Leita í fréttum mbl.is

LISTIN AÐ TAPA MEÐ REISN

02 

Samtökin Hagur Hafnarfjarðar segjast hafa rökstuddan grun um að 700 manns hafi flutt lögheimili sitt til Hafnafjarðar til að geta kosið um deiliskipullagið.  Auðvitað var mjótt á mununum í þessum kosningum en það ber að virða niðurstöðuna.  Á þriðjudaginn n.k. eru samtökin með fund þar sem ákveðið verður hvort þeir ætli að kæra meint kosningasvik.  Rosalega finnst mér leiðinlegt þegar fólk getur ekki tekið lýðræðislegri niðurstöðu kosninga.  Ég ætla rétt að vona að ef úrslitinn hefðu verið á hinn veginn hefði Sól í Straumi ekki farið að grenja og vælt um kosningasvik.  Alla vega hefði mér fundist virðingarvert ef Hagur Hafnarfjarðar hefði látið eiga sig að tjá sig um þetta mál þar til að þeir væru búnir að ákveða að kæra.  Lyktar af einhverjum undirróðri sem mér fellur illa.


mbl.is Hagur Hafnarfjarðar segir brögð í tafli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

En ef það kæmi svo í ljós að það hefðu 700 manns flutt lögheimil sitt fyrir kosningar bara til að kjósa á móti álverinu, findist þér þá úrslitin sanngjörn ? Mér finnst allt í lagi að menn fari eftir settum reglum og ef það vakni sterkur grunur um einhvað annað þá sé rétt að kanna það betur.

Siggi (IP-tala skráð) 2.4.2007 kl. 01:33

2 identicon

Hafi einhverjir flutt lögheimili sitt, þá er nokkuð ljóst að þeir hafa gert það innan laga og reglna sem sett voru við kosningarnar enda hefðu þeir hinir sömu ekki fengið í hendur atkvæðaseðil.

Siggi (IP-tala skráð) 2.4.2007 kl. 02:45

3 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Lúðvík Geirsson segir í viðtali í morgun að það hafi verið sérstaklega fylgst með þessu og ekkert bendir til slíks.  Þetta er frekar aumkvunarvert finnst mér. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 2.4.2007 kl. 10:01

4 identicon

Það er ekkert vesen að flytja lögheimili,maður skreppur bara inn á einum stað og fyllir út blað. Þeir sem í alvöru fylgja sínum málstað myndu líklega ekki hika við það en eins og cesil segir þá  segir bæjarstjórinn ekkert benda til þess.

Það er gott mál en þá jafnleiðinlegt fyrir málflutning hags hafnarfjarðar. 

Ragga (IP-tala skráð) 2.4.2007 kl. 10:49

5 Smámynd: B Ewing

Hefði önnur hvor fylkingin hafið smölun á fólki í sveitarfélagið gegn atkvæði með eða á móti, þá hefði það strax orðið fréttamatur.  Ég hef enga trú á að þetta hafi verið svona, ef það voru einhverjir sem fluttu lögheimilið vegna kosningana þá gátu þeir samt sem áður gagngert flutt lögheimilið til þess að greiða atkvæði með Álversstækkun eins og hitt.

Ca. 1/3 álversstarfsmanna eru búsettir í Hafnarfirði.  Þessi þriðjungur hefði hæglega getað flutt vinnufélaga sína inn til sín til málamynda og komið t.d. með póstinn þeirra í vinnuna og afhent hann þar uns atkvæðagreiðslunni lyki og .. og.... 

....það er hægt að varpa fram alls konar samsæriskenningum en að mínu mati eru allar kenningarnar sem hafa komið fram hingað til algveg rakalaus þvættingur.

B Ewing, 2.4.2007 kl. 14:02

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 5
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 39
  • Frá upphafi: 2985769

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 33
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.