðurnar, sem hafa farið aaaaafar leynt, vel á veg komnar og skýrist á næstu klukkustundum hvort þær halda áfram eða þeim verði slitið.

Heimildarmenn Íslands í dag, sem eru úr röðum beggja stjórnmálaflokka, segja að opinberlega verði þessu neitað, enda setur það stjórnarmyndunarviðræður við Framsóknarflokk í uppnám."

Jahá merkilegt ef rétt reynist.  Þetta á sem sagt að skýrast mjög fljótlega hvort meintar viðræður haldi áfram eða þeim verði slitið.  Nú bíð ég spennt.  Hvað er í gangi á bak við tjöldin?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

,,Úr því að draumar um vinstri stjórn virðast brostnir þá sýnist mér þetta ágætur kostur."

Eeeh, og af hverju eru draumar um vinstri stjórn brostnir? Jú vegna þess að innan VG grasserar svo grímulaust, órökstutt og sjúklegt framsóknarhatur að þar vilja menn frekar setjast í stjórn með Sjálfstæðisflokki!!

Við skulum halda því til haga hver drap þá drauminn um vinstristjórn. Það var Steingrímur J. Sigfússon.   

Stefán Bogi Sveinsson (IP-tala skráð) 16.5.2007 kl. 10:58

2 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Ég líka ég bíð spennt  kannski verða VG og Sjálfstæðisflokkurinn saman í stjórn.

Kristín Katla Árnadóttir, 16.5.2007 kl. 11:03

3 Smámynd: Laufey Ólafsdóttir

Bíddu, Stefán Bogi... hvað mað hræðsluáróður Framsóknar á Samfylkingu og VG og persónuárásir í auglýsingum á Steingrím J??? Það má deila um hver drap drauminn um vinstriistjórn, flestir benda á Ómar Ragnarsson og félaga, eins fínn og þeirra málstaður var.

Mér finnst þetta allt vonlaust. Bíð bara eftir að þetta sé búið svo við fáum að vita hvernig fólk skipast í ráðuneytin svo að lífið geti haldið áfram! Veit að grasrót bæði  B og D lista vilja ekki áframhaldandi samstarf þótt forystur flokkanna séu með aðskilnaðarkvíða. Þetta tekur nú enda fyrir rest elsku Jenný!

Laufey Ólafsdóttir, 16.5.2007 kl. 11:49

4 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

....hmmmm eru ekki kosningarnar búnar? Er hægt að hætta að rífast um hver sagði hvað við hvern hvenær?

Hrönn Sigurðardóttir, 16.5.2007 kl. 11:58

5 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ég gleymi engu Ólafur Skorrdal.  Ég varð ekki einu sinni hissa þegar hljóðið breyttist í Jóni eftir yfirlýsingarnar um "eðlilegan framgang lýðræðis" á kosninganótt.  Framsóknarflokkurinn er gjörsamlega siðlaus þegar kemur að því að sitja áfram við kjötkatlana með örfáum undantekningum eins og tam Bjarna Harðar.

Takk Laufey og Hrönn fyrir hughreystingarorðin.  Laufey ég er alltaf svo ógisla sammála þér kona.  Takk þið öll.

Jenný Anna Baldursdóttir, 16.5.2007 kl. 13:09

6 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Mér er, Háttvirtur Ólafur, svo skítsama, fyrirgefðu orðbragðið Jenný mín, hvað er sagt hvenær og við hvern!!! Það skiptir ekki nokkru máli í dag. Skipti ekki máli þegar það var sagt og kemur aldrei til með að skipta neinu máli!!! Því það er aldrei nein innistæða fyrir því sem sagt er. 

Hefur ekkert með mína lýðræðisvitund að gera, sem er by the way, afar sterk. Ekki að þér komi það neitt við - enda var ég ekki að tala við þig.

Hafðu það og hana nú!

Hrönn Sigurðardóttir, 16.5.2007 kl. 13:32

7 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Hrönn flott hjá þér.  Þú er töffari kjéddling.

Jenný Anna Baldursdóttir, 16.5.2007 kl. 13:36

8 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

smjúts á þig Jenný lita

Hrönn Sigurðardóttir, 16.5.2007 kl. 13:37

9 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

yfsilon í leyfa.......

jamm ég er málefnaleg

Hrönn Sigurðardóttir, 16.5.2007 kl. 13:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (5.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 35
  • Frá upphafi: 2985799

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 35
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.